Barnaníðingur stýrir sértrúarsöfnuði úr fangelsi í Texas

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér ótrú­lega sögu Warren Jeffs, sem um tíma var á lista FBI yfir hættu­legstu glæpa­menn Banda­ríkj­anna.

Warren Jeffs var um skeið á lista banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar yfir 10 hættu­leg­ustu glæpa­menn­ina á flótta. Þrátt fyrir það að hann hafi verið hand­samaður árið 2006 og sitji nú bak við lás og slá er hann ekki síður hættu­legur því að hann stýrir ennþá lífum þús­unda víðs vegar um Banda­ríkin. FLDS er söfn­uður sem myndi fylgja Warren Jeffs í gröf­ina án þess að hika.

Sættu sig ekki við einkvæni

Spá­mað­ur­inn Joseph Smith skrif­aði og gaf út Morm­óns­bók árið 1830 og lað­aði í kjöl­farið að sér fjölda safn­að­ar­með­lima í trú­ar­hreyf­ingu sem nefnd var Kirkja Jésú Krists og hinna seinni tíma dýr­linga. Í dag­legu tali eru með­limir kirkj­unnar kall­aðir morm­ónar og eru þeir í dag um 15 millj­ónir tals­ins. Smith stofn­aði kirkj­una í New York fylki en flutti sig um set vestur á bóg­inn til Illinois. Þar ákvað hann að bjóða sig fram til for­seta Banda­ríkj­anna árið 1844. Fram­boðið var mjög umdeilt þar sem hann boð­aði m.a. fjöl­kvæni.

Smith var myrtur af reiðum múg þetta sama ár og hann hefur allar götur síðan verið einn helsti dýr­lingur og písl­ar­vottur morm­óna­trúar. Brigham Young tók við kirkj­unni og flutti hinn litla og umdeilda söfnuð vestur yfir Kletta­fjöll til Utah þar sem hann festi sig í sessi. Undir lok 19. aldar og í upp­hafi þeirrar 20. áttu morm­ónar þó í vök að verj­ast gagn­vart banda­rísku rík­is­stjórn­inni vegna fjöl­kvæn­is­ins og kirkju­leið­tog­arnir reyndu hægt og bít­andi að upp­ræta það innan safn­að­ar­ins.

Fyrst með til­skip­unum en að lokum með bann­fær­ingu með­lima sem stund­uðu það. Ekki sættu allir sig við þessa breyt­ingu og fjöldi smárra aðskiln­að­ar­safn­aða varð til, flestir ein­ungis með nokkur hund­ruð eða þús­und með­limi.

Fjöl­menn­asti hóp­ur­inn kall­aði sig Bók­stafs­trú­ar­kirkju Jésú Krists og hinna seinni tíma dýr­linga, FLDS, sem klauf sig frá móð­ur­kirkj­unni árið 1954. Upp­hafs­maður FLDS var Leroy S. Johnson sem var þá kom­inn vel á sjö­tugs­aldur en átti eftir að leiða hinn nýja söfnuð í rúm­lega 30 ár. Hann var álit­inn hinn nýji spá­maður af safn­að­ar­með­limum sem bjuggu flestir í tveim ein­angr­uðum smá­bæjum á mörkum Utah og Arizona. Smærri sam­fé­lög FLDS spruttu í Texas, Colorado, Suður Dakota, Oklahoma, Kanada og Mexíkó. Þegar best lét taldi söfn­uð­ur­inn um 15.000 manns.

Einangrað líf

FLDS með­limir velja sér land­fræði­lega ein­angr­aða staði til að búa á, staði sem eru afmark­aðir af fjöllum, skógum eða ám. Þeir vilja sem minnst vita af umheim­inum og fylgj­ast grannt með öllu utan­að­kom­andi fólki. Oft eru háir veggir reistir í kringum sam­fé­lögin. Vald spá­manns­ins yfir safn­að­ar­með­limum er algert og strangar reglur gilda um flesta hluti dag­legs lífs. Hlutir á borð við sjón­vörp, dag­blöð og tölvur eru alger­lega bann­aðir og ekki má hafa sam­band við fólk utan sam­fé­lags­ins, jafn­vel þó það teng­ist fjöl­skyldu­böndum. Fólkið eyðir því mestum frí­tíma sínum í lestur trú­ar­legra rita. Fólkinu er einnig gert að klæða sig á ákveð­inn hátt. Karlmenn skulu klæð­ast annað hvort jakka­fötum eða þá galla­buxum og síðri hnepptri skyrtu. Konur klæð­ast pastellit­uðum „sléttu­kjólum” og með hárið bundið í fasta fléttu.

Ein­angr­unin og hinn sér­staki klæða­burður minnir því um margt á Amish sam­fé­lögin í Mið­vest­ur­ríkj­unum. En FLDS eiga sér þó mun stærri skugga­hliðar og mikið af því teng­ist fjöl­kvæn­inu. Karlmenn fá ekki að gift­ast nema með leyfi kirkj­unnar og það leyfi fá þeir ekki nema þeir greiði vissa upp­hæð fyrir. Eftir því sem karl­arnir eld­ast og greiða meira og meira til kirkj­unnar fá þeir fleiri eig­in­konur og þar af leið­andi fleiri börn. Konur og afkvæmi eru því eins konar gjald­mið­ill innan sam­fé­lags­ins. Konurnar hafa ekk­ert um það að segja hverjum þær gift­ast og eru oft giftar barn­ungar. Þetta kerfi veldur því vita­skuld að ein­ungis fáir karl­menn fá að gift­ast. Því eru fjöl­margir ung­lings­piltar reknir úr sam­fé­lag­inu fyrir smá­vægi­leg brot. Þessir piltar hafa verið kall­aðir “týndu drengirnir” þar sem þeir kunna ekk­ert að bjarga sér út í hinum stóra heimi utan FLDS sam­fé­lag­anna. Fjöl­margir þeirra hafa því leiðst út í eit­ur­lyfja­neyslu og glæpi. Annað vanda­mál sem fylgir þess­ari sam­fé­lags­gerð er hin mikla skyld­leika­ræktun sem á sér stað vegna sifja­spells. Þetta hefur orsakað það að óvenju hátt hlut­fall FLDS barna fæð­ast með þroska­skerð­ingu, floga­veiki og fleiri kvilla.

Ald­urs­dreif­ingin í sam­fé­lag­inu er einnig bjöguð. Um það bil tveir þriðju safn­að­ar­með­lima eru undir tví­tugu. Kirkjan arð­rænir líka safn­að­ar­með­limi sína. Meðlimir FLDS eru krafðir um að gefa tíund tekna sinna til kirkj­unnar en í raun er þrýst á að gefa mun stærri hlut. Kirkjan á því flest íbúð­ar­húsin sem eru auð­vitað stór rétt eins og fjöl­skyldu­gerðin. Kirkjan sjálf er mold­rík og stundar atvinnu­starf­semi að ýmsu tagi svo sem land­búnað, bygg­ing­ar­iðnað og fram­leiðslu vél­ar­hluta. Safn­að­ar­með­limir eru iðu­lega látnir gefa vinnu sína, jafn­vel börnin. Það komst í frétt­irnar árið 2012 að kirkjan hafði tekið börn úr skóla til að sinna pek­an­hnetu­tínslu myrkr­anna á milli og án launa.

Hinn eftilýsti spámaður

Þegar Leroy S. Johnson lést árið 1986 tók Rulon Jeffs við stjórn­ar­taumunum í kirkj­unni og stöðu spá­manns. Hann stýrði kirkj­unni allt til dauða­dags árið 2002. Rulon átti um 20 eig­in­konur og um 60 börn, þar á meðal arf­taka sinn Warren Jeffs. Þegar Jeffs tók við for­yst­unni gift­ist hann öllum eft­ir­lif­andi ekkjum föður síns til að tryggja völd sín innan safn­að­ar­ins. Alls á Waren Jeffs um 60 börn með 78 eig­in­konum.

Allt frá unga aldri var Warren Jeffs hald­inn mik­illi barna­girnd og sem sonur spá­manns­ins var hann í ein­stakri aðstöðu til að kom­ast í kynni við börn. Talið er að hann hafi mis­notað börn allt niður í 5 ára aldur og þar með talin sín eigin. Sem spá­maður beitti hann valdi sínu óspart bæði fyrir sig sjálfan og nán­ustu sam­verka­menn. Yfirvöld í Utah höfðu haft vit­neskju um hann um tíma en áttu erfitt með að hafa hendur í hári hans þar til árið 2006. Þá náð­ist að koma Jeffs á lista banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar (FBI) yfir 10 hættu­leg­ustu glæp­menn lands­ins á flótta. Skyndi­lega var and­lit hans alls staðar en það tók engu að síður um hálft ár að finna hann. Jeffs var hand­tek­inn í bíl rétt utan við Las Vegas við reglu­bundið umferð­ar­eft­ir­lit. Jeffs var fluttur til Utah þar sem réttað var yfir honum fyrir þá sök að koma á gift­ingum milli full­orð­inna karl­manna og stúlku­barna.

Hann var fund­inn sekur í hér­aði en hæsti­réttur fylk­is­ins vís­aði mál­inu aftur heim í hérað vegna form­galla. Ljóst var að dóm­arar í hæsta­rétti voru á bandi spá­manns­ins og hann yrði aldrei dæmdur til fang­els­is­dóms í Utah. Hann var því fram­seldur til Texas þar sem hann átti á höfði sér tvær ákærur fyrir nauðgun á stúlkum undir lög­aldri. Þar fékk hann lífs­tíð­ar­dóm auk 20 ára til við­bótar árið 2011. Handtaka og dómur Warren Jeffs olli straum­hvörfum í FLDS sam­fé­lag­inu. Fjöldi með­lima hefur síðan skroppið saman um þriðj­ung, niður í 10.000 með­limi þar sem fólk hefur annað hvort sagt sig úr kirkj­unni, flúið eða verið rekið úr henni. Þar á meðal fjögur af börnum Warrens. Tvö af þeim, nú upp­komin, hafa lýst kyn­ferð­is­mis­notkun sem faðir þeirra framdi gegn þeim. Flestir FLDS með­limir halda þó enn tryggð við kirkj­una og Warren Jeffs sem þeir telja nú vera písl­ar­vott.

Upplausnarástand

Jeffs sagði af sér for­mennsku í söfn­uð­inum árið 2007 og lýsti því meira að segja yfir að hann væri ekki sannur spá­maður en ljóst er þó að hann stýrir söfn­uð­inum innan veggja fang­els­ins. Bróðir hanns, Lyle Jeffs, hittir hann reglu­lega og kemur skila­boðum áleiðis. Einnig hefur hann sam­band við í gegnum síma þar sem ræðum hans er oft útvarpað innan sam­fé­lag­anna. Allt frá hand­töku hefur Jeffs sýnt af sér ákaf­lega und­ar­lega hegðun. Hann talar ekki við nema fáeinna útvalda, aldrei við fjöl­miðla eða yfir­völd. Í rétt­ar­salnum fór hann sjálfur með loka­orðin í vörn sinni. Hann sagði þó ekki stakt orð heldur starði á kvið­dóm­endur í u.þ.b. 40 mín­útur.

Hann hefur farið í mörg hung­ur­verk­föll innan fang­els­is­ins og oft stendur hann graf­kyrr tímunum saman og starir eða þylur upp eitt­hvað alger­lega sam­heng­is­laust. Hann fylgist mikið með fréttum og þegar fregnir koma af alvar­legum áföllum eða nátt­úru­ham­förum miðlar hann því til safn­að­ar­ins sem frek­ari sönnun þess að heimsendir sé í nánd. Andlegri heilsu hans er því aug­ljós­lega virki­lega ábóta­vant. Þessi sturlun hans kemur glöggt fram í FLDS sam­fé­lag­inu þar sem Jeffs setur fleiri og fleiri und­ar­legar reglur sem dyggir safn­að­ar­með­limir fylgja mót­þróa­laust.

Í októ­ber síð­ast­liðnum lýsti Charlene Jeffs, fyrrum eig­in­kona Lyle sem nú er horfin úr söfn­uð­inum, nýrri reglu sem aðrir hafa stað­fest að fyr­ir­skipuð var af Warren. Nú mega eig­in­menn ekki lengur eiga börn með konum sínum heldur ein­ungis útvaldir „sæð­is­berar”, 15 menn sem hand­valdir voru af Jeffs. Hún segir enn­fremur: „Það er skylda eig­in­manns að halda í hönd konu sinnar á meðan sæð­is­ber­inn „dreifir sæði sínu”. Eða á manna­máli, að eig­in­maður verður að sitja í her­berg­inu á meðan sæð­is­ber­inn, eða nokkrir, nauðga konu hans eða konum.” FLDS með­limum hefur verið bannað kjósa til for­seta Banda­ríkj­anna þar sem Jeffs hefur látið þau skila­boð ganga að hann sé hinn eig­in­legi for­seti. Þetta er börnum kennt í grunn­skólum sam­fé­lags­ins

Það sem hefur verið að ger­ast í sam­fé­lag­inu síðan Jeffs var hand­samaður er að það fólk sem hafði ein­hverjar efa­semdir um kirkj­una er að flýja. Þetta er þvert á öll fjöl­skyldu­bönd og veldur því að fjöl­skyldur tvístr­ast þar sem sam­skipti við fólk utan safn­að­ar­ins eru bönnuð. Ef eig­in­menn brjóta reglur kirkj­unnar eiga þeir það á hættu að kona þeirra og börn verði gefin öðrum manni. Eftir standa því dygg­ustu og um fram allt hlýðn­ustu með­lim­irnir sem myndu glaðir fylgja Warren Jeffs fram á graf­ar­bakk­ann. Því veltur fram­tíð safn­að­ar­með­lima að miklu leyti á ótraustu and­legu ástandi hans sjálfs. Vel er hægt að ímynda sér álíka blóð­bað og átti sér stað í bænum Jonestown í Guyana árið 1978 þegar tæp­lega 1000 með­limir sér­trú­ar­söfn­uðs Jims Jones frömdu fjölda­sjálfs­morð. Hér eru því þús­undir manns­lífa í höndum vit­firrts og inni­lok­aðs manns sem er alger­lega óút­reikn­an­legur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Glæpamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár