Stefna Ástráðs gegn íslenska ríkinu birt

Kjarninn birtir stefnu Ástráðs Har­alds­sonar gegn íslenska rík­inu. Hann vill að ákvörðun dóms­mála­ráð­herra um skipun dóm­ara við Lands­rétt verði ógild.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ástráður Har­alds­son hefur stefnt íslenska rík­inu vill að ákvörðun Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um að leggja ekki til að hann yrði skip­aður í stöðu dóm­ara við Lands­rétt verði ógild og jafn­framt eða til vara að ógilt verði sú ákvörðun að leggja til við for­seta Íslands að stefn­andi veðri ekki meðal þeirra 15 sem skip­aðir voru í starf dóm­ara við Lands­rétt. Þetta kemur fram í stefnu sem Jóhannes Karl Sveins­son, lög­maður Ástráðs, hefur sent Kjartani Bjarna Björg­vins­syni hér­aðs­dóm­ara í dag. Kjarninn birtir stefn­una í heild sinni hér.

[links]

Í henni er þess einnig kraf­ist að skaða­bóta­réttur verði við­ur­kenndur og að íslenska ríkið greiði Ástráði eina milljón króna í miska­bætur. Þá er farið fram á að ríkið greiði allan máls­kostnað. Farið hefur verið fram á flýti­með­ferð í mál­inu.

Ástráður var einn þeirra fjög­urra sem dóm­nefnd hafði úrskurðað hæf­asta til að vera skip­aðir í rétt­inn, en dóms­mála­ráð­herra ákvað að víkja af lista sínum svo hún gæti skipað fjóra aðra.

Í stefnu Ástráðs segir að hann byggi kröfu sína um ógild­ingu einkum á því að Sigríður hafi við und­ir­bún­ing „hinnar umdeildu ákvörð­unar bæði brotið gegn máls­með­ferðar- og efn­is­reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins.“ Meg­in­reglan um skipan í dóm­ara­starf bygg­ist á fag­legu hæfn­is­mati dóm­nefndar og öll frá­vik „frá því mati þurfi að byggja á sér­stökum rök­stuðn­ingi, brýnum og gagn­sæjum ástæðum, sem og vand­aðri með­ferð til und­ir­bún­ings ákvörðun. Geðþótti ráð­herra og sjón­ar­mið valin að hent­ug­leikum í hvert sinn mega aldrei ráða. Tryggt þarf að vera að hæf­asti umsækj­and­inn hljóti starfið og máls­með­ferð þarf að vera til þess falllin að tryggja að svo verði.“

[adspot]

Ástráður álitur að til­laga Sigríðar um hverja ætti að skipa í Lands­rétt, og með­ferð hennar á Alþingi sem hafi farið eftir „ein­földum flokkspóli­tískum línum“ sýni að engin af þeim kröfum sem gerðar séu til slíkrar ákvörð­unar hafi verið fram­fylgt. „Tillaga ráð­herra var þvert á móti lítt und­ir­búin, rann­sókn upp­fyllti ekki kröfur stjórn­sýslu­laga og rök­stuðn­ingur var ófull­nægj­andi, almenns eðlis. Rök­stuðn­ingur ráð­herra veitti engar upp­lýs­ingar um hvers vegna þeir 4 umsækj­endur sem voru meðal hinna 15 hæf­ustu sam­kvæmt mati dóm­nefndar voru það ekki að mati ráð­herra. Raunar er ekk­ert á þá minnst í rök­stuðn­ingi ráð­herra.“

Í stefn­unni kemur enn fremur fram að ekki sé ljóst til hvaða þátta dóms­mála­ráð­herra vís­aði til í rök­stuðn­ingi sínum fyrir að breyta röðun umsækj­enda frá því sem nefndin hafði mælt með og að svo virð­ist sem að Sigríður leggi til grund­vallar að aðrar kröfur en almennt hæfi séu frá­víkj­an­legar. Ráðherra geti valið í hvert og eitt sinn hvernig hann stendur að vali dóm­ara. „Það stenst ekki. Sérlega lang­sótt er að ráð­herra telj­ist eiga ein­hvers konar frjálst mat við veit­ingu dóm­ara­starfa og hafa dóm­stólar fyrir löngu hafnað slíkri ráða­gerð.“

Bent er á að þótt ráð­herr­ann hafi sagt að hún hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að 24 af umsækj­end­unum 33 væru hæf­astir sam­kvæmt hennar mati hafi það ekki verið til­greint hverjir þeir 24 séu, utan þeirra 15 sem hún til­nefndi og þeirra fjög­urra sem færðir voru af til­nefn­ing­ar­list­anum. Engin rök­stuðn­ingur hafi verið settur fram fyrir því hvers vegna þeim fjórum umsækj­endum sem hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herr­ans var vikið til hliðar, né hvers vegna aðrir voru taldir hæf­ari en þeir. „Sé tekið mið af hinum óljósu sjón­ar­miðum um dóm­ara­reynslu virð­ist ekki rök­rétt að taka Jón Hösk­ulds­son af list­anum. Þá eru aðrir í hópi ráð­herr­ans með jafn­mikla eða minni dóm­ara­reynslu en Eiríkur Jónsson. Ekki er útskýrt hvers vegna ára­tug­a­reynsla stefn­anda sem lög­manns, kenn­ara og fræði­manns er látin þoka fyrir mun fábreytt­ari og skemmri reynslu ann­arra.“

Allt beri þetta að þeim brunni að „hinn fábrotni rök­stuðn­ingur ráð­herr­ans stenst ekki skoðun og er með öllu ófull­nægj­andi grund­völlur fyrir því að vikið sé frá mati dóm­nefndar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár