Faraldur skotárása í Bandaríkjunum síðastliðin 19 ár

Samkvæmt rann­sókn The Washington Post hafa skotárásir í skólum í Banda­ríkj­unum haft áhrif á 208 þús­und ein­stak­linga. Tólf skotárásir hafa orðið þar í landi frá ára­mótum.

Yfir 200 þús­und skóla­börn í 212 skólum víðs vegar í Banda­ríkj­unum hafa upp­lifað skotárás í skól­anum sínum frá árinu 1999, sam­kvæmt rann­sókn The Washington Post. Banda­ríkja­stjórn heldur ekki utan um tölur yfir skotárásir í skólum og á hversu marga þær hafa haft áhrif og því lögð­ust blaða­menn á The Washington Post í rann­sókn á því.

[links]Fréttir fjöl­miðla, opnir gagna­grunnar og upp­lýs­ingar frá lög­reglu voru not­aðar í rann­sókn­ina. Rann­sóknin hefur tekið rúmt ár, en einnig voru smærri árásir skoð­aðar, árásir sem röt­uðu ekki í heims­press­una.

Samkvæmt rann­sókn­inni hafa 131 börn, kenn­arar og aðrir látið lífið í skotárásum í skólum og 272 særst. Skotárás­irnar hafa þó haft áhrif á tölu­vert fleiri. Sjö af tíu árás­ar­mönn­unum voru undir 18 ára aldri og er með­al­ald­ur­inn 16 ár. Yfir 85 pró­sent árás­armann­anna komu með vopnið að heiman eða höfðu fengið það hjá vini eða ætt­ingja.

[adspot]Í gær voru 19 ár liðin frá skotárásinni í Columbine High School í Colorado, þar sem tveir árás­ar­menn skutu tólf nem­endur og einn kenn­ara til bana. Nemendur í yfir tvö þús­und skólum í Banda­ríkj­unum gengu út úr kennslu­stofum í gær til að minn­ast þeirra látnu og vekja athygli á skotárásum í skólum. Skotárásin í Columbine er upp­haf­s­punktur rann­sóknar The Washington Post. Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Michael Moore gerði heim­ild­ar­mynd um skotárás­ina árið 2002 sem nefn­ist Bowling for Columbine.

Á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins hafa verið þrettán skotárásir í Banda­ríkj­unum en það er mesti fjöldi skotárása á fyrsta árs­fjórð­ungi síðan árið 1999. Í fyrra voru fjórtán skotárásir í skólum og þrettán árið þar áður. Nýleg­asta árásin sem rataði í heims­press­una var í Majory Stoneman Douglas High School í Parkland í Florida en þá lét­ust 17 ein­stak­lingar og 17 særð­ust. Þá gekk 19 ára karl­maður, fyrr­ver­andi nem­andi við skól­ann, inn á skóla­svæðið með AR-15 hálf­sjálf­virkan riffil og hóf skotárás. Árásin átti sér stað þann 14. febr­úar síð­ast­lið­inn en í kjöl­farið hófu eft­ir­lif­andi nem­endur úr skól­anum átak gegn núver­andi byssu­lög­gjöf, sem þau vilja breyta.

March for Our Lives

Átakið nefn­ist March for Our Lives sem útleggs á íslensku göngum fyrir líf okkar. Þann 24. mars síð­ast lið­inn var svo mót­mælt víðs vegar um Banda­ríkin og voru fjöl­menn mót­mæli í höf­uð­borg Banda­ríkj­anna, Washington DC. Nemendur við Majory Stoneman Douglas High School voru áber­andi í mót­mæl­unum þar í borg er ræða Emmu González, nem­anda við skól­ann, eft­ir­minni­leg.

Atburðir sem þessir rata þó ekki alltaf í heims­press­una en í gær var skotárás í Forest High School í Ocala í Florida. Einn særð­ist og eng­inn lést, en lög­reglan brást fljótt við. Þetta átti sér stað þegar nem­endur gengu út úr skóla­stofum til að mót­mæla skotárásum í skólum. Nemandi í skól­anum tók upp mynd­band og deildi því á Twitter þegar lög­reglan kom inn í skóla­stofu stuttu eftir að skot heyrð­ust á skóla­göng­unum. Árás­armað­ur­inn, sem er 19 ára gam­all og ekki nem­andi í skól­anum, hefur verið hand­tek­inn.

Þar á undan voru aðeins 32 dagar liðnir frá síð­astu skotárás í skóla í Banda­ríkj­unum. Einn lést og einn særð­ist þegar 17 ára drengur kom í skól­ann, Great Mills High Scool í Great Mills í Maryland, með Glock hálf­sjálf­virka skamm­byssu. Á síðu The Washington Post má skoða ítar­lega síð­ustu skotárás­irnar sem hafa orðið í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár