Laun forstjóra Isavia hækkuðu um 20 prósent – með 2,1 milljón á mánuði

Eftir að for­stjórar rík­is­fyr­ir­tækja voru færðir undan kjara­ráði þá ákváðu stjórnir þeirra flestra að hækka laun for­stjóra umtals­vert. Stundum um tugi pró­senta.

Björn Óli Hauksson er forstjóri Isavia.
Björn Óli Hauksson er for­stjóri Isavia. Mynd: Isavia

Heild­ar­laun Björns Óla Hauks­sonar, for­stjóra Isavia, á síð­asta ári voru 25,1 milljón króna. Árið 2016 voru þau 20,8 millj­ónir króna og því hækk­uðu launin um rúm­lega 20 pró­sent á milli ára. Meðal mán­að­ar­laun hans fóru því úr rúm­lega 1,7 milljón króna á mán­uði árið 2016 í tæp­lega 2,1 milljón króna í fyrra. Þetta kemur fram í svari Isavia við fyr­ir­spurn Kjarnans um sund­ur­liðun á launum stjórnar og æðstu stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjarninn greindi frá því í gær að heild­ar­laun og þókn­anir til stjórna þeirra félaga sem heyra undir Isavia, for­stjóra sam­stæð­unn­ar, fram­kvæmda­stjóra dótt­ur­fé­laga og fram­kvæmda­ráðs félags­ins voru 351 millj­ónir króna í fyrra. Árið 2016 voru laun og þókn­anir sama hóps 306,2 millj­ónir króna. Þau hækk­uðu því um tæp­lega 14,6 pró­sent á milli ára. Inni­falið í þeirri hækkun eru launa­hækkun fram­kvæmda­stjóra Frí­hafn­ar­innar vegna árs­ins 2016, sem var gjald­færð á árinu 2017.

Isavia er opin­bert hluta­fé­lag og að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins. Félagið ann­ars rekstur og upp­bygg­ingu allra flug­valla á Íslandi auk þess sem það stýrir flug­um­ferð á íslenska flug­stjórn­ar­svæð­inu. Isavia á fjögur dótt­ur­fé­lög. Þau eru Frí­höfnin ehf., Tern Systems ehf., Domavia ehf. og Suluk APS. Sam­stæðan velti 38 millj­örðum króna í fyrra og skil­aði tæp­lega fjög­urra millj­arða króna hagn­aði.

Allir rík­is­for­stjór­arnir að hækka umtals­vert

Kjarn­inn hefur á und­an­förnum vikum greint frá þeim launa­hækk­unum sem for­stjórar fyr­ir­tækja í opin­berri eigu fengu í fyrra eftir að ákvörð­un­ar­vald yfir kjörum þeirra var fært frá kjara­ráði og til stjórna fyr­ir­tækj­anna um mitt ár í fyrra. Til­gangur þeirra breyt­inga sem gerðar voru á lögum um kjara­ráð í lok árs 2016, og tóku gildi 1. júlí 2017, var að fækka veru­­­lega þeim sem kjara­ráð ákveður laun og önnur starfs­­­kjör og færa ákvarð­­­anir um slíkt ann­að. Á meðal þeirra sem flutt­ust þá undan kjara­ráði voru fjöl­margir for­­­stjórar fyr­ir­tækja í opin­berri eigu.

Í síð­ustu viku greindi Kjarn­inn frá því að laun Magn­úsar Geirs Þórð­ar­sonar útvarps­stjóra hafi verið hækkuð um 16 pró­sent milli áranna 2016 og 2017. Eftir hækk­un­ina voru mán­að­ar­laun hans 1,8 millj­ónir króna.

Áður hafði verið sagt frá því að Hörður Arn­­­ar­­­son, for­­­stjóri Lands­virkj­un­ar, hafi fengið 32 pró­­­senta launa­hækkun á síð­­­asta ári þegar leið­rétt hefur verið fyrir geng­is­­­sveifl­um, en reikn­ingar Lands­­­virkj­unar eru gerðir upp í Banda­­­ríkja­dölum þótt laun séu greidd í krón­­­um. Án slíkrar leið­rétt­ingar nam hækk­­­unin 45 pró­­­sent. Mán­að­­­ar­­­laun hans fóru úr tveimur millj­ónum króna á mán­uði í 2,7 millj­­­ónir króna. Lands­­­virkjun segir að þetta vegna þess að laun for­­­stjór­ans hafi verið lækkuð svo mikið árið 2012.

Ing­i­­­mundur Sig­­­ur­páls­­­son, for­­­stjóri Íslands­­­­­pósts, hefur einnig notið góðs af þessum breyt­ing­­­um. Laun hans hækk­­­uðu um 17,6 pró­­­sent á síð­­­asta ári og mán­að­­­ar­­­laun hans eru nú 1,7 millj­­­ónir króna.

Annar for­­­stjóri sem færð­ist undan kjara­ráði í fyrra er Guð­­­mundur Ingi Ásmunds­­­son, for­­­stjóri Lands­­­nets. Laun hans hækk­­­uðu um tvær millj­­­ónir króna í fyrra og námu heild­­­ar­­­laun hans á árs­grund­velli 21,7 millj­­­ónum króna, eða um 1,8 millj­­­ónum króna á mán­uði. Það er hækkun um rúm tíu pró­­­sent milli ára.

Ráðu­neytið bað um var­kárni

Ljóst er að stjórn­völd ótt­uð­ust launa­skrið hjá æðstu stjórn­endum fyr­ir­tækja í opin­berri eigu í kjöl­far þess að ákvörð­un­ar­vald yfir launum þeirra var fært frá kjara­ráði. Í bréfi sem fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neytið sendi stjórnum fyr­ir­tækja í rík­­­i­s­eigu og Banka­­­sýslu rík­­­is­ins í jan­úar 2017 var þeim til­­­­­mælum beint til þeirra að stilla öllum launa­hækk­­­unum for­­­stjóra í hóf eftir að ákvarð­­­anir um laun þeirra færð­ust undan kjara­ráði um mitt ár í fyrra. Þar stendur að ástæða hafi verið til þess að „vekja sér­­­staka athygli á mik­il­vægi þess að stjórnir hafi í huga áhrif launa­á­kvarð­ana á stöð­ug­­­leika á vinn­u­­­mark­aði og ábyrgð félag­anna í því sam­­­bandi. Æski­­­legt er að launa­á­kvarð­­­anir séu var­kár­­­ar, að forð­­­ast sé að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili en þess í stað gætt að laun séu hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­­­þró­un.“

Af­­rit af bréf­inu var sent til allra stjórn­­­anna dag­inn áður en að ný lög um kjara­ráð, sem færðu launa­á­kvörð­un­­­ar­­­vald frá ráð­inu til stjórna opin­beru fyr­ir­tækj­anna, tóku gildi í byrjun júlí 2017. Þá fund­aði Bene­dikt Jóhann­es­­son, þáver­andi fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, með for­­mönnum stjórna stærri félaga þann 10. ágúst 2017 og var þar farið yfir efni bréfs­ins.

Stjórnir flesta stærstu fyr­ir­tækj­anna í rík­­­i­s­eigu huns­uðu til­­­­­mælin og hækk­­­uðu laun for­­­stjóra sinna langt umfram almenna launa­­­þró­un. Kjarn­inn hefur fengið umrætt bréf afhent frá fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neyt­inu.

Hægt er að lesa það hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár