Rétt undir sólinni

Halldór Friðrik Þor­steins­son lét draum ræt­ast um að ferð­ast um Afríku, Asíu og Suður- og Mið-Ameríku. Hann sendir á morgun frá sér sína fyrstu bók, Rétt undir sól­inni. Bókin geymir ferða- og mann­lífs­sögu Halldórs úr ferða­lagi um Afríku.

Flest látum við okkur dreyma um að ferð­ast. Heim­sækja stað­ina sem við höfum heyrt nefnda og kannski velt fyrir okkur um stund hvernig gætu litið út, staðir sem hafa fram­and­leg heiti eins og Ouagadougou eða Gondar: hvernig ætli sé að vera þar? 

Halldór Friðrik Þor­steins­son lét ekki þessar hugs­anir nægja, heldur hélt af stað. Í hálft ár ferð­að­ist hann frá vest­ur­strönd Afríku austur á bóg­inn og síðan suður að syðsta odda álf­unnar.

Á leið­inni hitti hann fyrir fjöl­skrúð­uga flóru fólks sem fæst við allt frá frönsku­kennslu til pálma­vín­bruggs, frá sölu fórn­ar­dýra til leigu­bíla­akst­urs.

Hann heyrir af vonum og vænt­ingum íbúa þess­arar miklu álfu og stendur sjálfur á hæsta tindi hennar og skyggn­ist yfir. Heiti bók­ar­innar, Rétt undir sól­inni, er fengið úr frá­sögn Jóns Ind­íafara sem sigldi fram­hjá Afríku á leið sinni austur á bóg­inn fyrir 400 árum. „Þótt þekk­ingu okkar á löndum heims hafi auð­vitað stórfleygt fram frá því að Jón sagði Íslend­ingum frá furðum heims­ins, minnir tit­ill­inn á að þrátt fyrir allt skiljum við heim­inn best þegar við heyrum sögur sem taka mið af því lífi sem við lifum sjálf. Tónn bók­ar­innar er geð­þekkur, jarð­bund­inn og yfir­læt­is­laus. Það er hvergi dregin fjöður yfir þau fjöl­mörgu vanda­mál sem steðja að íbúum Afríku en við erum líka minnt á að álfan er stór og menn­ing­ar­heimar hennar margir, og þeir eru for­vitni­legir og heill­andi,“ segir í umsögn útgef­anda.

Halldór Friðrik Þor­steins­son er mennt­aður í heim­speki og við­skiptum og starf­aði við verð­bréfa­miðlun um ára­bil. Hann hefur á und­an­förnum árum ferð­ast vítt og breitt um heim­inn, yfir Asíu og Afríku og Suður- og Mið-Ameríku.

Rétt undir sól­inni er fyrsta bók hans, og gefin út af Crymogeu.

Hér að neðan fer einn kafli úr bók­inni, þar sem gripið er niður í ferðir Halldórs um Afríku. Bókin kemur form­lega út á morgun, 5. októ­ber.

-------

Marel í Accra

Höf­uð­borg Gana, Accra, fengi seint feg­urð­ar­verð­laun, ekki frekar en aðrar afrískar borgir. Fjöl­skrúð­ugt mann­lífið og strand­lengjan bæta það upp. Ég tékka inn á Palóma­hót­elið, snyrti­legt hótel á góðum stað, og rölti um nágrennið. Finn leigu­bíla­þjón­ustu á vegum hót­els­ins og kanna verð á bíl og bíl­stjóra. Umsjón­ar­mað­ur­inn, Alex, er geðug­asti maður í fal­legri síð­erma skyrtu. Í miðjum samn­inga­við­ræðum verður mér litið á skyrtu­brjóstið. Þar stendur rauðum stöfum með kunn­ug­legu vöru­merki: Marel Food System. Já, litli heimur! Fata­söfnun Rauða kross­ins er greini­lega að skila sér. Ég segi honum í óspurðum fréttum að faðir minn hafi verið fyrsti stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins. Samn­ingar nást. Á rölt­inu um nær­liggj­andi hverfi blasir fátæktin við í sinni ljós­ustu mynd. Hreysi við hreysi, mor­andi mann­líf og allir að sýsla eitt­hvað í sinni litlu ver­öld, sem er full af ærslum og gleði. Svo snýr maður til baka á hót­el­her­bergið þar sem nóttin kostar á við árs­tekjur hjá fólk­inu handan við hornið og spyr sig: Er ekki eitt­hvað bogið við þetta allt saman? Eða stóð kannski svarið á skyrtu­brjóst­inu fyrr um dag­inn? Er ekki menntun og þekk­ing ásamt auknum við­skiptum lyk­ill­inn að því að bæta þetta? Í fyll­ingu tím­ans.

Messað yfir mér

Á leið­inni í sunnu­dags­messu klukkan sjö að morgni er kallað til mín yfir göt­una: Hey, Mr. White, whassup? Í næstu mal­ar­götu eru karl­menn í fót­bolta. Kirkju­bygg­ingin er nýleg og stór. Hvíta­sunnu­söfn­uðir eru í öru­stum vexti í land­inu, með tvær millj­ónir með­lima. Þeir rekja sig til írska trú­boð­ans James McKeown sem kom til Gana 1937 á vegum bresku post­u­la­kirkj­unnar. Flokka­drættir gerj­uð­ust, McKeown hélt velli og stofn­aði eigin söfnuð. Salurinn er gímald, hér er allt fyrsta flokks, sætin eins og í bíó­sal, stórir sjón­varps­skjáir og mik­ill hljóm­bún­aður. Full kirkja, 500 manns. Ég fæ mér sæti og bók­artitl­inum Svört messa skýtur upp í huga mér. Ég er hvítur hrafn. Prest­ur­inn, Pétur að nafni, kemur fljót­lega aðvíf­andi í tein­óttum jakka­fötum og heilsar upp á mig. Heldur yfir mér tölu um kjarn­ann í trúnni sem ég gríp ekki alveg en skilst þó að hann hafi snúið einum múslíma fyrir skemmstu. Pétur þjón­aði áður í norð­ur­hluta Gana þar sem hann segir að ríki villu­trú og galdrar.

− Það hljómar spenn­andi, segi ég. Pétur hváir. Síðan hefst messu­haldið með presti, þremur söngv­urum og sex manna hljóm­sveit sem er í gler­búri til hliðar við alt­ar­is­sviðið. Byrjunin er ærandi hall­elúja-söngur, fólk hoppar og syngur, veifar vasa­klútum. Pétur prestur leiðir með sker­andi hrópum og kirkju­gestir bylgj­ast í hreyf­ingum fagn­að­ar­ins. Þessu slotar eftir dágóða stund, fólk kemur upp á svið eitt af öðru og segir sögur af veik­indum ætt­ingja sinna og fær við­brögð í sam­úð­arstunum úr sal. Einn segir af getn­aði sem heppn­að­ist óvænt fyrir til­stilli almætt­is­ins. Þá tekur hljóm­sveitin við og hávær múgsefj­un­ar­söngur. Pétur prestur stendur afsíðis og virð­ist ekki nenna þessu lengur. Fólk fellur í gólfið, baðar út höndum. Hátal­arar ískra, hljóð­himnur strekkj­ast. Svo lækkar þetta og hefst þá pen­inga­söfnun þar sem fólk kemur dans­andi inn á sviðið og stingur seðlum í stóran söfn­un­ar­kassa á hjólum.

Þegar búið er að plokka söfn­uð­inn er komið að predikun dags­ins sem fjallar um vænt­ingar eig­in­kon­unnar til eig­in­manns­ins. Að henni lok­inni koma eig­in­konur, hver af annarri og lýsa reynslu sinni. Ein þeirra segir karl­menn vera stöðugt blaðr­andi utan heim­ilis en svo sé ekki hægt að draga stakt orð upp úr þeim þegar þeir eru heima hjá sér. Sú lýs­ing fellur í góðan jarð­veg. Hljóð­nemi gengur um sal­inn og sögur af sam­búð kynj­anna koma á færi­bandi, með reglu­legum hlátra­sköllum úr sal. Eftir þriggja stunda messu held ég heim á hótel, upp­veðr­aður eins og eftir góða leik­sýn­ingu og fátæktin allt í kringum mig hefur skipt litum.

Andófsmaður

Þegar Gull­ströndin fékk sjálf­stæði fyrst Afr­íku­ríkja 1957 og end­ur­vakti 11. aldar gull­ald­ar­nafn­gift, Gana, voru miklar vonir bundnar við þetta nýfrjálsa ríki. Fyrrum fangi og frels­is­hetja, Kwame Nkrumah, varð for­sæt­is­ráð­herra og naut heims­at­hygli fyrir aðsóps­mikla fram­komu. En hann fór offari, landið sökk í skulda­fen og níu árum eftir sjálf­stæði var það komið á helj­ar­þröm. Nkrumah var steypt af stóli. Við tóku erfið ár þar sem her­inn réð ríkjum. Árið 1979 kom inn á hið póli­tíska svið flug­maður í hernum, Jerry Rawlings, hálfur Gani, hálfur Skoti. Hann tal­aði máli alþýð­unnar, ögraði hernum og stóð fyrir aftöku nokk­urra valda­manna. Rawlings stjórn­aði með harðri hendi í 18 ár, bann­aði aðra flokka og sendi and­ófs­menn í fang­elsi. Einn þeirra heitir Kwame Pianim.

Í úthverfi Accra býr Kwame Pianim ásamt hol­lenskri konu sinni. Hann kom til Reykja­víkur árið 1994 á þing frjáls­lyndra stjórn­mála­flokka og kynnt­ist nokkrum Íslend­ingum, þar á meðal föður mínum. Þá var Pianim nýlega laus eftir tíu ára fang­els­is­vist, sak­aður um valda­ránstil­raun. Hann situr á móti mér með grá­sprengt hár, virðu­legt yfir­bragð. Mennt­aður í hag­fræði frá Yale og hefur verið áber­andi í stjórn­mála- og við­skipta­lífi Gana und­an­farna ára­tugi. Hann segir að sér hafi verið varpað í fang­elsi vegna stjórn­ar­and­stöðu sem hafi verið fylli­lega lög­mæt. Ég spyr hvernig sú reynsla hafi verið.

− Það var erfitt, fyrsti dag­ur­inn, fyrsta vikan, fyrsti mán­uð­ur­inn, fyrsta árið. Svo aðlag­ast maður. Ég átti góða fjöl­skyldu. Ég sat ekki auðum höndum í fang­els­inu heldur fékk ég leyfi til að rækta græn­meti og fékk styrk frá kaþ­ólsku kirkj­unni til að koma því á legg. Í lokin hafði sú ræktun skilað ríf­lega 100 millj­ónum króna inn á banka­bók fang­els­is­ins. Þá var ég færður um set til Elmina sem er við strönd­ina. Ég fékk nunnur til að lána fang­els­inu fyrir bát sem kost­aði 30 millj­ónir og við fórum í útgerð sem borg­aði bát­inn upp á sex mán­uðum. Við náðum að fæða fang­elsið og afgang­inn seldum við á mark­aði. Fang­els­is­vistin betr­aði mig sem ein­stak­ling, jafn­vel þótt mér blöskr­aði að sitja inni fyrir órétt­mætar sakir. Ég kom út betri maður. Ég kynnt­ist því líka hvernig sak­laust fátækt fólk situr inni eftir órétt­láta máls­með­ferð og fær enga lög­fræði­að­stoð. Það er sárt að horfa upp á.

Und­an­farin ár hefur Pianim verið atkvæða­mik­ill í atvinnu­líf­inu í Gana og beitt sér fyrir ýmiss­konar nýsköpun. Synir hans starfa í London og annar þeirra var giftur dóttur fjöl­miðla­mó­gúls­ins Róberts Murdoch.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár