Lárus Welding fær fimm ára dóm í Stím-málinu

Hér­aðs­dómur dæmdi aftur í Stím-mál­inu í dag, tveimur árum upp á dag eftir að fyrri dómur hans í mál­inu var kveð­inn upp. Nið­ur­staðan var sú sama.

Lárus Welding var forstjóri Glitnis fyrir hrun.
Lárus Welding var for­stjóri Glitnis fyrir hrun. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitn­is, var í dag dæmdur í fimm ára fang­elsi fyrir umboðs­svik í Stím-­mál­inu. Jóhannes Bald­urs­son, sem var fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta hjá bank­anum var dæmdur í tveggja ára fang­elsi og Þor­valdur Lúð­vík Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Saga Capital, var dæmdur í átján mán­aða fang­elsi. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Lárus, Jóhannes og Þor­valdur voru ákærðir vegna lán­veit­inga sem Glitnir veitti Stími til að kaupa hlutafé í bank­an­um, en hluta­bréfa­kaup Stíms í Glitni og FL Group námu tæpum 25 millj­örðum króna. Kaupin voru að stórum hluta fjár­mögnuð með láni frá Glitni og hluta­bréfin sjálf voru eina veð­ið.

Lárus sætti ákæru í tveimur liðum ákærunnar en þeir Jóhannes og Þor­valdur í þeim þriðja. Allir neit­uðu sök. Lárus og Jóhannes voru báðir dæmdir fyrir umboðs­svik og Þor­valdur fyrir hlut­deild í umboðs­svik­um.

Menn­irnir þrír hlutu sömu dóma í hér­aðs­dómi fyrir nákvæm­lega tveimur árum síðan, þann 21. des­em­ber 2015. Í sumar vís­aði Hæsti­réttur mál­inu aftur til hér­aðs­dóms og ómerkti um leið fyrri dóm í mál­inu. Ástæðan var van­hæfi dóm­ara, Sigríðar Hjalte­sted. Því þurfti að end­ur­flytja málið í hér­aði.

Keypti hlutabréf í Glitni

Málið snýst ann­ars vegar um tug­millj­arða króna lán­veit­ingar til félags­ins Stím ehf., í nóv­em­ber 2007 og jan­úar 2008. Stím var búið til af starfs­mönnum Glitnis í þeim til­gangi að kaupa hluta­bréf í bank­anum sjálfum og stærsta eig­anda hans, FL Group, sem bank­inn sat uppi með á veltu­bók sinni. Eng­inn mark­aður var fyrir bréfin á því verði sem Stím greiddi fyrir þau.

Lýstar kröfur í bú Stím þegar það fór á haus­inn voru rúm­lega 24 millj­arðar króna. 0,06 pró­sent fékkst upp í kröf­urn­ar. Ljóst er að fjár­tjón lán­veit­enda, Glitn­is, var því gríð­ar­legt. Lárus Weld­ing var ákærður fyrir umboðs­svik í tveimur liðum vegna lán­veit­ing­anna sem áttu sér stað í nóv­em­ber 2007 og í jan­úar 2008, en hann var for­stjóri Glitnis á þeim tíma.

Tapáhætta færð af Sögu

Hins vegar snýst málið um kaup fag­fjár­festa­sjóðs­ins GLB FX á víkj­andi skulda­bréfi af Saga Capi­tal í ágúst 2008. Saga hafði lánað Stím millj­arð króna en þegar ljóst varð að Stím var komið með nei­kvætt eigið fé setti, sam­kvæmt ákæru, Þor­valdur Lúð­vík Sig­ur­jóns­son, þáver­andi for­stjóri og eig­andi í Sögu Capital, mik­inn þrýst­ing á Glitni að kaupa af sér skulda­bréf­ið. Það var loks gert í ágúst 2008, skömmu fyrir banka­hrun, og öll upp­hæðin auk vaxta end­ur­greidd til Sögu Capi­tal. Hún nam um 1,2 millj­arði króna.

Kaup­and­inn var umræddur sjóð­ur, GLB FX. Með því var tap vegna Stím fært af Sögu Capi­tal yfir á þá sem áttu hlut­deild í sjóðn­um. Þar á meðal voru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Jóhannes Bald­urs­son var fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Glitnis á þessum tíma og tók, sam­kvæmt ákæru, ákvarð­anir um að kaupa hið verð­litla skulda­bréf á fullu verði. Hann var ákærður fyrir umboðs­svik. Þor­valdur Lúð­vík var síðan ákærður fyrir hlut­deild í umboðs­svik­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár