FME: Gerum ekki athugasemdir við lækkun eigin fjár bankanna

Aðstoð­ar­for­stjóri FME, Jón Þór Sturlu­son, segir að það komi til greina að lækka eigið fé bank­ana í var­færnum skrefum. Þetta kemur fram í við­tali við hann i Morg­un­blað­inu.

„Við gerum ekki athuga­semdir við það ef bank­arnir myndu lækka eig­in­fjár­hlut­fall sitt í var­færnum skrefum,“ segir Jón Þór Sturlu­son, aðstoð­ar­for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME), í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag. „Fjár­mála­eft­ir­litið myndi hins vegar ekki heim­ila bönk­unum að greiða arð í það miklum mæli að eig­in­fjár­hlut­fall almenns eigin fjár þáttar 1 færi í 16%,“ segir hann og nefnir að 18% væri nærri lagi að teknu til­liti til stjórn­enda­auka bank­anna sjálfra (e. plann­ing buf­fer).

Fram kom í Morg­un­blað­inu í gær að sam­kvæmt grein­ingu Danske Bank eru íslensku bank­arnir með mun ríf­legra eigið fé en þekk­ist ann­ars staðar á Norð­ur­löndum.

Samkvæmt því sem kom fram í blað­inu, þá gætu end­ur­reistu við­skipta­­bank­­arn­ir þrír, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn, verið í stakk bún­­ir til þess að greiða allt að 240 millj­­arða króna í arð til eig­enda í því skyni að eig­in­fjár­­hlut­­fall þeirra verði með svip­uðu sniði og ann­­ars staðar á Norð­ur­­lönd­um, sam­­kvæmt út­­reikn­ing­um sem fjallað var í Morg­un­blað­inu í gær.

Sé mið tekið af því sem Jón Þór segir í við­tali við Morg­un­blaðið þá er nær lagi að það sé hægt að greiða um 200 millj­arða úr bönk­unum til eig­enda, án þess að efna­hags­legum styrk bank­anna sé ógnað.

Í nýlegri grein­ingu frá Danske Bank, um stöðu íslenska banka­kerf­is­ins, kom fram að það væri á traustum fót­um, og að eig­in­fjár­staða þess væri ólík því sem þekk­ist á Norð­ur­lönd­un­um.

Sam­tals er eigin fé Arion banka, Lands­bank­ans og Íslands­banka um 650 millj­arðar króna, en ríkið á Íslands­banka og Lands­bank­ann og fullu, og 13 pró­sent hlut í Arion banka.

Eig­in­fjár­hlut­fall fjár­mála­stofn­ana, sem kallað hefur verið „almennt eigið fé þáttar 1“ (e. Common Equity Tier 1), var um 23% að með­al­tali hjá íslensku bönk­unum í lok ann­ars árs­fjórð­ungs, en er um 16% að með­al­tali hjá sam­bæri­legum bönkum ann­ars staðar á Norð­ur­löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár