FA leggst gegn beiðni Markaðsráðs kindakjöts: „Stórkostlega gallaðar hugmyndir”

Félag Atvinnu­rek­enda hefur sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu bréf þar sem það leggst gegn beiðni Mark­aðs­ráðs um und­an­þágu frá Sam­keppn­is­lögum.

Félag atvinnu­rek­enda leggst gegn því að Mark­aðs­ráði kinda­kjöts fái beiðni sína um und­an­þágu hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sam­þykkta. Kemur þetta fram á vef félags­ins , en félagið hefur sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu bréf þess efnis.

[links]Í svari við umsagn­ar­beiðni Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins heldur FA því fram að eng­inn ávinn­ingur sé fyrir neyt­endur með und­an­þág­unni, þvert á móti sé það þeim til tjóns vegna þess að verði sé haldið uppi. Skilyrði fyrir beit­ingu 15. greinar sam­keppn­islaga séu því ekki upp­fyllt.

„Einhvers konar sam­starf um mark­aðs­setn­ingu kann að vera lög­mætt og má í því sam­hengi visa til þess ágæta starfs sem unnið er á vett­vangi Íslands­stofu til að mark­aðs­setja og kynna íslenskt lamba­kjöt erlendis. Það sama á ekki við um annað sam­starf, sér í lagi skipt­ingu mark­aða og sam­komu­lag um að tak­marka vöru­fram­boð á mark­aði sem mun halda uppi verði,“ segir í bréfi FA.

Í beiðni Mark­aðs­ráðs kemur fram að gert sé ráð fyrir að sam­starf slát­ur­leyf­is­hafa feli í sér að þeir skuld­bindi sig til að flytja út 35% af fram­leiðslu sinni. Í bréfi FA segir hins vegar að hug­myndir mark­aðs­ráðs­ins um útflutn­ings­skyldu á slát­ur­leyf­is­hafa séu „stór­kost­lega gall­aðar“ og muni ein­göngu skaða hags­muni neyt­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár