Hyggjast erfðabreyta nautgripum svo þeir þoli hlýnun jarðar betur

Vís­inda­menn kanna leiðir til þess að gæði land­bún­að­ar­af­urða skerð­ist ekki við lofts­lags­breyt­ingar.

Hlýnun jarðar er vandi sem mann­kynið stendur frammi fyrir og er orðið ljóst að lofts­lags­breyt­ingar munu hafa áhrif á ýmsa þætti í lífi okkar í náinni fram­tíð. Eitt þess­ara vanda­mála er að dýr sem nýtt eru til mann­eldis þola aukið hita­stig mis­vel.

Á svæðum þar sem hiti er nú þegar hár má búast við að auk­inn hiti hafi nei­kvæð áhrif á vel­ferð dýra sem síðan getur leitt til minni gæða í afurðum þeirra.

Rann­sókn­ar­hópur við háskól­ann í Flórída (Uni­versity of Florida Institute of Food and Agricultural Sciences) hlaut nýverið þriggja ára styrk til að vinna að lausn á þessum vanda með nýstár­legri aðferð. Vís­inda­menn­irnir hyggj­ast erfða­breyta naut­gripum svo þeir þoli heitt lofts­lag betur.

Verk­efnið er enn á frum­stigi en fyrsta verk er að rann­saka naut­gripa­kyn sem nefn­ist Brangus. Brangus-naut­gripir þola heitt lofts­lag og raka vel og verður til að byrja með reynt að bera kennsl á hvaða erfða­þættir það eru sem gera þeim það kleift. Þegar þær nið­ur­stöður liggja fyrir von­ast rann­sókn­ar­hóp­ur­inn til þess að hægt verði að nýta erfða­tækni til að bæta hita­þol naut­gripa­stofna í Banda­ríkj­unum.

Skiptar skoð­anir eru á rann­sóknum sem þessum og eru ekki allir sann­færðir um ágæti erfða­tækn­innar. Að auki fjölgar þeim sem álíta að tak­mörkun eða úti­lokun á neyslu dýra­af­urða sé besta leiðin til að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum, enda er kolefn­is­fót­spor naut­gripa­rækt­unar afar stórt. Þeir sem ekki geta hugsað sér lífið án kjöts og osta eru hins vegar lík­legir til að halda áfram að leita leiða til að halda neyslu dýra­af­urða áfram.

Fréttin birt­ist fyrst á vefnum Hvat­inn.­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár