Vill undanþágu vegna útflutnings kindakjöts

Mark­aðs­ráð kinda­kjöts hefur sótt um und­an­þágu hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu til þess að auð­velda fyrir útflutn­ingi kinda­kjöts. Und­an­þágan felur í sér sam­starf við slát­ur­leyf­is­hafa.

Verði undanþágan samþykkt má búast við að staða íslensk kindakjöts á erlendum mörkuðum batni
Verði und­an­þágan sam­þykkt má búast við að staða íslensk kinda­kjöts á erlendum mörk­uðum batni Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mark­aðs­ráð kinda­kjöts hefur óskað eftir und­an­þágu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna útflutn­ings á kinda­kjöti. Vill mark­aðs­ráðið efna til sam­starfs slát­ur­leyf­is­hafa um útflutn­ing og mark­aðs­setn­ingu á erlendum mörk­uðum.

Und­an­þágan gerir Mark­aðs­ráði kinda­kjöts kleift að efta til sam­starfs slát­ur­leyf­is­hafa um útflutn­ingi og mark­aðs­setn­ingu á erlendum mörk­uðum. Samkvæmt mark­aðs­ráð­inu er mark­miðið að vinna með hag­kvæm­ari hætti að efl­ingu útflutn­ings og mark­aðs­setn­ingar kinda­kjöts á erlendum mörk­uðum.

„Við erum að fram­leiða hágæða vörur við ein­stakar aðstæður. Við teljum að þessi sér­staða geti skapað mikil tæki­færi til mark­aðs­setn­ingar kinda­kjöts á erlendum mörkum sé rétt staðið að málum” segir Oddný Steina Vals­dóttir, for­maður Mark­aðs­ráðs kinda­kjöts.

í sam­tali við Kjarnann segir Oddný Steina und­an­þág­una vera mik­il­væga fyrir útflutn­ing­inn, sér­stak­lega í ljósi erf­iðra aðstæðna vegna núver­andi gengis krón­unnar.

“Sauð­fjár­bændur hafa þurft að taka á sig afurð­ar­verðs­lækk­anir á und­an­förnum árum. Með öfl­ugra útflutn­ings­starfi er mark­miðið að breyta þeirri þróun og auka stöð­ug­leika í útflutn­ingi.“

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir í sam­tali við Kjarnann að sam­kvæmt lögum sé mögu­leiki á að veita slíkar und­an­þágur. Hins vegar þurfi að vera hægt að sýna fram á að aðgerð­irnar hafi jákvæð áhrif, ekki ein­ungis á við­skipta­að­ila heldur líka neyt­endur.

Ósk Mark­aðs­ráðs til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins felur í sér und­an­þágu fyrir næstu tvö árin, eða til 1. Sept­em­ber 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár