Eldsneytisnotkun í sjávarútvegi farið minnkandi síðan 1997

Elds­neyt­is­notkun í sjáv­ar­út­vegi hefur í heild minnkað um tæp­lega 43 pró­sent frá árinu 1990 til árs­ins 2016 og áætlað er að sjáv­ar­út­vegur dragi úr elds­neyt­is­notkun um 134 þús­und tonn á tíma­bil­inu 1990 til 2030.

Áætlað er að sjávarútvegur dragi úr eldsneytisnotkun um 134 þúsund tonn á tímabilinu 1990 til 2030.
Áætlað er að sjáv­ar­út­vegur dragi úr elds­neyt­is­notkun um 134 þús­und tonn á tíma­bil­inu 1990 til 2030. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frá árinu 1997 hefur elds­neyt­is­notkun í sjáv­ar­út­vegi minnkað að með­al­tali um rúm 4 pró­sent ári og var árs­notkun elds­neytis í sjáv­ar­út­vegi árið 2016 sú lægsta frá árinu 1990, bæði frá fiski­skipum og fiski­mjöls­verk­smiðjum.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sem birt­ist í morgun.

Samkvæmt skýrslu­höf­undum hefur útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá sjáv­ar­út­vegi minnkað mikið. „Með ein­földun má segja að sjáv­ar­út­veg­ur­inn hafi, fyrir sitt leyti, náð mark­miði Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins. Að sjálf­sögðu er sjáv­ar­út­vegur ekki ein­angruð stærð í lofts­lags­málum. Heim­ur­inn er einn að þessu leyti. Hvað sem því líður er greini­legt að sjáv­ar­út­vegur á Íslandi hefur náð mjög góðum árangri á liðnum árum,“ segir í skýrsl­unni. 

Jafn­framt kemur fram að tækninýj­ungar af ýmsu tagi og aðrir orku­gjafar muni hjálpa til við að draga enn frekar úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í íslenskum sjáv­ar­út­vegi á kom­andi árum.

Áætlað er að sjáv­ar­út­vegur dragi úr elds­neyt­is­notkun um 134 þús­und tonn á tíma­bil­inu 1990 til 2030, segir í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar. Einnig kemur fram að sterkir fiski­stofnar, fram­farir í veiðum og betra skipu­lag veiða hafi leitt til veru­lega minni olíu­notk­unar í sjáv­ar­út­vegi og þar með losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Eldneytisnotkun heldur áfram að dragast saman

Elds­neyt­is­notkun í sjáv­ar­út­vegi hefur í heild minnkað um tæp­lega 43 pró­sent frá árinu 1990 til árs­ins 2016 og áætlað er að sjáv­ar­út­vegur dragi úr elds­neyt­is­notkun um 134 þús­und tonn á tíma­bil­inu 1990 til 2030. Þá verði fiski­bræðsla nær ein­göngu knúin með raf­magni og raf­orku­fram­leiðsla um borð í fiski­skipum með ljósa­vél sem liggja í höfn heyri til und­an­tekn­inga. Gangi þetta eftir mun elds­neyt­is­notkun í sjáv­ar­út­vegi hafa dreg­ist saman um 54 pró­sent á tíma­bil­inu, segir enn fremur í skýrsl­unni.

Fram til árs­ins 2030 er reiknað með að olíu­notkun í sjáv­ar­út­vegi drag­ist saman um 19 pró­sent.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá sjáv­ar­út­vegi hefur farið minnk­andi ár frá ári síðan 1990 en þá var hlut­fallið 19,5 pró­sent af heild­ar­losun Íslands. Árið 2007 var hlut­fallið komið niður í 13 pró­sent og árið 2014 í 9,7 pró­sent.

Að mati skýrslu­höf­unda hefur sjáv­ar­út­vegur á Íslandi þegar náð mark­miði Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins vegna fisk­mjöls og lýs­is­fram­leiðslu og er kom­inn vel á veg með að ná þessu mark­miði vegna veiða.

Fjár­fest­ing­ar­þörf í fiski­skipum fram til árs­ins 2030 er metin um 180 millj­arðar króna. Nýrri og tækni­vædd­ari skip munu draga enn frekar úr umhverf­is­á­hrifum sjáv­ar­út­vegs.

Hag­kvæmn­is­út­reikn­ingar sýna að hag­stæð­ara er að nota raf­magn úr landi þegar skip eru í höfn, frekar en að keyra ljósa­vélar sem ganga fyrir olíu.

Frá árinu 2006 til árs­ins 2016 hafa Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sent á eigin vegum eða haft milli­göngu um end­ur­vinnslu á 8.400 tonnum af veið­ar­færa­úr­gangi.

Miklar breytingar í sjávarútvegi undanfarna áratugi

Fiski­skipa­floti lands­manna hefur breyst mikið und­an­farna ára­tugi, segir í skýrsl­unni. Jafn­framt segir að fram yfir alda­mót hafi heild­ar­vél­ar­afl fiski­skipa auk­ist en dregið hafi úr því á liðnum árum. Afli á Íslands­miðum hafi auk­ist mikið á síð­ustu öld en jafn­framt hafi verið veru­legar sveiflur í veið­inni. Miklar fram­farir hafi orðið í skipa­smíðum og veiði­tækni sem hafa áhrif á elds­neyt­is­notkun. Ný og öfl­ugri skip hafi leyst eldri loðnu­báta og minni tog­skip af hólmi.

Elds­neyt­is­notkun sjáv­ar­út­vegs­ins var mest á árunum 1996 og 1997 þegar mikil sókn var á fjar­læg mið, eins og til dæmis í Smuguna, segir í skýrsl­unni.

Elds­neyt­is­notkun í sjáv­ar­út­vegi í heild þannig hefur minnkað um 43 pró­sent frá árinu 1990. Þar af hefur elds­neyt­is­notkun fiski­skipa minnkað um rúm 35 pró­sent og fiski­mjöls­verk­smiðja um tæp 84 pró­sent. Sigl­ingar íslenskra fiski­skipa með afla á erlenda mark­aði eru nú fátíðar. Íslensk skip sigla í meiri­háttar við­hald og end­ur­bætur erlendis og nota þá gjarnan tæki­færið til að fylla elds­neytistank­ana.

„Þessi erlenda elds­neytistaka er ekki með í tölum um elds­neyt­is­notkun fiski­skipa­flot­ans. Hún er hins vegar mjög lít­ill hluti af heild­ar­notk­un­inni. Ástæður sam­dráttar í elds­neyt­is­notkun sjáv­ar­út­vegs á tíma­bil­inu frá 1990 til 2016 eru einkum hátt olíu­verð, minni afli, tækni­fram­farir sem auka afla á sókn­ar­ein­ingu og sam­þjöppun í grein­inni.

Ísland er aðili að Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu og hefur kynnt lands­mark­mið um að taka þátt í sam­eig­in­legu mark­miði Evr­ópu­ríkja um að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent til árs­ins 2030 miðað við árið 1990. Þannig er lagt á sjáv­ar­út­veg að minnka notkun jarð­efna­elds­neytis á 40 árum um 40 pró­sent. Sjáv­ar­út­vegur á Íslandi hefur þegar náð þessu mark­miði við fram­leiðslu á fiski­mjöli og lýsi og er kom­inn vel á veg með að ná því vegna veiða,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár