Leikskólagjöldin hæst í Garðabæ en lægst í Reykjavík

For­eldrar í Garðabæ greiða 146 þús­und krónum meira á ári fyrir leik­skóla­dvöl barna sinna en for­eldrar í Reykja­vík. Þetta kemur fram í úttekt verð­lags­eft­ir­lits ASÍ á leik­skóla­gjöldum sextán stærstu sveit­ar­fé­lag­anna.

For­eldrar barna í Garðabæ greiða 146.000 krónum meira á ári fyrir leik­skóla­dvöl barna sinna en for­eldrar í Reykja­vík. Almennt mán­að­ar­gjald fyrir leik­skóla­pláss er 38.465 krónur á mán­uði í Garðabæ en 25.234 krónur mán­að­ar­lega hjá Reykja­vík­ur­borg. Miðað er við 8 klukku­stunda dvöl með fæði.

Þetta kemur fram í úttekt verð­lags­eft­ir­lits ASÍ á leik­skóla­gjöldum sveit­ar­fé­lag­anna. Sextán fjöl­menn­ustu sveit­ar­fé­lögin voru í úrtak­inu.

Leik­skóla­gjöld fyrir for­gangs­hópa, sem víð­ast eru ein­stæðir for­eldrar, náms­menn og öryrkjar, eru einnig lægst í Reykja­vík eða 16.770 krónur á mán­uði en hæst hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði, 29.512 krónur. Mikill munur er því á lægstu og hæstu leik­skóla­gjöld­unum fyrir for­gangs­hópa eða 12.842 krónur á mán­uði sem jafn­gildir 141.262 krónum á ári.

Kópa­vogur, Akureyri, Árborg, Akranes, Sel­tjarn­ar­nes, Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður og Ísa­fjarð­ar­bær hækk­uðu leik­skóla­gjöld sín þannig að 8 tímar með fæði eru dýr­ari í jan­úar á þessu ári en á sama tíma í fyrra. Mesta hlut­falls­lega hækk­unin á almennu gjaldi er hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg eða 2,9 pró­sent eða sem nemur 1.025 krónum á mán­uði, næst mest hækka almenn gjöld í Kópavogi eða um 2,7 pró­sent (821 króna á mán­uði ) og sömu sögu er að segja um Ísa­fjarð­arbæ en þar hækka gjöldin einnig um 2,7 pró­sent (954 krónur á mán­uði).

Vest­manna­eyjar, Reykja­vík og Mos­fells­bær hafa hins vegar lækkað leik­skóla­gjöld síðan í fyrra. Mestu hlut­falls­legu lækk­un­ina má finna í Vest­manna­eyjum en þar lækka almenn leik­skóla­gjöld um 10,2 pró­sent og fara úr 39.578 krónum í 35.550 krónur. Lækkunin nemur því 4.028 krónum á mán­uði eða 44.308 krónum á ári. Það ber þó að hafa í huga að leik­skóla­gjöldin voru hæst af öllum stöðum í Vest­manna­eyjum í fyrra. Næst mesta lækk­unin er í Reykja­vík eða 8,1 pró­sent (2.213 króna lækkun á mán­uði) en í Mos­fellsbæ lækka gjöldin um 3,7 pró­sent (1.264 krónur á mán­uði).

Lengri vistun en hinir almennu átta tímar getur verið dýr. Þannig getur níunda klukku­stundin hækkað heild­ar­gjaldið mikið og er mik­ill munur á þess­ari auka klukku­stund hjá sveit­ar­fé­lög­unum. Dýrust er hún í Kópavogi, 14.066 krónur en ódýr­ust hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði, 2.977 krónur en mun­ur­inn er 372 pró­sent. Í Kópavogi borga for­eldrar 31.424 krónur fyrir 8 tíma vistun með fæði en 45.490 fyrir 9 tíma með fæði og hækka leik­skóla­gjöldin því um 44 pró­sent í þessu til­felli ef bæta þarf einni klukku­stund við dag­inn. Reykja­vík er með næst­dýrasta níunda tím­ann á 10.003 krónur og þar á efir koma Fljóts­dals­hérað og Vest­manna­eyjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leikskólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár