Lítil fita eða lágkolvetna, hvort á að velja?

Getur verið að sama gamla klisjan sé ein­fald­lega sönn, til að grenn­ast þurfi bara að minnka orku­inn­töku og auka orku­notkun?

Það er ekki að undra að margir hafa velt því fyrir sér hvernig hið full­komna matar­æði er saman sett. Í nútíma­sam­fé­lagi leyn­ast í hverju horni áróð­urs­kenndar aug­lýs­ingar um holl­ustu eða óholl­ustu kókosolíu og avókadó. Þurfum við raun­veru­lega eitt skot af hveitigrassafa á dag, hrært saman við líf­rænt rækt­aða ólífu­olíu áður en við smellum hrárri nauta­steik á diskinn okkar sem aldrei hefur svo mikið sem heyrt minnst á hvítt hveiti?

Til að svara þeirri spurn­ingu, eða kannski fjöl­mörgum slíkum spurn­ingum, réðst rann­sókn­ar­hópur við Stanford Medicine í yfir­grips­mikla rann­sókn þar sem lág­kol­vetna og fitu­s­nautt matar­æði var borið saman.

Í rann­sókn­inni var 609 sjálf­boða­liðum skipt til­vilj­ana­kennt í tvo hópa, annar hóp­ur­inn hélt sig við fitu­s­nautt fæði meðan hinn var settur á lág­kol­vetna­fæði. Til­rauna­tím­inn var 12 mán­uðir og fæðu­sam­setn­ingin var búin til af þátt­tak­end­unum sjálfum, með leið­bein­ingum frá rann­sókn­ar­að­ilum.

Í upp­hafi rann­sókn­ar­innar var erfða­efni þátt­tak­enda skoðað m.t.t. gena sem skrá fyrir prótínum sem taka þátt í nið­ur­broti kol­vetna eða fitu. Að auki var grunn­lína horm­óns­ins insúl­íns mæld í hverjum og einum. Allt þetta var gert til að skoða hvaða þættir það gætu verið sem hefðu áhrif á árangur ákveð­inna lífs­stíls­breyt­inga.

Að 12 mán­uðum liðnum höfðu hóp­arnir að með­al­tali misst 5,3 og 6 kíló. Sumir þátt­tak­endur í báðum hópum bættu á sig, meðan aðrir þátt­tak­endur misstu veru­legan fjölda kílóa. Hvorki lág­kol­vetna né fitu­s­nautt fæði virt­ist betra hvað varð­aði þyngd­ar­tap.

Til að reyna að skýra hvers vegna ákveðnir ein­stak­lingar létt­ust meðan aðrir bættu á sig var kafað ofan í erfða­gögn þátt­tak­enda. Því miður virt­ist hvergi vera teng­ing á milli ákveð­innar erfða­þátta og þyngd­ar­taps, hvorki meðal þeirra sem skáru niður fitu, né hjá þeim sem minnk­uðu við sig kol­vetni.

Þegar grunn­lína insúl­íns var borin saman milli hópa og innan hópa var það sama uppá ten­ingnum, enga mark­tæka fylgni var þar að finna.

Þó þetta hafi ekki verið sú nið­ur­staða sem hóp­ur­inn lagði upp með að finna má segja að þessi rann­sókn hafi samt svarað gríð­ar­lega mik­il­vægum spurn­ingum. Til dæmis hvort er væn­legra til árang­urs að minnka fitu eða minnka kol­vetni í fæðu sinni, en svo virð­ist sem hvoru tveggja skili til­skildum áhrifum.

Getur verið að sama gamla klisjan sé ein­fald­lega sönn, til að grenn­ast þarf bara að minnka orku­inn­töku og auka orku­notkun? Jú sann­ar­lega er það lyk­ill­inn á bak við þetta allt saman. Þó setn­ingin hljómi ein­föld þá virð­ist ekki alltaf svo ein­falt að fylgja henni.

Ástæðan gæti auð­vitað legið í öðrum þáttum sem rann­sókn­ar­hóp­ur­inn reynir nú að grúska í. Má þar nefna utan­gena­erfðir, tján­ing­ar­mynstur gena sem tengj­ast efna­skiptum og hina margróm­uðu örveruflóru melt­ing­ar­veg­ar­ins.

Með tíð og tíma munum við mögu­lega sjá per­sónu­legri leið­bein­ingar um lífs­stíls­breyt­ingar. Þangað til er kannski best að hlusta á eigin lík­ama og nýta sér það sem hentar manni best hverju sinni, líka ef að það sem hentar best er að vera ekki í megrun.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár