Húsnæðisverð hefur hækkað þrefalt hraðar en laun

Verð á fjöl­býli í Reykja­vík hefur hækkað þrefalt hraðar en almenn launa­þróun síð­ustu tólf mán­uði, sam­kvæmt til­kynn­ingu Íbúða­lána­sjóðs.

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað hraðar en laun síðasta árið.
Hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað hraðar en laun síð­asta árið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hækkun hús­næð­is­verðs í fjöl­býli í Reykja­vík hefur verið þrefalt hrað­ari en launa­hækkun und­an­farna tólf mán­uði. Þetta kemur fram í nýrri frétta­til­kynn­ingu frá íbúða­lána­sjóði.

Í til­kynn­ing­unni segir að verð á fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi hækkað um 21,4% frá júní 2016, en á sama tíma hækk­uðu laun aðeins um 7,3%. Að sögn Unu Jóns­dóttur, hag­fræð­ings hjá hag­deild Íbúða­lána­sjóðs, er æski­legt að þessar tvær stærðir hald­ist í hendur. Íbúða­lána­sjóður metur það svo að staða þeirra sem eru að reyna að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn sé umtals­vert verri í dag en fyrir ári síðan.

Þróun launa miðað við húsnæðisverð

Þrátt fyrir umrædda hækkun síð­ustu tólf mán­aða virð­ist hafa hægt á henni allra síð­ustu mán­uði. Í júní lækk­aði verð á fjöl­býli um 0,2% frá fyrri mán­uði, en það var fyrsta lækk­unin sem mælist i tvö ár. Á sama tíma jókst vísi­tala launa um 1% milli mán­aða og gæti því verið að þessar stærðir fær­ist nær hvorri annarri með hæg­ari vexti fast­eigna­verðs.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár