Hægt að bæta áhættudreifingu með dreifingu iðgjalda á fleiri sjóði

Fjallað hefur verið ítar­lega um stöðu líf­eyr­is­kerf­is­ins í Vís­bend­ingu að und­an­förnu, og heldur sú umfjöllun áfram í útgáf­unni sem fer til áskrif­enda á morgun.

Hægt er að bæta áhættu­dreif­ingu í sjóð­söfn­un­ar­kerfi líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins með því að dreifa iðgjöldum og þar með líf­eyr­is­rétt­indum hvers laun­þega á fleiri en einn sjóð. Þetta gæti haft mikla kosti í för með sér.

Þetta segir Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra, í ítar­legri grein í Vís­bend­ingu, sem kemur til áskrif­enda á morgun.

Gylfi hefur fjallað í tveimur ítar­legum greinum í Vís­bend­ingu um stöðu líf­eyr­is­kerf­is­ins, á und­an­förnum vikum og mán­uðum, og er þetta þriðja greinin í röð­inni.

Í grein sinni fjallar Gylfi um stöðu líf­eyr­is­sjóð­anna, og mis­jafna ávöxtun þeirra. „Misgóð ávöxtun sjóða og þar með mis­háar líf­eyr­is­greiðslur hefur jafn­framt áhrif á gegn­um­streym­is­kerfið sem rekið er sam­hliða sjóð­söfn­un­ar­kerf­inu vegna þeirrar tekju­teng­ingar sem beitt er í því kerfi. Lágar líf­eyr­is­greiðslur vegna lélegrar ávöxt­unar kalla að öðru jöfnu á hærri greiðslur úr gegn­um­streym­is­kerf­inu. Í því felst vita­skuld ein­hver áhættu­vörn fyrir líf­eyr­is­þega og áhætta fyrir rík­is­sjóð, þ.e. skatt­greið­endur. Áhættu­vörnin er þó mjög tak­mörkuð vegna þess hve veik­burða gegn­um­streym­is­stoðin er í líf­eyr­is­kerfi lands­manna. Til­tölu­lega ein­falt væri, frá sjón­ar­hóli hag­fræð­innar, að ná fram miklu betri áhættu­dreif­ingu í sjóð­söfn­un­ar­kerf­inu án þess að því þyrfti að fylgja neinn kostn­aður sem máli skiptir. Því væri hægt að ná fram með því að dreifa iðgjöldum og þar með líf­eyr­is­rétt­indum hvers laun­þega á fleiri en einn sjóð. Því myndu fylgja miklir kostir. Gall­arnir, og það sem vænt­an­lega myndi helst standa í vegi fyrir að hrinda slíkri breyt­ingu í fram­kvæmd, er að hún myndi kalla á nokkra upp­stokkun á kjara­samn­ingum og jafn­vel tengslum verka­lýðs­hreyf­ingar við líf­eyr­is­sjóði. Auk þess þyrfti eitt­hvað að breyta utan­um­haldi, tölvu­kerfum og slíku en kostn­aður við það yrði þó vart umtals­verður í sam­an­burði við umsvif kerf­is­ins. Breyt­ingin væri hins vegar ótví­rætt almennt til hags­bóta fyrir laun­þega, félags­menn verka­lýðs­fé­lag­anna,“ segir Gylfi meðal ann­ars í grein­inni.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár