Flokkur fólksins fengi fimm þingmenn en ríkisstjórnin er kolfallin

Ný könnun sýnir að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir myndu ein­ungis fá sam­an­lagt 21 þing­mann ef kosið yrði í dag. Bragð mán­að­ar­ins í stjórn­mál­unum virð­ist vera Flokkur fólks­ins.

Flokkur fólks­ins myndi fá 8,4 pró­sent atkvæða og fimm menn kjörna á Alþingi ef kosið yrði í dag. Rík­is­stjórnin nýtur ein­ungis trausts 32,7 pró­sent kjós­enda og flokk­arnir sem að henni standa myndu ná 21 þing­manni inn á Alþingi miðað við fylgi þeirra í dag, eða ell­efu færri en í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Rík­is­stjórnin er því kol­fallin miðað við stöð­una eins og hún mælist í dag. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup á fylgi stjórn­mála­flokka sem greint var frá í kvöld­fréttum RÚV.

Samkvæmt könn­un­inni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins. 26,5 pró­sent segja að þeir myndu kjósa hann sem myndi þýða að flokk­ur­inn fengi 18 þing­menn. Það er þremur færri þing­menn en flokk­ur­inn er með í dag. 21,2 pró­sent segja að þeir myndu kjósa Vinstri græna sem myndi tryggja flokknum 14 þing­menn, eða fjórum fleiri en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum. Píratar myndu fá 12,9 pró­sent atkvæða (níu þing­menn), Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 11,4 pró­sent (átta þing­menn) og Sam­fylk­ingin 9,1 pró­sent (sex þing­menn). Sam­starfs­flokkar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rík­is­stjórn, Viðreisn og Björt fram­tíð, halda áfram að mæl­ast með mjög lítið fylgi. Viðreisn myndi fá 5,3 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag og rétt skríða inn á þing með þrjá þing­menn. Flokk­ur­inn er með sjö þing­menn í dag. Staðan hjá Bjartri fram­tíð er enn verri. Einungis 3,7 pró­sent aðspurðra í könnun Gallup sögð­ust ætla að kjósa flokk­inn. Það myndi þýða að Björt fram­tíð næði ekki inn manni á þing en flokk­ur­inn hefur nú fjóra þing­menn.

Bragð mán­að­ar­ins í könn­unum virð­ist vera Flokkur fólks­ins, undir for­ystu Ingu Sæland. Alls segj­ast 8,4 pró­sent að þeir myndu kjósa flokk­inn sem myndi tryggja honum fimm þing­menn ef kosið er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár