Inga Sæland: „Ég er sennilega svona Marine Le Pen týpa“

Flokkur fólks­ins mælist með 8,4 pró­sent fylgi og næði fimm mönnum á þing ef kosið yrði í dag. Formaður hans er sátt með að vera kölluð popúlisti.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist sátt við að vera kölluð popúlisti. „Ég hef ákveðið að taka jákvæða pól­inn í hæð­ina og segja, ja popúlisti er bara svona ein­hver svaka­lega vin­sæll. En ég veit nátt­úru­lega hvað hug­takið er útbreitt fyrir. Ég er senni­lega svona Marine Le Pen týpa sem er verið að mála mig af þeim sem munu hvort sem er aldrei kjósa flokk­inn. Af okkur stafar ógn vegna þess að við erum boð­beri breyt­inga. Við erum ein­læg og heið­ar­leg og við vinnum af hug­sjón og við ætlum að halda því áfram og við erum bara sátt við að vera popúlistar. Ég ætla að segja að það þýði bara það að vera vin­sæll í dag.“ Þetta kom fram í sam­tali hennar við frétta­stofu RÚV.

[links] Marine Le Pen er fyrr­ver­andi for­maður frönsku Þjóð­fylk­ing­ar­innar (f. Front National) og var for­seta­fram­bjóð­andi hennar fyrr á þessu ári. Þar náði hún í aðra umferð en tap­aði fyrir Emmanuel Macron. Í kosn­inga­bar­átt­unni lagði Le Pen áherslu á að vilja tak­marka fjölda inn­flytj­enda sem Frakk­land tæki á móti og sagð­ist ætla að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Frakk­lands í Evr­ópu­sam­band­inu.

Árangur Le Pen í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna var sá besti sem fram­bjóð­andi flokks hennar hafði nokkru sinni náð – hún fékk um ell­efu millj­ónir atkvæða – en olli samt sem áður von­brigðum. Fylgi Marine Le Pen var mest í „ryð­belti“ Norð­ur­-Frakk­lands og hjá íhalds­söm­um og öldruð­um íbúum í suð­aust­ur­hluta lands­ins.

Inga vakti nýverið athygli fyrir grein sem hún skrif­aði í Morg­un­blaðið í júní, í kjöl­far þess að sér­sveit lög­regl­unnar hafði verið vopnuð á nokkrum við­burðum sem haldnir voru í Reykja­vík. Í grein­inni sagði hún að Íslend­ingar þyrftu að við­ur­kenna þá ógn sem fylgj­endur öfga-íslams bera með sér. Að forð­ast þá umræðu væri hrein og klár og afneitun. „Sérsveit lög­regl­unnar undir alvæpni sýnir sig á almanna­færi og það án þess að hættu­stig sé aukið opin­ber­lega. Hvað vita þeir sem við vitum ekki? Hvers vegna vill eng­inn taka umræð­una um ástandið í Evrópu og þá stað­reynd að Ísland til­heyrir henni, þótt eng­inn hafi verið sprengdur eða myrtur hér í hryðju­verka­árás enn sem komið er? „Það er kom­inn tími til að taka umræð­una og löngu kom­inn tími til að taka á árásum þeirra sam­landa okkar sem vilja og munu kalla okkur öllum illum nöfnum. Þeirra sömu og vilja breiða út faðm­inn og bjarga öllum heim­inum.“ Mik­il­vægt væri að fella sig ekki á bak við „rétt­trún­að­ar­kenn­ingar“ og treysta því að hryðju­verkaógnin komi ekki til Íslands.

[adspot] Inga segir þó við RÚV að Le Pen sé ekki fyr­ir­mynd sín í stjórn­málum þrátt fyrir að hún hafi sagt sig vera Marine Le Pen týpu .Hún þekki hana ekki neitt og henni gæti ekki verið meira sama um Le Pen. „Ég bara óska þeim alls hins besta sko.“

Ný könnun Gallup sýnir að flokkur hennar myndi fá 8,4 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag og fimm þing­menn. Flokk­ur­inn fékk 3,5 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Næst verður kosið árið 2020 nema að boðað verði til kosn­inga fyrir þann tíma.

Inga segir við RÚV að hún finni fyrir ákalli um breyt­ingar og að flokks­menn hennar séu ekki sáttir við þá stöðu sem sé uppi í sam­fé­lag­inu í dag. Einungis tak­mark­aður þjóð­fé­lags­hópur fái að njóta þeirra gæða sem felist í boð­aðri vel­megun. Þriðj­ungur þjóð­ar­innar sé við og undir fátækra­mörkum og margar fjöl­skyldur séu enn í vanda, sér­stak­lega hús­næð­is­vanda, eftir hrunið 2008. Þá hafi tíu þús­und heim­ili verið tekið af fjöl­skyldum. Inga kallar eftir sam­stilltu átaki stjórn­valda, borg­ar­yf­ir­valda og líf­eyr­is­sjóða við bygg­ingu íbúða og segir að flokkur hennar vilji „bara gjör­sam­lega metta mark­að­inn.“

Um miðjan júlí stóð Flokkur fólks­ins fyrir fundi sem fór fram undir heit­inu „Sum­ar­þing fólks­ins“ í Háskóla­bíói. Hús­fyllir var á fund­inum en ræðu­menn voru Inga Sæland, Ellert B. Schram for­maður Félags eldri borg­ara, Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður Versl­un­ar­manna­fé­lags Reykja­víkur og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness. Fund­ur­inn var hugs­aður sem hvatn­ing­ar­fundur í ljósi þess að þing­menn væru í löngu sum­ar­fríi þrátt fyrir þunga undir­öldu og ósk um rétt­læti í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár