Marorka í greiðslustöðvun - Ekki greidd laun til starfsmanna um mánaðamót

Tækni­fyr­ir­tækið Marorka er á leið í gjald­þrota­með­ferð, en óskað verður form­lega eftir greiðslu­stöðvun á morgun.

Tækni­fyr­ir­tækið Maroka, sem meðal ann­ars hefur þjón­u­stað skipa­iðnað víða um heim og aðstoðað við að draga úr mengun og auka hag­kvæmni, er á leið í greiðslu­stöðvun, en starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins var til­kynnt um þetta í dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Ekki er útlit fyrir að starfs­fólk fái greitt um mán­að­ar­mótin sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem starfs­fólk fékk.

Hallað hefur undan fæti í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins að und­an­förnu, og fór svo að lokum að ákvörðun var tekin um að hætta starf­semi.

Þýski sjóð­ur­inn Mayfair er stærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins með yfir 70 pró­sent eign­ar­hlut, en fyr­ir­tækið hefur meðal ann­ars verið með skrif­stofur í Singapúr, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum og Þýsklandi. Saga fyr­ir­tæk­is­ins spannar yfir 15 ára tíma­bil.

For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins er Juergen Kudritzki og fjár­mála­stjóri Peter Callow, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef fyr­ir­tæk­is­ins, en ekki hefur náðst sam­band við þá í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár