Tíu staðreyndir um skipan dómara í Landsrétt

Skipan dóm­ara við nýjan Lands­rétt er gríð­ar­lega umdeild. Fjallað var ítar­lega um málið í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarnans. Og hér er yfir­lit yfir aðal­at­riði þess.

Jón Steindór Valdimarsson
Jón Steindór Valdi­mars­son
  1. Lengi hafði verið rætt um að stofna þyrfti nýtt milli­dóm­stig á Íslandi. Á árunum eftir hrunið voru margir sér­fræð­ingar á því að nauð­syn­legt væri að setja það á fót til að létta álagi af Hæsta­rétti en tryggja að sönn­un­ar­færsla færi fram á tveimur dóm­stigum. Und­ir­bún­ings­nefnd var skipuð og hún skil­aði af sér skýrslu árið 2014. Í maí 2016 sam­þykkti Alþingi svo frum­varp þess efnis að hið nýja milli­dóms­stig, Lands­réttur, yrði stofnað.
  2. Ákveðið var að dóm­arar í Lands­rétti yrðu 15 tals­ins og sam­hliða yrði dóm­urum við hér­aðs­dóm­stóla fjölgað úr 38 í 42. Dómurum við Hæsta­rétt Íslands yrði hins vegar fækkað úr níu í sjö.
  3. Þann 10. febr­úar 2017 voru emb­ætti 15 dóm­ara við Lands­rétt aug­lýst til umsóknar, en rétt­ur­inn mun hefja starf­semi sína í byrjun árs 2018. Alls sóttu 37 um stöð­urnar, fjórtán konur og 23 karlar. Fjórir drógu síðar umsóknir sínar til baka.
  4. Árið 2010 var lögum um skipan dóm­ara breytt þannig að fimm manna dóm­nefnd var sett á lagg­irnar til að velja dóm­ara og vægi ákvörð­unar nefnd­ar­innar aukið þannig að ráð­herra yrði bund­inn við nið­ur­stöðu hennar. Þessar breyt­ingar voru m.a. gerðar til að auka til­trú á dóm­stóla og þrí­skipt­ingu valds á Íslandi í kjöl­far afar umdeildra skip­ana dóm­ara þar sem rök­studdur grunur var um að annað ef hæfni hefði ráðið för við skipun. Er hægt að nefna skipun Þor­steins Dav­íðs­son­ar, sonar Dav­íðs Odds­son­ar, í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara án þess að hann hafi verið tal­inn nálægt því hæf­astur umsækj­enda. Það má líka rifja upp skipan Ólafs Barkar Þor­valds­son­ar, náfrænda Dav­íðs, í emb­ætti Hæsta­rétt­ar­dóm­ara þrátt fyrir að þrír umsækj­endur hafi verið taldir hæf­ari. Laga­breyt­ingin gerði þó ráð fyrir að dóms­mála­ráð­herra geti vikið frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar og lagt nýja til­lögu fyrir Alþingi til sam­þykktar, sam­kvæmt lög­unum. Í ljósi þess að skipan í Lands­rétt var umfangs­mesta nýskipun dóm­ara í Íslands­sög­unni var ákveðið að list­inn yfir þá sem til­nefndir yrðu til verks­ins yrði lagður fyrir Alþingi óháð því hvort dóms­mála­ráð­herra legði til breyt­ingar eða ekki. Um yrði að ræða fyrsta skipti sem Alþingi kæmi að skipun dóm­ara.
  5. 12. maí birti Kjarninn lista yfir þá 15 sem dóm­nefndin hafði metið hæf­asta til að sitja í Lands­rétti. Um er að ræða þann lista sem sendur hafði verið út til umsækj­enda um emb­ættin. Það vakti athygli að dóm­nefndin hefði talið nákvæm­lega 15 umsækj­endur hæfa til að gegn nákvæm­lega 15 emb­ættum. Um var að ræða tíu karla og fimm konur. Þeir sem voru á list­anum voru: Aðal­steinn E. Jón­as­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, Ást­ráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, Davíð Þór Björg­vins­son pró­­fessor við laga­­deild Háskóla Íslands, Eiríkur Jóns­son pró­­fessor við laga­­deild Háskóla Íslands, Her­vör Þor­valds­dóttir hér­aðs­dóm­ari, Ing­veldur Ein­ars­dóttir settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hæsta­rétt­­ar­lög­­maður, Jóhannes Sig­urðs­son hæsta­rétt­­ar­lög­­maður, Jón Hösk­ulds­son hér­­aðs­­dóm­­ari, Krist­björg Steph­en­sen borg­ar­lög­maður, Oddný Mjöll Arn­ar­dótt­ir pró­­fessor við laga­­deild Háskóla Íslands, Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir hér­­aðs­­dóm­­ari, Sig­urður Tómas Magn­ús­son atvinn­u­lífs­­pró­­fessor við laga­­deild Háskól­ans í Reykja­vík, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­­ar­lög­­maður og Þor­geir Ingi Njáls­son, dóm­stjóri við Hér­aðs­dóm Reykja­ness. Eftir að Kjarninn birti list­ann kom dóms­mála­ráðu­neytið því á fram­færi að dóm­nefndin hefði ekki enn lokið störfum.
  6. 29. maí afhenti Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra for­seta Alþingis til­lögu sín að skipun í emb­ætti 15 dóm­ara við Lands­rétt. Tillaga Sigríðar var önnur en sú sem dóm­nefnd hafði lagt til. Fjórir umsækj­endur sem dóm­nefnd hafði talið á meðal þeirra 15 sem hæf­astir voru í emb­ættin hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herra og í þeirra stað voru fjórir aðrir settir inn á list­ann. Kynja­hlut­föll voru nú þannig að átta karlar og sjö konur yrðu dóm­arar við rétt­inn. Í ljós kom að Sigríður taldi 23 umsækj­endur hæf­asta, en ekki 15, og hún valdi þá sem hún gerði til­lögu um úr þeim hópi. Dóms­mála­ráð­herra rök­studdi þó ekki breytta röðun sína með kynja­sjón­ar­miðum heldur sagð­ist hún hafa aukið vægi dóm­ara­reynslu. Hún lagði ekki fram nein gögn sem sýndu fram á hvernig það hafi verið gert. Ástráður Har­alds­son, einn þeirra sem dóm­nefnd hafði mælt með en Sigríður fjar­lægði af list­anum, sendi sam­dæg­urs bréf til for­seta Alþingis þar sem hann sagði að þau frá­vik sem ráð­herra geri á til­lögu dóm­nefnd­ar­inn­ar upp­fylli á eng­an hátt kröf­ur sem gera verði varð­andi skip­an dóm­ara og sem umboðs­maður Alþing­is og dóm­stól­ar hafi lagt til grund­vall­ar. Um sé að ræða ólög­mæta emb­ætt­is­færslu. Sigríður hafn­aði því algjör­lega.
  7. Daginn eftir, 30. maí, birti Kjarninn lista dóm­nefnd­ar­innar yfir hæfi umsækj­enda. Þar kom í ljós að einn þeirra sem Sigríður fjar­lægði af list­anum, Eiríkur Jónsson, hafði verið með sjö­undu hæstu ein­kunn­ina sam­kvæmt nefnd­inni. Þar kom enn fremur fram að einn þeirra sem Sigríður ákvað að skipa, Jón Finn­björns­son, hafði verið met­inn á meðal þeirra minnst hæfu af nefnd­inni. Hann sat í 30. sæti á list­anum af 33 umsækj­endum. Auk þess var ljóst að rök­stuðn­ingur dóms­mála­ráð­herra, um að auka vægi dóm­ara­reynslu, rím­aði ekki við einu fyr­ir­liggj­andi úttekt­ina á dóm­ara­reynslu. Í 117 blað­síðna ítar­legri umsögn dóm­nefndar um umsækj­endur er reynsla umsækj­enda af dóms­störfum meðal ann­ars borin sam­an. Þar kemur í ljós að þrír umsækj­endur sem lentu neðar en Eiríkur í heild­ar­hæfn­is­mati dóm­nefndar voru með minni dóm­ara­reynslu en hann, en röt­uðu samt sem áður inn á lista Sig­ríðar yfir þá sem hún vill skipa í dóm­ara­sætin 15. Jón Hösk­ulds­son, sem dóm­nefndin setti í 11. sæti, hlaut heldur ekki náð fyrir augum ráð­herra. Jón er þaul­reyndur dóm­ari og hefði átt að fær­ast upp list­ann frekar en niður hann ef slík reynsla væri metin umfram aðra. Í hans stað ákvað Sig­ríður m.a. að skipa Ásmund Helga­son, sem hafði verið settur í 17. sæti af dóm­nefnd. Í umsögn Jóns til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar kemur fram að hann og Ásmundur hafi verið skip­aðir hér­aðs­dóm­arar sama dag, 15. maí 2010. Ásmundur þótti þó hafa eilítið meiri reynslu vegna þess að hann hefur auk þess setið í félags­dómi og verið ad hoc-­dóm­ari í Hæsta­rétti í einu máli. Þá er ótalið að Ólafur Ólafs­son, sem dóm­nefnd mat einn þeirra fjög­urra sem hafi næst mesta dóm­ara­reynslu, hlaut ekki náð fyrir augum Sig­ríðar þrátt fyrir að hafa lent í 27. sæti á upp­haf­legum lista dóm­nefnd­ar, eða þremur sætum ofar en Jón Finn­björns­son, sem Sig­ríður ákvað að til­nefna.
  8. Við­brögðin létu ekki á sér standa. Lög­manna­fé­lag Íslands gagn­rýndi ákvörðun dóms­mála­ráð­herra um að breyta röðun á list­ann og í umsögnum sem hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Jóhannes Karl Sveins­son sendi inn til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar sagð­ist hann hafa verið í áfalli þegar hann las rök­stuðn­ing dóms­mála­ráð­herra. Þau upp­fylli engar lág­marks­kröfur stjórn­sýslu um rök­stuðn­ing og stand­ist auk þess „enga efn­is­lega skoð­un“. Jóhannes Karl segir í umsögn­inni að það sé „al­þekkt að sumir ráða ekki við freist­ing­una að skipa vini sína, skoð­ana­bræður og systur eða jafn­vel ætt­ingja í emb­ætti. Þeir ganga fram hjá þeim sem þeir telja með óheil­brigðar skoð­anir á þjóð­málum eða þeir telja sig eiga eftir að jafna ein­hverjar sakir við. Síð­ustu 10 árin hefur rétt­ar­kerfið glímt við afleið­ingar af skip­unum af þessum toga í emb­ætti dóm­ara. Van­traust og tor­tryggni gripu um sig eftir skip­anir í lok árs 2007 með dap­ur­legum afleið­ingum fyrir alla sem í hlut átt­u[...]Þegar svona for­kast­an­leg vinnu­brögð sjást þá leita menn ann­arra skýr­inga. Lét dóm­ari stjórn­mála­skoð­anir (for­tíð­ar) ráða þegar til­teknir umsækj­endur voru látnir gossa út af dóm­nefnd­ar­list­an­um? Urðu vina- og póli­tísk tengsl til þess að aðrir voru teknir inn í þeirra stað o.s.frv. Svona hugs­anir vill maður ekki þurfa að hlusta á í eigin höfði en það er því miður óhjá­kvæmi­legt. Alþingi er skylt að taka málið til gaum­gæfi­legrar skoð­unar og má ekki taka að sér hlut­verk stimp­ilpúða fyrir fram­kvæmda­valdið í þetta sinn. Það er allt of mikið í húfi!“
  9. Tekist var harka­lega á um málið á Alþingi í kjöl­farið. Stjórn­ar­and­staðan sagði til­lögu dóms­mála­ráð­herra vera alveg órök­studda og kall­aði eftir lengri tíma til að fara yfir málið. Til stóð að afgreiða málið mið­viku­dag­inn 31. maí, og ljúka þing­störfum þann sama dag. Það náð­ist ekki og þetta eina mál varð til þess að þing þurfti að koma saman 1. júní. Þar var hnakkrif­ist um málið og stjórn­ar­liðar kynntu ýmis sjón­ar­mið sín fyrir því að styðja til­lögur ráð­herra. Þau voru t.d. að Alþingi ætti ekki að hafa vald til að taka ákvörðun í svona máli þar sem það bæri ekki ábyrgð, heldur ráð­herr­ann. Aðrir sögðu kynja­sjón­ar­mið hafa ráðið úrslitum og enn aðrir sögð­ust telja að ráð­herr­ann hefði rök­stutt mál sitt nægj­an­lega vel, en hún bar við auknu vægi dóm­ara­reynslu í rök­stuðn­ingi sínum. Stjórn­ar­and­staðan lagði fram frá­vís­un­ar­til­lögu sem var felld 31-30. Hún gerði ráð fyrir meiri máls­með­ferð­ar­tíma fyrir til­lögu ráð­herra. Í kjöl­farið var til­laga ráð­herra sam­þykkt með 31 atkvæða þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar gegn atkvæðum Sam­fylk­ingar, Pírata og Vinstri grænna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sat hjá. Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, VG, og Brynjar Níels­son, Sjálf­stæð­is­flokki, voru ekki við­stödd atkvæða­greiðsl­una, vegna tengsla við umsækj­endur um starf dóm­ara við Lands­rétt. Svandís var gift Ástráði Har­alds­syni og á með honum Börn og eig­in­kona Brynjars er ein þeirra sem ráð­herra skip­aði í Lands­rétt.
  10. Málinu er þó ekki lokið. Ástráður Har­alds­son hefur stefnt íslenska rík­inu vegna skip­un­ar­innar. Þegar hefur verið óskað eftir því að málið fái flýti­með­ferð og í stefn­unni er gerð krafa um miska­bóta­kröfu upp á eina og hálfa milljón króna, að bóta­skylda verði við­ur­kennd og að ákvörðun Alþingis um skipun dóm­ara verði gerð ógild. Tveir aðrir sem fjar­lægðir voru af skip­ana­list­anum, Jón Hösk­ulds­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, hafa sagt að þeir séu að íhuga stöðu sína. Auk þess hafa full­trúar Pírata í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd farið fram á að þáttur dóms­mála­ráð­herra í mál­inu verði rann­sak­aður.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár