Ragnar Þór: Kerfið í dag afsprengi uppgjafar og aumingjaskapar forystunnar

Formaður VR segir að for­ystu ASÍ verði aldrei fyr­ir­gefið aðgerð­ar­leysi sitt við hags­muna­gæslu almenn­ings.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Úr safni

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að for­ysta Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) verði aldrei fyr­ir­gefið aðgerð­ar­leysi sitt við hags­muna­gæslu almenn­ings. Þeir sem eigi með réttu að halda uppi vörnum fyrir vinn­andi fólk hafi ekki unnið vinn­una sína árum eða ára­tugum saman. „Kerfið og staðan sem við erum með í dag er afsprengi þess að launa­fólk er alið á upp­gjöf og aum­ingja­skap for­yst­unnar og verður henni minnst fyrir það af kom­andi kyn­slóðum þegar fram líða stundir.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu og umræðum á Facebook þar sem til umfjöll­unar er ný skýrsla ASÍ um þróun skatt­byrði launa­fólks á tíma­bil­inu 1998 til 2016. Í skýrsl­unni, sem var birt í gær, kemur fram að aukn­ingin á skatt­byrði sé lang­mest hjá tekju­lægstu hóp­un­um, mun­ur­inn á skatt­byrði tekju­lægstu hópanna og þeirra tekju­hærri hafi minnkað og dregið hafi úr tekju­jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins. Kaup­mátt­ar­aukn­ing síð­ustu ára hefur þannig síður skilað sér til launa­fólks með lægri tekjur en þeirra tekju­hærri vegna vax­andi skatt­byrði. Skatt­byrði tekju­lægstu lands­manna hafi auk­ist úr fjögur pró­sent árið 1998 í 16 pró­sent árið 2016.

Ragnar Þór, sem stýrir stærsta stétt­ar­fé­lagi lands­ins, deilir frétt RÚV um skýrsl­una þar sem fram kemur að mán­að­ar­legar ráð­stöf­un­ar­tekjur tækju­lægstu hópanna gætu verið 100 þús­und krónum meiri ef skatt­byrði þeirra væri sú sama og árið 1998. Í stöðu­upp­færslu spyr hann hvort ASÍ sé loks að hætta „blekk­inga­leiknum um kaup­mátt og við­ur­kenna það sem almenn­ingur hefur haldið fram um ára­bil? Hverjir bera ábyrgð á þess­ari stöðu og ára­tuga, algjöru, sinnu­leysi gagn­vart stjórn­völdum sem hafa kerf­is­bundið étið upp kaup­mátt þeirra sem lægstar hafa tekj­urnar? Forystu ASÍ verður aldrei fyr­ir­gefið aðgerð­ar­leysið við hags­muna­gæslu almenn­ings!“

Í ummælum við færsl­una bætir Ragnar við og segir að ástæður þess að „fjár­mála­kerfið fékk að valta yfir sak­lausa borg­ara á skítugum skónum og hirða sem mest það mátti og stjórn­völd að skatt­leggja þá efna­minni og milli­tekju­hópa þannig að kaup­máttur er vart mæl­an­legur eða í mínus er vegna þess að mót­staðan er engin. Af hverju erum við á loka­metr­unum með að koma upp einka­reknu heil­brigð­is­kerfi á Íslandi þegar um 90% þjóð­ar­innar er þvi mót­fallin? Vegna þess að þeir sem eiga með réttu að halda uppi vörnum fyrir vinn­andi fólk eru ekki að vinna vinn­una sína og hafa ekki gert árum eða ára­tugum saman. Kerfið og staðan sem við erum með í dag er afsprengi þess að launa­fólk er alið á upp­gjöf og aum­ingja­skap for­yst­unar og verður henni minnst fyrir það af kom­andi kyn­slóðum þegar fram líða stundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár