Foreldrar langveikra eða alvarlegra fatlaðra fá desemberuppbót

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur und­ir­ritað reglu­gerð sem tryggir for­eldrum lang­veikra eða alvar­lega fatl­aðra barna allt að 53 þús­und krónur í upp­bót. Það er sam­bæri­leg upp­hæð og líf­eyr­is­þegar og atvinnu­leit­endur fá.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

For­eldrar lang­veikra eða alvar­lega fatl­aðra barna munu fá greidda des­em­ber­upp­bót í ár. Greiðslan verður að hámarki 53.123 krónur, en um nýmæli er að ræða. Uppbótin verður sam­bæri­leg þeirri sem líf­eyr­is­þegar og atvinnu­leit­endur fá greidda í jóla­mán­uð­inum. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur und­ir­ritað reglu­gerð þess efnis.

Trygg­inga­stofnun rík­is­ins ann­ast greiðslu des­em­ber­upp­bótar sam­kvæmt reglu­gerð­inni og verður hún greidd út eigi síðar en 18. jan­úar næst­kom­andi.

Á vef félags- og jafn­rétt­is­ráðu­neyt­is­ins segir að sam­kvæmt reglu­gerð­inni á for­eldri lang­veiks eða alvar­lega fatl­aðs barns sem hlotið hefur greiðslur í des­em­ber 2017 sam­kvæmt lögum um greiðslur til for­eldra lang­veikra og alvar­legra fatl­aðra barna rétt á des­em­ber­upp­bót.

Uppbótin er hlut­falls­leg þannig að for­eldri sem fengið hefur mán­að­ar­lega greiðslu sam­kvæmt lög­unum alla tólf mán­uði árs­ins fær fulla des­em­ber­upp­bót, sem er að hámarki 53.123 krónur. „Foreldri sem hefur fengið greiðslur skemur en tólf mán­uði á árinu 2017 á rétt á hlut­falls­legri des­em­ber­upp­bót í sam­ræmi við þann tíma sem for­eldrið hefur fengið greiðslur á árinu sam­kvæmt lögum um greiðslur til for­eldra lang­veikra eða alvar­lega fatl­aðra barna,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár