Breyttir tímar kalla á breytt jafnréttislög

Skipaður hefur verið starfs­hópur sem sam­anstendur af full­trúum frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, dóms­mála­ráðu­neyt­inu og Jafn­rétt­is­stofu til að hefja und­ir­bún­ing að heild­ar­end­ur­skoðun laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Skipaður hefur verið starfs­hópur sem sam­anstendur af full­trúum frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, dóms­mála­ráðu­neyt­inu og Jafn­rétt­is­stofu til að hefja und­ir­bún­ing að heild­ar­end­ur­skoðun laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Jafn­framt kemur starfs­hóp­ur­inn til með að funda með öðrum sér­fræð­ingum eftir þörfum, þar með talið frá aðilum á vinnu­mark­aði, frjálsum félaga­sam­tökum og fleirum. 

Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sem birt­ist í vik­unni.

„Nú eru tíu ár frá síð­ustu heild­ar­end­ur­skoðun jafn­rétt­islaga. Jafn­rétti kynj­anna hefur verið mikið í deigl­unni á þessum árum með breyttum við­horfum og breyttum kröfum sem varða ekki ein­ungis jafn­rétti kynj­anna heldur mann­rétt­indi og vernd gegn mis­munun í enn víð­ara sam­hengi,“ segir Ásmundar Einar Daða­sonar félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um ástæður end­ur­skoð­un­ar­innar.

Hann segir enn fremur að ýmsir hafi kallað eftir þess­ari heild­ar­end­ur­skoðun lög­gjaf­ar­innar, meðal ann­ars með vísan til þess að end­ur­skoða þurfi stjórn­sýslu mála­flokks­ins í ljósi nýrra tíma og breyttra aðstæðna sam­an­ber hlut­verk Jafn­rétt­is­stofu, Jafn­rétt­is­ráðs og kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála.

„Fyr­ir­fram ætla ég ekki að gefa mér neitt um nið­ur­stöður end­ur­skoð­un­ar­innar annað en það að end­ur­skoð­unin leiði í ljós hvaða breyt­ingar eru nauð­syn­legar og æski­legar til að styrkja jafn­rétti kynj­annan og stöðu mann­rétt­inda­mála almennt í íslensku sam­fé­lagi. Þótt staða Íslands í jafn­rétt­is­málum sé góð í alþjóð­legum sam­an­burði er svig­rúm til bóta og keppi­kefli að halda stöðu Íslands sem þjóðar í fremstu röð,“ segir Ásmundur.

Vegna heild­ar­end­ur­skoð­unar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er óskað eftir umsögnum og til­lögum að breyt­ingum á gild­andi lög­gjöf frá þeim sem láta sig efni lag­anna varða og telja þörf fyrir breyt­ingar.

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra kemur auk þess til með að skipa þverpóli­tíska nefnd sem mun hafa það hlut­verk að skila til ráð­herra drögum að laga­frum­varpi sem ætlað er að stuðla frekar að jafn­rétti kynj­anna með auk­inni skil­virkni og efl­ingu úrræða auk til­lögu að fram­tíð­ar­skipan stjórn­sýslu jafn­rétt­is­mála. Gert er ráð fyrir að félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra leggi frum­varp um breyt­ingu á lögum fyrir 148. lög­gjaf­ar­þing, haustið 2018.

Starfs­hóp­ur­inn hefur ákveðið að und­ir­búa störf sín með því að óska eftir umsögnum við gild­andi lög­gjöf og til­lögum að breyt­ingum með umfjöllun um mik­il­vægi þeirra. Allir sem láta sig málið varða eru hvattir til að senda inn ábend­ingar og athuga­semdir, segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár