Milljarðatekjur samfélagsins vegna tónlistaflutnings

Tón­list­ar­menn leggja mikið til sam­fé­lags­ins.

Sjötíu og fimm pró­sent af tekjum þeirra tón­list­ar­manna sem hafa tón­list að atvinnu hér á landi, stafa af flutn­ingi lif­andi tón­listar, sam­kvæmt því sem ný skýrsla Rann­sókn­ar­mið­stöðvar skap­andi greina í Háskóla Íslands leiðir í ljós, og fjallað er um í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar kemur einnig fram að flutn­ingur lif­andi tón­listar hafi á árunum 2015-2016 staðið undir tæp­lega 60 pró­sent af heild­ar­tekjum iðn­að­ar­ins, en hljóð­rituð tón­list og höf­und­ar­réttur um 20 pró­sent hvort.

Í rann­sókn­inni, sem gerð var fyrir Samtón, Útón og Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, kemur fram að heild­ar­tekjur íslenska tón­list­ar­iðn­að­ar­ins á þessum árum hafi verið 3,5 millj­arðar króna, auk 2,8 millj­arða í afleiddum gjald­eyr­is­tekjum til sam­fé­lags­ins vegna komu tón­list­ar­ferða­manna til lands­ins.

„Sig­tryggur Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri Útón, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að könn­unin gefi góða vís­bend­ingu um styrk grein­ar­innar, einkum hvað varðar tón­leika­hald og hátíðir á Íslandi. Enn vanti betri gögn um útflutn­ing íslenskrar tón­listar til að ná heild­stæðri nið­ur­stöðu þar um,“ segir í Morg­un­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár