Sá þingmaður sem keyrir mest fær 385 þúsund í aksturspeninga á mánuði

Einn þing­maður fékk rúm­lega 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna akst­urs í fyrra. Hann keyrði vega­lengd sem jafn­gildir því að keyra tæp­lega 36 sinnum hring­inn í kringum landið. Alþingi gefur ekki upp hvaða þing­menn fá hæstu greiðsl­urnar.

Þegar þingmenn eru ekki í sætum sínum á Alþingi þá eru margir þeirra að keyra um kjördæmi sín. Og sumir í umtalsvert meiri mæli en aðrir.
Þegar þing­menn eru ekki í sætum sínum á Alþingi þá eru margir þeirra að keyra um kjör­dæmi sín. Og sumir í umtals­vert meiri mæli en aðrir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sá þing­maður sem fékk hæstu árlegu end­ur­greiðsl­una vegna akst­urs­kostn­aðar í fyrra fékk sam­tals rúm­lega 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar. Það þýðir að þing­mað­ur­inn fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­ur­greiðslu úr rík­is­sjóði vegna keyrslu sinnar. Þetta kemur fram í svari for­seta Alþingis við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, um akst­ur­kostnað þing­manna.

Í svörum for­seta er greint frá greiðslum til þeirra tíu þing­manna sem fengu hæstu end­ur­greiðsl­urnar vegna akst­urs á und­an­förnum árum. Nöfn þeirra eru ekki birt né er greint frá því hvaða kjör­dæmi þing­menn­irnir til­heyra, þar sem það er talið fara nærri per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum.

Samkvæmt svörum for­seta er einn þing­maður sem skar sig veru­lega úr hvað varðar akstur á eigin bif­reið, og end­ur­greiðslur vegna þeirra, á síð­asta ári. Sá fékk rúm­lega 4,6 millj­ónir króna í end­ur­greiðslu vegna þess að hann keyrði alls 47.644 kíló­metra á árinu 2017.

Til sam­an­burðar má nefna að Hring­veg­ur­inn, Þjóð­vegur 1, er 1.322 kíló­metrar. Umræddur þing­maður keyrði því tæp­lega 36 sinnum hring­inn í kringum landið á síð­asta ári.

Keyrði þriðjungi meira en næsti maður

Sá þing­maður sem keyrði næst mest keyrði 35.065 kíló­metra og fékk tæp­lega 3,5 millj­ónir króna í end­ur­greiðslur frá rík­inu vegna þess. Keyrsla þing­manns­ins í öðru sæti var 33 pró­sent minni en keyrsla þess sem trónir á toppnum. Alls fengu þeir þing­menn sem kröfð­ust hæstu end­ur­greiðsl­unnar vegna akst­urs 29,2 millj­ónir króna í end­ur­greiðslur í fyrra.

End­ur­greiðsl­urnar hafa dreg­ist mikið saman á und­an­förnum árum eftir að þing­menn voru sér­stak­lega hvattir til þess að not­ast frekar við bíla­leigu­bíla en að nota eigin bíla við akstur um kjör­dæmið og krefj­ast síðan end­ur­greiðslu. Árið 2013 nam end­ur­greiðsla til þing­manna vegna akst­urs­kostn­aðar 59,8 millj­ónum króna og keyrðir kíló­metrar sem kraf­ist var end­ur­greiðslu fyrir voru alls 529,6 þús­und, eða tæp­lega helm­ingi fleiri en þeir voru í fyrra.

Á árinu 2016 fóru tvær af hverjum þremur krónum sem voru end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar til þing­manna Suð­ur­kjör­dæm­is. Þrátt fyrir margar fyr­ir­spurn­ir, frá þing­mönnum og fjöl­miðl­um, þá hefur Alþingi ætíð neitað að greina frá því hvað hver þing­maður hefur fengið í akst­urs­greiðsl­ur.

Allskyns viðbótargreiðslur

Þing­far­ar­kaup alþing­is­manna er 1.101.194 krónur á mán­uði. Til við­bótar fá vara­for­setar Alþingis 15 pró­sent álag á þing­far­ar­kaup, for­menn fasta­nefnda fá sama álag ofan á sín laun, vara­for­menn nefnd­anna fá tíu pró­sent og aðrir vara­for­menn fimm pró­sent. Þeir þing­menn sem eru for­menn stjórn­ar­flokka,en eru ekki ráð­herrar, fá greitt 50 pró­sent álag á þing­far­ar­kaup.

Auk þess fá þing­menn lands­byggð­ar­kjör­dæma greitt 134.041 krónur í hús­næðis- og dval­ar­kostnað ef þeir halda ekki annað heim­ili í höf­uð­borg­inni. Þá fá þeir ein­ungis 53.616 krónur í við­bót. Allir þing­menn fá greiddar 30 þús­und krónur á mán­uði í fastan ferða­kostnað og 40 þús­und krónur í svo­kall­aðan starfs­kostnað. Því eru laun þing­manna hærri, og í mörgum til­fellum mun hærri, en þing­fara­kaup segir til um.

Skrá sjálfir aksturinn

Akstur ein­stakra þing­manna innan lands fer svo eftir mjög skýrum reglum. Litið er svo á að akst­ur­inn teng­ist starfi alþing­is­manna fyrir umbjóð­endur, varði sam­band þeirra við kjós­endur og sé því þeirra mál eins og ýmis­legur annar kostn­aður við starf þing­manna.

Þing­menn­irnir sjálfir skrá hversu mikið þeir keyra vegna starfa sinna og fá svo kostn­að­inn vegna akst­urs­ins end­ur­greiddan. Sá sem keyrði mest í fyrra fékk, líkt og áður sagði, um 385 þús­und krónur end­ur­greiddar á mán­uði vegna akst­urs í starfi.

Sá sem keyrði næst mest fékk um 288 þús­und krónur í end­ur­greiðslur á mán­uði að með­al­tali og sá sem situr í þriðja sæti um 257 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár