Tíu staðreyndir um hvernig ríkið ætlar að eyða og afla peninga

Rík­is­stjórnin kynnti nýverið fyrstu fjár­mála­á­ætlun sína, sem gildir til næstu fimm ára. Þar koma fram grófar útlínur um þeirra tekna sem hún ætlar að afla, og í hvað hún ætlar að eyða þeim.

Formenn þeirra flokka sem mynda sitjandi ríkisstjórn kynntu nýverið fyrstu fimm ára fjármálaáætlun sína.
Formenn þeirra flokka sem mynda sitj­andi rík­is­stjórn kynntu nýverið fyrstu fimm ára fjár­mála­á­ætlun sína. Mynd: Samsett

1. Mikil útgjaldaaukning

Fjár­fest­ingar munu vaxa umtals­vert á næsta ári, eða um 13 millj­arða króna og ná hámarki á árinu 2021. Alls er gert ráð fyrir að fjár­fest­ingar á árunum 2019 til 2023 nemi 338 millj­örðum króna.

2. Allskyns keypt

Á meðal þeirra verk­efna sem ráð­ist verður í sam­kvæmt áætl­un­inni eru bygg­ing nýs Lands­spít­ala, kaup á þyrlum fyrir Land­helg­is­gæsl­una, upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­heim­ila, fé til bygg­ingu Hús íslensk­unnar og hámarks­greiðslur for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi verða hækk­að­ar og orlofs­tím­inn lengdur. Alls er gert ráð fyrir tæp­lega 75 millj­örðum króna í fjár­fest­ingu í sjúkra­húss­þjón­ustu og fer mest til bygg­ingar nýs Land­spít­ala við Hring­braut. Fram­kvæmdir við bygg­ingu nýs með­ferð­ar­kjarna hefj­ast á árinu 2018 en meg­in­þungi fram­kvæmda verður á árunum 2020-2023. Í áætl­un­inni er einnig gert ráð fyrir að ráð­ist verði í upp­bygg­ingu á innviðum og önnur verk­efni á fjöl­sóttum stöðum í nátt­úru Íslands og öðrum ferða­manna­stöðum.

3. Virðisaukaskattur á bækur

Virð­is­auka­skattur á bækur verður afnum­inn í byrjun árs 2019 og ári síðar verða höf­unda­rétt­ar­greiðslur, sem við­ur­kennd rétt­hafa­sam­tök inn­heimta, skatt­lagðar sem eign en ekki tekjur.

4. Umhverfisskattar

Í upp­hafi árs var kolefn­is­gjald á elds­neyti hækkað um 50 pró­sent og er fyr­ir­hugað að hækka gjaldið um tíu pró­sent árið 2019 og aftur 2020. Skoðaðar verða leiðir til gjald­töku af ferða­mönnum. Miðað er við að gjaldið verði lagt á frá og með árinu 2020.

5. Bankaskattur lækkaður

Rík­is­stjórnin stefnir á að lækka fleiri skatta á næstu árum, og verður meðal ann­ars banka­skattur lækk­að­ur. Hann fer úr 0,376 pró­sent í 0,165 pró­sent, en for­svars­menn allra fjár­mála­fyr­ir­tækja lands­ins hafa gagn­rýnt skatt­inn leng­i.

6. Blessað tryggingagjaldið

Gert er ráð fyrir lækkun trygg­inga­gjalds um 0,25 pró­sent á árinu 2019, úr 6,85 pró­sent í 6,6 pró­sent. Frek­ari lækkun ræðst m.a. af nið­ur­stöðu sam­ráðs við aðila vinnu­mark­að­ar­ins um útfærslu rétt­inda, sem fjár­mögnuð eru með trygg­inga­gjaldi, og afkomu rík­is­sjóðs. Virð­is­auka­skattur á bækur verður afnum­inn í byrjun árs 2019 og ári síðar verða höf­unda­rétt­ar­greiðsl­ur, sem við­ur­kennd rétt­hafa­sam­tök inn­heimta, skatt­lagðar sem eign en ekki tekj­ur.

7. Flöt tekjuskattslækkun fyrirhuguð

Tekju­skattur ein­stak­linga á líka að lækka. Í áætl­un­inni er gengið út frá að tekju­skattur lækki í neðra skatt­þrepi og geti lækkað um eitt pró­sentu­stig í áföngum á áætl­un­ar­tím­an­um. Tekjur rík­is­sjóðs af tekju­skatti myndu minnka um 14 millj­arða króna við þá lækkun. Í krónum talið myndu skattar þeirra sem eru með hærri tekjur lækka meira en þeirra sem eru með lægri tekjur.

8. Þakið afnumið

Skattaí­vilnun vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar verður aukin á árinu 2019 og stefnt er að afnámi þaks­ins síðar á kjör­tíma­bil­inu. Skatt­stofn fjár­magnstekju­skatts verður end­ur­skoð­aður með það að mark­miði að skatt­leggja raun­á­vöxt­un, en áhrif þeirra breyt­inga koma fram árið 2020.

9. Skuldir lækkaðar

Frá 2013 hafa skuldir rík­is­sjóðs verið lækk­aðar um 600 millj­arða króna. Í áætl­un­inni segir að aukin efna­hags­leg umsvif og lægri vaxta­gjöld í kjöl­far skulda­lækk­unar hafi skapað nauð­syn­legt svig­rúm í rík­is­rekstr­inum. Stefnt sé að því að heild­ar­skuldir hins opin­bera sam­kvæmt við­miðum laga um opin­ber fjár­mál fari undir lög­boðið 30 pró­sent við­mið í árs­lok 2019, eða ári fyrr en fjár­mála­stefnan gerir ráð fyrir og verði um 22 pró­sent í árs­lok 2023.

10. Gagnrýnt úr öllum áttum

Áætlunin hefur verið gagn­rýnd úr ýmsum áttum. Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins og fyrr­ver­andi vara­þing­maður VG, spurði hvers stöð­ug­leika sé verið að vernda með áætl­un­inni, í ljósi þess að ekki eigi að nýta skatt­kerfið til tekju­jöfn­uðar heldur þvert á móti eigi að ýkja mis­skipt­ingu. Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka Iðn­að­ar­ins, sagði að boðað stór­á­tak í upp­bygg­ingu vega­kerf­is­ins í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar stand­ist ekki skoðun. Ásdís Krist­jáns­dóttir aðal­hag­fræð­ingur Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sagt að fjar­mála­á­ætl­unin ein­kenn­ist af bjart­sýni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár