Þorgerður Katrín: Ekkert óeðlilegt við umsókn að undanþágu

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra segir ósk Mark­aðs­ráðs kinda­kjöts um und­an­þágu vegna útflutn­ings kinda­kjöts hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu ekki óeðli­lega.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir það ekk­ert óeðli­legt að útflutn­ings­fyr­ir­tæki nýti sér þær laga­heim­ildir sem séu til staðar til þess að liðka fyrir útflutn­ing. Útflutn­ings­skylda komi á hinn bóg­inn ekki til greina að hennar hálfu.

Þetta segir ráð­herr­ann í sam­tali við Kjarnann þegar hún var aðspurð um afstöðu sína gagn­vart umsókn Mark­aðs­ráðs kinda­kjöts um und­an­þágu hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Þor­gerður bendir á að offram­boð sé á kinda­kjöti á Íslandi og sjái Sam­keppn­is­eft­ir­litið ekk­ert að umsókn­inni sé sam­starf Mark­aðs­ráðs við slát­ur­leyf­is­hafa lítið annað en jákvætt.

Ráð­herr­ann birti fyrr á þessu ári drög að frum­varpi með það mark­mið að end­ur­skoða sam­keppn­is­stöðu Mjólk­ur­sam­söl­unnar, en frum­varpið fól meðal ann­ars í sér end­ur­skoðun á inn­flutn­ings­kvóta á mjólk­ur­vörum.

Í sam­tali við Kjarnann segir ráð­herra einnig að afstaða hennar gagn­vart útflutn­ings­kyldu sé vel þekkt, en hún er andsnúin henni þar sem hún sé ekki endi­lega til hags­bóta fyrir neyt­endur. Þess vegna hefði hún engar athuga­semdir við þessa und­an­þágu að því gefnu að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykki hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár