Lögum um fjárhagslegan stuðning til fjölskyldna fatlaðra og langveikra barna breytt

Löggjöf um fjár­hags­legan stuðn­ing til fjöl­skyldna fatl­aðra og lang­veikra barna hefur verið gagn­rýnd, m.a. af for­eldrum sem vilja stunda nám sam­hliða því að hugsa um barnið sitt. Nú gefst fólki tæki­færi til að senda umsögn um til­lögur að breyt­ingum.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur birt til umsagnar áfanga­skýrslu með til­lögum starfs­hóps sem vinnur að end­ur­skoðun lög­gjafar um fjár­hags­legan stuðn­ing til fjöl­skyldna fatl­aðra og lang­veikra barna. Frestur til að skila umsögnum er til 12. mars næst­kom­andi.

Þetta kemur fram á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

[links]Haldið hefur verið uppi nokkur gagn­rýni á lögin eins og þau eru í dag, meðal ann­ars af for­eldrum sem ann­ast fötluð eða lang­veik börn sam­hliða námi. Í við­tali Kjarnans við Tinnu Sif Guð­munds­dóttur í jan­úar síð­ast­liðnum bendir hún á órétt­lætið sem felist í því að neita fólki í námi um for­eldragreiðslur.

Í áfanga­skýrslu starfs­hóps­ins til félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra kemur meðal ann­ars fram að eitt af mark­mið­unum með til­lögum starfs­hóps­ins sé að koma í veg fyrir félags­lega ein­angrun for­eldra lang­veikra og fatl­aðra barna og tryggja þeim eins og unnt er eðli­legt líf, svo sem félags­lega þátt­töku og tæki­færi til mennt­unar og virkni á vinnu­mark­aði. Þetta segir Rakel Dögg Ósk­ars­dóttir, for­maður starfs­hóps­ins, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans varð­andi úrræði fyrir for­eldra í námi með fötluð eða lang­veik börn.

[adspot]

Rakel bendir jafn­framt á að áfanga­skýrsla starfs­hóps­ins hafi verið birt á heima­síðu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins og Sam­ráðs­gátt stjórn­ar­ráðs­ins þar sem öllum gefst kostur á að senda umsagnir um skýrsl­una og muni starfs­hóp­ur­inn taka þær umsagnir til frek­ari skoð­unar.

Ekki gert ráð fyrir því að ungir foreldrar eigi veik börn

Tinna Sif Guð­munds­dóttir er 24 ára gam­all laga­nemi við Háskól­ann í Reykja­vík sem varð fyrir því áfalli síð­ast­liðið sumar að fjög­urra ára dóttir hennar, Caritas Rós, veikt­ist og greind­ist með bráða­hvít­blæði. Tinna varð að hætta eftir ein­ungis tvær vikur í sum­ar­vinnu sinni.

Tinna segir að eftir að Caritas greind­ist hafi hún áttað sig á því að kerfið á Íslandi sé mein­gallað og mis­muni fólki eftir því hvað það gerir. Hún á ekki rétt á for­eldragreiðslum frá Trygg­inga­stofnun þar sem hún vill ekki leggja nám sitt á hill­una þrátt fyrir veik­indi Caritasar.

„Ég taldi mig full­færa um að halda áfram og mér gekk ótrú­lega vel. Hvernig má það vera að ég, sem er for­eldri í námi þegar barnið mitt veik­ist og ákveð að halda áfram í fjar­námi, þrátt fyrir veik­indi barns­ins míns, eigi minni rétt en það for­eldri sem er úti á vinnu­mark­aðnum og þarf að hætta í sinni vinnu?“ spyr hún. „Og hvernig stendur á því að þegar maður er að ganga í gegnum þetta hrylli­lega sorg­ar­ferli, að barnið grein­ist með bráða­hvít­blæði, þurfi maður einn og óstuddur að leita réttar síns?“

Hægt er að lesa við­talið við Tinnu í heild sinni hér.

SKB hvetur stjórnvöld til að leiðrétta stöðu námsmanna

SKB – Styrkt­ar­fé­lag krabba­meins­sjúkra barna – sam­þykkti ályktun þann 9. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem stjórn þess tekur undir áskorun Umhyggju frá 3. jan­úar síð­ast­liðnum þar sem Umhyggja skorar á yfir­völd að leið­rétta taf­ar­laust þá mis­munun sem á sér stað gagn­vart þeim sem fá for­eldragreiðslur ann­ars vegar og hins vegar þeim sem fá grunn­greiðslur sam­kvæmt lögum um greiðslur til for­eldra lang­veikra eða alvar­lega fatl­aðra barna.

„Þeir sem fá for­eldragreiðslur geta verið í minnk­uðu starfs­hlut­falli sam­hliða greiðsl­unum og greitt af þeim í líf­eyr­is­sjóð og stétt­ar­fé­lag en hvor­ugt á við um grunn­greiðslur, þ.e. ekki er hægt að fá þær sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli og ekki er heim­ilt að greiða af þeim í stétt­ar­fé­lag og líf­eyr­is­sjóð,“ segir í álykt­un­inni.

SKB hvetur stjórn­völd til að leið­rétta stöðu náms­manna SKB hvetur yfir­völd um leið til að leið­rétta stöðu náms­manna sem þurfa að sinna veikum börnum. „Vilji þeir minnka náms­hlut­fall sitt fyr­ir­gera þeir rétti sínum til náms­lána en eiga ein­ungis rétt á greiðslum frá Trygg­inga­stofnun geri þeir algjört hlé á námi. Kost­irnir eru því tveir í stöð­unni. Annað hvort að fram­fleyta sér á náms­lánum og vera í fullu námi, sem er nán­ast óger­legt með alvar­lega veikt barn, eða fá greiðslur frá Trygg­inga­stofnun og hætta námi, sem er súrt í broti fyrir þann sem vill ekki missa niður þráð­inn og treystir sér til að sinna námi að hluta. t.d. í fjar­námi.

Þá vill SKB vekja athygli yfir­valda á stöðu þeirra for­eldra sem þurfa að vera frá vinnu vegna barna með óút­skýrð veik­indi. Það getur tekið langan tíma, stundum mán­uði eða ár, að greina orsakir veik­inda og á meðan grein­ing liggur ekki fyrir eiga for­eldrar ekki rétt á neinum greiðslum, jafn­vel þótt þeir verði fyrir tekju­missi vegna fjar­veru úr vinnu. Þarna er glufa í kerf­inu sem þyrfti svo sann­ar­lega að fylla upp í og bæta stöðu þeirra sem svona er ástatt um,“ segir enn fremur í ályktun SKB.

Lokaskýrsla tilbúin í vor eða sumar

Rakel segir í þessu sam­hengi að starfs­hóp­ur­inn hafi nýverið fjallað um nefnda ályktun SKB á fundi sínum en vel­ferð­ar­ráðu­neytið vís­aði erindi SKB til starfs­hóps­ins og muni hann á næst­unni fjalla nánar um þau atriði sem þar koma fram.

Starfs­hóp­ur­inn stefnir að því að skila loka­skýrslu til ráð­herra í vor eða sumar og verður þar meðal ann­ars tekin afstaða til þeirra álita­efna sem hér eru til umfjöll­unar, segir í svari Rakelar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár