Halli á vöruviðskiptum eykst um 25 milljarða milli ára

Afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum nam 68,1 millj­arði króna á þriðja árs­fjórð­ungi. Töluverð breyt­ing varð á vöru­úflutn­ingi til hins verra á milli ára.

Þrátt fyrir að mik­ill afgangur sé af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum, virð­ist sem það sé tekið að halla nokkuð undan fæti hjá fyr­ir­tækjum í vöru­út­flutn­ingi.

Vöru­við­skipti á þriðja árs­fjórð­ungi voru nei­kvæð um 47,5 millj­arða en á sama tíma í fyrra voru þau nei­kvæð um 22,5 millj­arða.

Afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum þjóð­ar­bús­ins á þriðja árs­fjórð­ungi var 68,1 millj­aður en á sama tíma í fyrra var hann ríf­lega 100 millj­arðar króna. Sem fyrr er það mik­ill vöxtur í ferða­þjón­ustu sem hefur mikil jákvæð áhrif á heild­ar­stöðu íslenska hag­kerf­is­ins, en afgangur af þjón­ustu­við­skiptum nam 117,5 millj­örðum á þriðja árs­fjórð­ungi. Afgang­ur­inn var heildur meiri í fyrra á sama tíma, eða 122,7 millj­arðar.

Góð staða

Staða þjóð­ar­búss­ins, þegar kemur að eignum og skuldum erlendis, er góð um þessar mundir að mörgu leyti ein­stak­lega góð, í sögu­legu sam­hengi. Samkvæmt bráða­birgða­yf­ir­liti Seðla­banka Íslands námu erlendar eignir þjóð­ar­bús­ins 3.307 millj­örðum króna í lok árs­fjórð­ungs­ins en skuldir 3.198 millj­örðum króna. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 108 millj­arða, eða sem nam 4,4 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu (VLF) og batn­aði um 125 millj­arða króna eða sem nam 5 pró­sent af VLF á milli árs­fjórð­unga. „Hrein fjár­magns­við­skipti bættu erlenda stöðu þjóð­ar­bús­ins um 72 ma.kr. Skuldir lækk­uðu um 398 ma.kr. og erlendar eignir um 326 ma.kr. vegna fjár­magns­við­skipt­anna. Gengis- og verð- breyt­ingar höfðu jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóð­ar­bús­ins um sem nam 91 ma.kr. Skýrist það af 4,5% verð­hækk­unum á erlendum hluta­bréfa­mörk­uðum og af 5% lækkun á gengi krón­unnar gagn­vart helstu gjald­miðlum miðað við geng­is­skrán­ing­ar­vog,“ segir í yfir­lit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár