Skipti út héraðsdómara fyrir annan sem var skipaður sama dag

Jón Hösk­ulds­son og Ásmundur Helgason voru skip­aðir hér­aðs­dóm­arar sama dag­inn, en Jóni var skipt út af dóm­ara­lista dóm­nefndar og Ásmundur settur inn á lista ráð­herra. Jón segir enga ástæðu fyrir þessu í skýr­ingum ráð­herra.

Jón Hösk­ulds­son hér­aðs­dóm­ari segir Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hafa farið á skjön við eigin rök­stuðn­ing og óskar eftir því að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis víki frá til­lögu hennar varð­andi skipun dóm­ara við Lands­rétt. Hann var einn þeirra sem dóm­nefnd taldi meðal fimmtán hæf­ustu umsækj­end­anna um dóm­ara­emb­ætti, en Sigríður tók hann af þeim lista ásamt þremur öðrum. Jón var met­inn hæf­ari en allir þeir fjórir hér­aðs­dóm­arar sem Sigríður gerir nú til­lögu um að verði gerðir að dóm­urum í Lands­rétti.

Jón skrif­aði stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins and­mæla­bréf, sem birt er á vef­síðu Alþingis. Þar bendir hann á að Sigríður hafi notað þann rök­stuðn­ing að reynsla dóm­ara hafi ekki fengið það vægi sem til­efni sé til og gert sé ráð fyrir í reglum um störf dóm­nefndar.

Þá segir Jón að hann sé „tek­inn út einn hér­aðs­dóm­ara án þess að finna megi ástæðu þessa í skýr­ingum ráð­herra.“ Hann hafi verið skip­aður hér­aðs­dóm­ari 15. maí 2010, fyrir sjö árum síðan. „Meðal þeirra sem ráð­herra gerir til­lögu um er hér­aðs­dóm­ari sem skip­aður var sama dag og und­ir­rit­aður og hefur því gengt emb­ætti hér­aðs­dóm­ara nákvæm­lega jafn lengi,“ skrifar Jón. Þar á hann við Ásmund Helgason hér­aðs­dóm­ara, sem nefndin setti í 17. sæti í hæf­is­mati sínu, en Sigríður hefur nú gert til­lögu um að verði dóm­ari.

Þeir Jón og Ásmundur voru skip­aðir hér­aðs­dóm­arar sama dag, líkt og Jón segir í bréfi sínu. Dóm­nefndin hafði þó talið Ásmund aðeins hærri hvað dóm­ara­reynslu varðar vegna setu hans í Félags­dómi frá árinu 2014, og eins máls þar sem hann var ad hoc dóm­ari í Hæsta­rétti Íslands. Engu að síður taldi nefndin Jón heilt yfir hæf­ari en Ásmund – Jón var í 11. sæti hjá nefnd­inni og Ásmundur því 17.

„Breyting ráð­herra á nið­ur­stöðu dóm­nefndar er því öðrum þræði á skjön við eigin rök­stuðn­ing. Það leiðir hug­ann að því að önnur og ef til vill ólög­mæt sjón­ar­mið hafi ráðið mati ráð­herra á hæfi umsækj­enda. Í öllu falli er ljóst að skýr­ingar ráð­herra fara ekki saman við þá breyt­ingu sem að mér snýr að því er varðar jafn­langa reynslu af störfum dóm­ara en auk sjö ára reynslu sem hér­aðs­dóm­ari hef ég starfað í 14 ár við stjórn­sýslu­störf, 12 ár sem lög­maður.“

Þá telur Jón einnig aðfinnslu­vert að ráð­herra skuli gera breyt­ingu á þeim mats­þáttum sem fjallað er um í reglum um störf dóm­nefndar án þess að gefa umsækj­endum kost á að tjá sig um slíka grund­vall­ar­breyt­ingu á hæfn­is­mat­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár