Krónan hefur veikst umtalsvert síðustu tvær vikur

Gengi íslensku krón­unnar hefur lækkað umtals­vert gagn­vart evru, pundi og Banda­ríkja­dal á síð­ustu tveimur vikum.

Gengislækkun krónu gagnvart evru, pundi og dollara má líklega rekja til fjárfestinga lífeyrissjóðanna
Geng­is­lækkun krónu gagn­vart evru, pundi og doll­ara má lík­lega rekja til fjár­fest­inga líf­eyr­is­sjóð­anna

Á síð­ustu tveimur vikum hefur nokkuð haldið aftur að geng­is­styrk­ingu krón­unnar, en gengi hennar gagn­vart evru, pundi og Banda­ríkja­dali hefur veikst umtals­vert á síð­ustu tveimur vikum. Samhliða geng­is­lækk­un­inni hafa hluta­bréf HB Granda og Icelandair hækkað.

Gengi íslensku krón­unnar hefur styrkst und­an­farin ár sam­hliða sterkum þjón­ustu­út­flutn­ingi vegna ferða­þjón­ust­unnar. Síðustu tvær vikur hefur hún hins vegar veikst gagn­vart pundi, evru og Banda­ríkja­dal.

[links]Hröðust hefur geng­is­lækk­unin verið gagn­vart pund­inu, eða um 6% á rúmri viku. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans mætti örugg­lega skýra geng­is­lækkun krón­unnar að miklu leyti með því að líf­eyr­is­sjóðir séu farnir að fjár­festa erlendis, með til­heyr­andi útstreym­is­á­hrifum.

Áhrif geng­is­veik­ing­ar­innar er hægt að sjá í gengi íslenskra hluta­fé­laga sem gera upp í erlendri mynt, en HB Grandi hefur hækkað um 6,58% og Icelandair um 2,31% í Kaup­höll­inni það sem af er dags. Einnig má búast við ein­hverri veik­ingu í fram­tíð­inni ef fjár­fest­ingar og skuld­setn­ingar íslend­inga í erlendum gjald­miðlum færu að aukast.

[adspot]

Kjarninn hefur fjallað um breytt neyslu­mynstur ferða­manna á und­an­förnum mán­uðum, en korta­velta hvers ferða­manns virð­ist hafa minnkað um 20% á síð­ustu fimm árum vegna geng­is­styrk­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár