Skattbyrði tekjulægstu hefur aukist langmest á Íslandi

Allir tekju­hópar borga stærra hlut­fall af tekjum sínum í skatta en þeir gerðu fyrir tæpum 20 árum síðan. Byrði tekju­lægstu hefur auk­ist mest, mun­ur­inn á skatt­byrði þeirra og hinna rík­ustu hefur minnkað og tekju­jöfn­un­ar­hlut­verk skatt­kerfis dreg­ist saman.

Ný skýrsla hag­deildar Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) um þróun skatt­byrði launa­fólks sýnir að skatt­byrði hefur auk­ist í öllum tekju­hópum hér­lendis frá árinu 1998 til loka árs 2016. Aukn­ingin er hins vegar lang­mest hjá tekju­lægstu hóp­unum, mun­ur­inn á skatt­byrði tekju­lægstu hópanna og þeirra tekju­hærri hefur minnkað og dregið hefur úr tekju­jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins. Kaup­mátt­ar­aukn­ing síð­ustu ára hefur þannig síður skilað sér til launa­fólks með lægri tekjur en þeirra tekju­hærri vegna vax­andi skatt­byrði.

Í til­kynn­ingu vegna útgáfu skýrsl­unnar segir: „Þegar skoðað er sam­spil tekju­skatts, útsvars og per­sónu­af­sláttar auk barna- og vaxta­bóta hefur t.d. skatt­byrði para á lág­marks­launum með tvö börn og lág­marks eigið fé í hús­næði (20 pró­sent) í heild­ina auk­ist um 21 pró­sentu­stig á umræddu tíma­bili.“

Persónuafsláttur fylgir ekki launaþróun

Þessa þróun, að skatt­byrði tekju­lægri hækki mest, má helst rekja til þess að per­sónu­af­sláttur hefur ekki fylgt launa­þróun. Þá hafi stuðn­ingur vaxta­bóta­kerf­is­ins minnkað veru­lega á tíma­bil­inu og fækkað í þeim hópi sem fær greiddar vaxta­bætur. Kjarninn greindi til að mynda frá því nýverið að almennar vaxta­bætur hafa lækkað um 7,7 millj­arða króna frá árinu 2010 og þeim þeim fjöl­skyldum sem fá þær hefur fækkað um rúm­lega 30 þús­und á saman tíma.

Í skýrslu ASÍ segir einnig að íslenska barna­bóta­kerfið sé veikt og að það dragi ein­göngu úr skatt­byrði ein­stæðra for­eldra og allra tekju­lægstu para. Þá hafi húsa­leigu­bóta­kerfið þró­ast með sama hætti og önnur til­færslu­kerfi og því hefur dregið úr stuðn­ingi við launa­fólk á leigu­mark­aði. Nýtt hús­næð­is­bóta­kerfi bæti nokkuð hag lág­launa ein­stak­linga og ein­stæðra for­eldra á leigu­mark­aði en lág­launa pör fá eftir sem áður lít­inn eða engan stuðn­ing vegna leigu­kostn­aðar.

Ríku verða ríkari

Kjarninn hefur ítrekað greint frá því á und­an­förnum árum að mis­skipt­ing eigna er að aukast mjög hratt hér­lendis. Í frétta­skýr­ingu sem birt­ist 4. októ­ber 2016 kom fram að eigið fé Íslend­inga hefði tvö­fald­ast á sex árum, eða auk­ist um 1.384 millj­arða króna.

Þessi nýi auður skipt­ist ekki jafnt á milli hópa. Af hreinni eign sem orðið hefur til frá árinu 2010 hafði rík­asta tíu pró­sent lands­manna, alls 20.251 fjöl­skyldur, tekið til sín fjórar af hverjum tíu nýjum krónum sem orðið höfðu til í íslensku sam­fé­lagi. Þessi hópur átti 1.880 millj­arða króna í lok árs 2015, eða 64 pró­sent af eignum lands­manna.

Á sama tíma skuld­aði fátæk­ari helm­ingur þjóð­ar­inn­ar, rúm­lega 100 þús­und vinn­andi manns, 211 millj­arða króna umfram eignir sín­ar. Það þýðir að mun­ur­inn á eig­in­fjár­stöðu fátæk­asta helm­ings þjóð­ar­innar og rík­ustu tíu pró­senta hennar var 2.091 millj­arðar króna.

Opin­berar tölur van­meta hversu mikið hinir ríku á Íslandi efn­ast ár frá ári. Ástæðan er sú að þær mæla að fullu leyti t.d. hækkun fast­eigna­verðs (sem útskýrir 82 pró­sent af allri eig­in­fjár­aukn­ingu Íslend­inga á síð­ustu sex árum og nán­ast alla eigna­aukn­ingu fátæk­ari hluta lands­manna) en færir eignir í verð­bréfum inn á nafn­virði. Og rík­ustu Íslend­ing­arnir eiga næstum öll verð­bréf á Íslandi.

Lítill hluti hefur nánast allar fjármagnstekjur

7. októ­ber 2016 birti Kjarn­inn svo frétta­skýr­ingu sem byggði á nýjum tölum Rík­is­skatt­stjóra um stað­tölur skatta. Í þeim tölum var hægt að sjá út hversu mikið Íslend­inga þén­uðu í fjár­magnstekjur á árinu 2015. Það eru tekjur sem þeir höfðu af eignum sín­um: t.d. vöxtum af inn­láns­reikn­ingum eða skulda­bréfa­­eign, tekjur af útleigu hús­næð­is, arð­greiðsl­­ur, hækkun á virði hluta­bréfa eða hagn­aður af sölu fast­­eigna eða verð­bréfa.

Í töl­unum kom í ljós að tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna þén­aði sam­tals 42 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2015. Um er að ræða undir tvö þús­und fram­telj­end­ur. Þessi hópur tók til sín 44 pró­sent af öllum fjár­magnstekjum sem urðu til hér­lendis á árinu 2015. Það þýðir að 99 pró­sent þjóð­ar­innar skipti með sér 56 pró­sent fjár­magnstekna.

3.862 fjölskyldur fengu hagnað upp á 29 milljarða

Fyrr í þessum mán­uði greindi Kjarninn svo frá því að tekjur ein­stak­linga á Íslandi af arði námu 43,3 millj­örðum króna í fyrra. Þær juk­ust um 24,6 pró­sent milli ára og er arður nú orðin stærsti ein­staki liður fjár­magnstekja rík­is­sjóðs. Fjöldi þeirra sem töldu fram arð vegna árs­ins 2016 var 14.545 og fjölg­aði um 685 milli ára, eða um tæp­lega fimm pró­sent.

Sölu­hagn­aður jókst um 39,1 pró­sent milli ára þrátt fyrir að fjöl­skyldum sem töldu fram sölu­hagnað hafi ein­ungis fjölgað um 5,4 pró­sent. Það bendir til þess að fámennur hópur sé að taka til sín þorra þess arðs sem verður til í íslensku sam­fé­lagi.

Sölu­hagn­aður var alls 32,3 millj­arðar króna í fyrra og þar af nam sala hluta­bréfa 28,7 millj­örðum króna og hækk­aði um 38,3 pró­sent á milli ára. Á sama tíma fjölg­aði fjöl­skyldum sem telja fram sölu­hagnað vegna hluta­bréfa um ein­ungis 3,7 pró­sent í 3.682 alls. Fjöl­skyldur á Íslandi voru um 197 þús­und í fyrra. Það þýðir að tæp­lega tvö pró­sent fjöl­skyldna lands­ins greiði fjár­magnstekju­skatt vegna sölu­hagn­aðar á hluta­bréfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár