Horft til bresku leiðarinnar við skattaívilnun

Skattaí­vilnun til hluta­bréfa­kaupa hefur verið til umræðu hér á landi að und­an­förnu. Hag­fræð­ingur veltir fyrir sér, í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar, hvernig málum er háttað í Bret­landi og hvað megi læra af því.

„Skatt­frjálsir sparn­að­ar­reikn­ingar slá nokkrar flugur í einu höggi. Þeir hvetja til sparn­aðar og auka fram­boð fjár­mögn­unar í hag­kerf­inu, án þess þó að beina sparn­aði í einn far­veg frekar en annan.“

Þetta segir í grein Haf­steins Hauks­sonar, hag­fræð­ings hjá GAMMA, í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar. Í grein­inni veltir hann fyrir sér leið sem farin er í Bret­landi, þegar kemur að skattaí­vilnun til hluta­bréfa­kaupa. Þá fjallar hann einnig um sparn­að­ar­upp­bygg­ingu fólks, og hvernig hún eigi sér stað á Íslandi. Í hverju eignir fólks liggja og hvernig breyt­ingar verða á þeirri stöðu með tím­anum.

[adspot]

Haf­steinn fjallar sér­stak­lega um skatt­frjálsa sparn­að­ar­reikn­inga. „Þeir skapa hvata fyrir minni fjár­festa til þess að kynna sér mis­mun­andi ávöxt­un­ar­mögu­leika og leggja mat á kosti þess að fjár­festa í verð­bréfum, hvort sem er á skipu­legum verð­bréfa­mark­aði eða með fjár­fest­ingum í verð­bréfa­sjóðum, og stuðla að upp­lýstri umræðu um fjár­mál ein­stak­linga. Að lokum jafna þeir stöðu efna­meiri fjár­festa og efna­minni fjár­festa með því að ein­falda minni fjár­festum að ávaxta sparifé sitt og ívilna spari­fjár­eig­endum hlut­falls­lega meira eftir því sem þeir hafa minna til að leggja fyrir,“ segir í grein­inni.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár