Byssurnar frá Stary Tekov

Þeir eru margir stað­irnir í henni ver­öld sem nán­ast engir kann­ast við né vita hvar eru. Einn slíkra er smá­bær­inn Stary Tekov í Slóvakíu. Enn færri kann­ast lík­lega við kaup­mann­inn Jozef Host­in­sky og versl­un­ina Tassat. Host­in­sky er vopna­sali, selur byssur.

Síðla árs 2014 ráku starfs­menn Evr­ópu­lög­regl­unnar, Europol, augun í nokkur sænsk nöfn í vopna­reg­istri sló­vösku lög­regl­unnar. Europol hafði sam­band við sænsku lög­regl­una, sem fór, nokkru síðar, að fylgj­ast með þremur sænskum mönnum. Lög­regl­una grun­aði að þeir hefðu keypt vopn í Slóvakíu og smyglað til Sví­þjóðar. Lög­reglan komst, að eigin sögn fyrir til­viljun, að því að einn mann­anna sem fylgst var með var með tals­vert magn danskra pen­inga­seðla í fórum sínum. Í maí 2015 tal­aði einn Svíanna við nokkra unga menn frá Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn í síma. Þau sím­töl, sem lög­reglan hler­aði, snér­ust um við­skipti. Vopna­við­skipti. Fjöldi ólög­legra vopna í umferð.

Lögregla í mörgum Evr­ópu­löndum telur sig vita að ólög­legum vopnum í umferð hafi fjölgað mikið á und­an­förnum árum. Danska lög­reglan veit fyrir víst að í margra mán­aða átökum glæpa­gengja í Kaup­manna­höfn á síð­asta ári komu ólög­leg vopn við sögu.

Mismunandi aðferðir við að breyta byssum

Þrátt fyrir að í Evrópu hafi árum saman verið í gildi lög varð­andi byssu­leyfi og notkun til­tek­inna skot­vopna hefur sala slíkra vopna ekki verið bönnuð. Skilyrði er að þær séu þannig úr garði gerðar að ein­ungis sé hægt að hleypa af púð­ur­skotum en ekki að nota þær sem skot­vopn (með kúlu). Heimilt er að selja byssur sem búið er að breyta og gera ónot­hæfar sem skot­vopn.

Aðferð­irnar við að gera þær ónot­hæfar voru mis­mun­andi, víð­ast hvar var byss­unum breytt þannig að úti­lokað væri að „laga þær“ og þannig hafa regl­urnar t.d. verið í Danmörku. Í Slóvakíu var, fram til júlí árið 2015, notuð önnur aðferð, þar var steypt í hlaupið. Með réttum aðferðum, og vara­hlutum, var fremur auð­velt að gera slíkar byssur að skot­vopni á nýjan leik. Í Slóvakíu voru margir vopna­salar með breyttar byssur (með ísteyptu hlaupi) til sölu. Slíkt frétt­ist.

Innkaupaferðir til Slóvakíu

Ekki eru til neinar tölur um hve margar byssur slóvaskir kaup­menn hafa selt við­skipta­vinum sínum en þær eru margar. Meðal þeirra sem gerðu sér ferð, eða ferðir, til Slóvakíu til vopna­kaupa voru þrír Svíar, Tamer Zahran, Bjørn Nyman og Dragan Zeljo, allir frá Malmö. Þeir eru allir á fer­tugs­aldri, þekkj­ast vel og hafa margoft kom­ist í kast við lögin. Það voru nöfn þess­ara manna sem starfs­menn Europol ráku augun í, eins og fyrr var getið. Vorið 2014 losn­aði Tamer Zahran úr fang­elsi, hafði setið inni fyrir fíkni­efna­brot.

Áður­nefndir félagar hans höfðu ekki setið með hendur í skauti, þeir höfðu nokkrum sinnum farið til Slóvakíu og keypt þar byssur með ísteyptu hlaupi, ásamt ýmsum vara­hlutum. Tví­menn­ing­arnir keyptu byss­urnar hjá tveimur kaup­mönnum. Annar þeirra í bænum Partizanske, Bjørn Nyman hafði áður skipt við hann, og Dragan Zeljo hafði keypt 60 byssur af gerð­inni Scorpion hjá Jozef Host­in­sky í versl­unni Tassat í smá­bænum Stary Tekov. Þessir tveir bæir, eru á svip­uðum slóðum, norð­austan höf­uð­borg­ar­innar Brat­islava.

Í ágúst 2014, þegar Tamer Zahran var laus úr fang­els­inu fór hann ásamt Birni Nyman akandi, til Stary Tekov. Frá Malmö er vega­lengdin um það bil 1150 kíló­metrar. Þeir keyptu sam­tals 235 byssur í þess­ari ferð og fluttu þær, hindr­un­ar­laust, til Malmö.

Danskir kaupendur

Haustið 2014 eru byss­urnar frá Slóvakíu komnar í umferð í und­ir­heimum Sví­þjóðar. Á síð­ustu fjórum mán­uðum þess árs lagði sænska lög­reglan hald á 32 byssur. Á þessum tíma vissi lög­reglan hvorki hvernig byss­urnar hefðu komið til Sví­þjóðar né hvaðan þær komu. Þegar farið var að fylgj­ast með þre­menn­ing­unum marg­nefndu, eftir ábend­ingu Europol átt­aði lög­reglan sig á því að þeir tengd­ust sölu á byss­unum frá Slóvakíu. Lög­reglan fylgd­ist einnig náið með kunn­ingjum þre­menn­ing­anna og komst að því að einn þeirra hitti margoft danskan mann, Larim að nafni í Malmö.

Dag einn heyrði lög­reglu­maður á hler­un­ar­vakt minnst á byssur „þessar þarna Scorp“ og svo er svarað „já, hann vill fá fjórar Scorpio“. 28. maí, dag­inn eftir þetta sím­tal fór Daninn Larim (sem lög­reglan fylgd­ist með) ásamt þremur vinum sínum yfir Eyr­ar­sunds­brúna til Malmö á tveimur bílum, með tug­þús­undir danskra og sænskra króna í reiðufé. Á Torn­falks­gatan í suð­ur­hluta Malmö hittu Danirnir marg­nefndan Tamer Zahran ásamt tveimur kunn­ingjum hans. Danirnir fengu afhentan hvítan poka, Svíarnir tóku við umslagi. Allt þetta sáu sænskir lög­reglu­menn.

Eltingaleikur á Eyrarsundsbrúnni

Eftir að hafa tekið við hvíta pok­anum héldu Danirnir til baka yfir sundið, sænska lög­reglan í humátt á eftir. Þegar Danirnir höfðu borgað brú­ar­gjaldið gaf lög­reglan þeim merki um að stoppa. Því hlýddu Danirnir ekki heldur gáfu í og óku á miklum hraða yfir sjálfa brúna, lög­reglan á eftir með blikk­andi ljós. Þegar bíl­arnir voru komnir á þann hluta veg­ar­ins sem liggur yfir eyj­una Pip­ar­hólmann tókst lög­regl­unni að stöðva bíla Dananna. Þá hafði einn þeirra kastað, fyrst hvíta pok­anum og síðan sjálfum sér út úr öðrum bílnum og tók strikið yfir Pip­ar­hólmann í átt að sjónum. Sænskur lög­reglu­maður (vænt­an­lega í topp­formi) hljóp hann uppi en Daninn hafði á hlaup­unum hent frá sér hvíta pok­anum. Í pok­anum reynd­ust vera tvær Scorpio byssur, ásamt ýmsum fylgi­hlutum, og pen­ingar sem lög­reglan telur að hafi átt að nota til greiðslu fyrir tvær byssur til við­bótar, sem kannski hafi ekki verið til­búnar þennan dag.

Byssurnar voru frá verslun Jozefs Hostinsky

Þrátt fyrir að búið væri að afmá fram­leiðslu­númer byssnanna sem voru í hvíta pok­anum tókst tækni­deild dönsku lög­regl­unnar að greina núm­erin. Þau stemma við númer á byssum sem Dragan Zeljo keypti í versl­un­inni Tassat, verslun Jozefs Hast­in­sky í smá­bænum Stary Tekov. Dóttir kaup­manns­ins, sem vann í verslun föður síns, skráði sam­visku­sam­lega teg­und og fram­leiðslu­númer hverrar byssu sem seld var í búð­inni, klukkan hvað kaupin fóru fram, nafn kaup­and­ans og sölu­verðið. Faðirinn stað­festi, með und­ir­skrift, upp­lýs­ing­arnar í skránni. Aðra byss­una keypti Dragan Zeljo 9. jan­úar 2014 og hina 7. mars sama ár.

Réttarhöld og dómar

19. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hófust rétt­ar­höld í máli Svíanna þriggja í Malmö og féll dómur þann 19. des­em­ber, Dragan Zeljo fékk þriggja og hálfs árs fang­els­is­dóm, Björn Nyman og Tamer Zahran fengu hvor um sig fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm, brot þeirra alvar­legri af því þeir seldu byss­urnar til afbrota­manna. Danirnir fjórir fengu hver um sig þriggja ára fang­elsi, sá dómur féll árið 2016.

Hvað með allar byssurnar?

Sænska lög­reglan hefur lagt hald á 65 af þeim tæp­lega 300 byssum sem Svíarnir keyptu í Slóvakíu. Danska lög­reglan hefur lagt hald á tíu byssur sem vitað er að þre­menn­ing­arnir keyptu. Ekki er vitað hvar hinar 225 eru nið­ur­komnar. Danska lög­reglan telur næsta víst að í Danmörku séu margar byssur sem keyptar voru í Slóvakíu þótt ekki sé hægt að full­yrða slíkt. Í við­tali við dag­blaðið Jót­land­s­póst­inn sagði starfs­maður vopna­deildar dönsku lög­regl­unnar að lík­legt væri að fleiri en Svíarnir þrír hefðu lagt leið sína til Slóvakíu til að verða sér úti um skot­vopn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Glæpamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár