Leitin að partíbát Kaligúla

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur rýndi í dul­ar­fulla leit að báti Kaligúla.

Flestir tengja nafnið Kalígúla við þá úrkynjun Róm­ar­veldis sem seinna leiddi til falls þess. Orðspor keis­ar­ans batn­aði ekki þegar kvik­mynd um valda­tíð hans var frum­sýnd árið 1979. Sú mynd var klám­feng­inn í meira lagi og sýndi alla þá mann­legu galla sem hann hefur verið vændur um. Nú stendur yfir leit í litlu stöðu­vatni nálægt Róm að skipi sem Kalígúla á að hafa látið smíða. Skip sem gæti hafa verið sögu­svið nautna­fýsnar keis­ar­ans alræmda.

Óvænt tækifæri

Þann 3. apríl hófu vís­inda­menn að rann­saka hið fræga Nemi vatn til að reyna að finna hið umtala þriðja skip keis­ar­ans Kalígúla. Nemi vatn, sem er aðeins um 1,5 fer­kíló­metri að flat­ar­máli og 33 metra djúpt, liggur í eld­fjalla­gíg um 30 km suð-austan af Róm­ar­borg, nálægt Albano vatni sem er þó tölu­vert stærra. Austan við vatnið situr bær­inn Nemi þar sem búa um 2000 manns sem byggja lífs­af­komu sína aðal­lega á jarð­ar­berja­rækt. Sá bær var þó ekki til fyrir tæpum tveim árþús­undum þegar Nemi vatn var helsti sum­arán­ing­ar­staður keis­ar­ans.

Rann­sóknin er sam­vinnu­verk­efni margra aðila á svæð­inu, t.d. umhverf­is­stofn­ana, hafn­ar­stjóra Róm­ar­borgar og sam­taka kaf­ara. Jarð­fræð­ing­ur­inn Luigi Dattola hjá nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum Calibríu-hér­aðs er einn af þeim sem leiðir rann­sókn­ina en hann segir að vís­indi hafi ekki verið kveikjan að henni.

„Rann­sóknin byrj­aði sem leit að ólög­legri losun sorps og skað­legra efna í vatn­inu. En svo var ákveðið að kafa dýpra og leita að þessu dul­ar­fulla skipi.“

Mafían stýrir sorp­hirðu á mörgum stöðum í Ítalíu og það hefur valdið gríð­ar­legum vanda­málum. Asbestos og önnur stór­hættu­leg eit­ur­efni hafa verið losuð á við­kvæmum stöðum og valdið bæði fólki og dýrum heilsutjóni. Mikið púður hefur verið sett í rann­sókn­ina sem hefur þó reynst tölu­vert erfið. Vatns­botn­inn er mjög laus í sér og því mikið af ögnum í vatn­inu sem gerir köf­urum erfitt fyrir. Oft sjá þeir ekki nema um 3 metra frá sér.. Dattola og félagar hafa því gripið til þess að nota sér­stök ómskoð­un­ar­tæki sem kort­leggja vatns­botn­inn. Slík tæki eru einnig notuð til að leita að eit­ur­efna­úr­gangi.

Sadisti, pervert og spreðari

Fáar per­sónur úr mann­kyns­sög­unni hafa fengið jafn slæm eft­ir­mæli og Gaius Julius Caesar Augustus Germanicus, betur þekktur sem Kalígúla (litla stíg­vél). Hann var fæddur árið 12 e.Kr og 24 ára gam­all varð hann þriðji keis­ari Róm­ar­veldis. Hann var myrtur af líf­vörðum sínum tæpum 4 árum seinna í mis­heppn­uðu sam­særi nokk­urra stjórn­mála­manna og hirð­manna um að koma aftur á lýð­veldi. En þó að valda­tíð hans hafi verið stutt var hún ákaf­lega við­burð­ar­rík, ekki síst vegna hans eigin per­sónu.

Kalígúla var sagður vera sad­isti, grimmur og óút­reikn­an­legur, veru­leikafirrtur, kyn­ferð­is­legur per­vert og óheflaður eyðslu­seggur. Sagt var að hann hafi látið taka fólk af lífi án umhugs­unar, að hann hafi sængað hjá þremur systrum sínum, að hann hafi talað við karl­inn í tungl­inu og að hann hafi gert upp­á­halds hest sinn að ræð­is­manni. Mest er haft eftir seinni tíma sagna­rit­urum eins og Svetón­í­usi sem skrif­aði um 80 árum eftir dauða Kalígúla.

Margir þeirra höfðu horn í síðu Kalígúla vegna ein­ræð­istil­burða hans og því verður að taka öllum frá­sögnum um hann með vissum fyr­ir­vara. Mikið af því er aug­ljós­lega hrein og klár lygi. Það sem er hins vegar óum­deilt er eyðslu­semi hans. Kalígúla tæmdi fjár­hirslur rík­is­ins til að fram­kvæma metn­að­ar­fullar bygg­ingar og smíðar af ýmsum toga. Þær voru þó ekki allar gerðar af ein­tómum hégóma. Hann lét reisa stórar vatns­veitur, vegi, hafnir, leik­hús og must­eri handa almenn­ingi og hélt þeim vel við. En hann byggði einnig fyrir sjálfan sig og þá var hvergi til sparað. Þekkt­ustu smíð­arnar sem hann lét gera voru skipin í Nemi vatni.

Við norð­ur­bakka Nemi vatns stóð must­eri gyðj­unnar Díönu (rúst­irnar standa enn) og þar var mið­stöð veg­sömun hennar. Nemi vatn hefur því oft verið kallað speg­ill Díönu og hátíðir henni til heið­urs voru haldnar um árhund­ruða skeið. Þessar hátíðir voru óvenju­legar innan Róm­ar­veldis þar sem mann­fórnir voru stund­aðar þar. Kalígúla var hrif­inn af þessum söfn­uði og gerði stað­inn að dval­ar­stað sínum yfir sum­ar­mán­uð­ina þegar hit­inn í Róm­ar­borg var yfir­gengi­legur. Fyr­ir­myndin að skip­unum sem hann lét smíða voru unaðspramm­arnir sem kon­ungar Egypta­lands áttu. Skipin hans voru þó langt um stærri og íburð­ar­meiri en hin egyp­sku. Hann fékk fær­ustu verk­fræð­inga og skipa­smiði Róm­ar­veldis til að hanna skipin sem hýstu bæði must­eri og litlar hallir, allt strjáð gim­steinum, gulli, marm­ara og list­munum. Á skip­unum dvaldi hann ásamt hirð sinni og sagt er að þar hafi verið stund­aður geig­væn­legur ólifn­aður og kyns­vall.

[adspot]

Flökin í vatninu

Þegar Kalígúla var myrtur árið 41 e.Kr hurfu skipin. Að öllum lík­indum var þeim sökkt í vatnið í til­raun til þess að eyða arf­leið hans úr sög­unni. En vit­neskjan um þau hvarf þó aldrei. Fisk­veiði­menn á svæð­inu vissu af þeim og þeir sem gátu kafað hvað dýpst gátu séð flökin. Engar alvar­legar til­raunir til að rann­saka flökin voru gerðar fyrr en um miðja 15. öld. Arkítekt­inn Leon Battista Alberti nýtti sér þekk­ingu kaf­ar­anna og komst að því að tvö skip lægju á um 20 metra dýpi í aust­an­verðu vatn­inu. Kaf­ar­arnir höfðu stundum notað króka til að ná bútum af flök­unum og Alberti not­aði þessa aðferð við rann­sókn sína. Frekari rann­sóknir voru þó ómögu­legar vegna dýp­is­ins og stærðar skip­anna.

Á næstu öldum voru margar frek­ari til­raunir gerðar til að ná flak­inu eða hlutum af því á land, t.d. með sér­stökum köf­un­ar­klefa sem var í lag­inu eins og kirkju­klukka. Mikið af verð­mætum málm­hlutum, list­munum og timbri náð­ist á land og var síðan selt. Á þessum tíma var áhug­inn á flök­unum fyrst og fremst fjár­hags­legur. En um alda­mótin 1900 fór ítalska ríkið að sína flök­unum áhuga og forn­muna­fræð­ing­ur­inn Eliseo Borghi var sendur til að rann­saka þau. Hann sá að annað skipið inni­hélt umtals­vert magn af trú­ar­legum munum og hlaut að hafa þjónað öðrum til­gangi en hitt. Ekki reynd­ist þó mögu­legt að ná skip­unum á þurrt land til frek­ari rann­sókna.

Það var ein­ræð­is­herr­ann Benito Mus­sol­ini sem tók málið föstum tökum í lok þriðja ára­tug­ar­ins. Ómögu­legt var að hífa svo stór flök upp í heilu lagi og gam­all við­ur­inn myndi senni­lega molna við slíka til­raun. Því ákvað hann að ræsa fram vatnið til að lækka yfir­borð þess. Aðgerðin var risa­vaxin en haustið 1928 byrj­aði vatnið að grynnka. Hálfu ári síðar kom annað flakið í ljós og eftir fjögur ár hafði yfir­borð vatns­ins lækkað um 20 metra og bæði flökin á föstu landi.[http://historybecauseitshere.weebly.com/roman-emperor-caligula-and-his-legendary-lake-nemi-ships.html] Þá kom einnig í ljós lít­ill fylgi­bátur sem hafði verið fylltur steinum. Réttmæti þess­arar aðgerðar er umdeil­an­legt í ljósi umhverf­is­á­hrif­anna. Lífríki vatns­ins hefur enn ekki náð sér fylli­lega á strik eftir aðgerð­ina og tölu­vert jarð­rask átti sér einnig stað.

Skemmtiferðaskip fornaldar

Skipin voru ótrú­legur fundur og hval­reki fyrir vís­inda­menn. Þau litu í raun frekar út eins og risa­stórir flekar eða prammar heldur en venju­leg skip. Annað var 67 metrar á lengd og 19 breidd og hit 71 metri á lengd og 24 á breidd. Þilförin voru klædd glæsi­legum marm­ara og mósaík myndum. Ýmsar styttur og munir úr bronsi fund­ust víðs vegar, t.d. úlfs­höfuð við hvert ræð­ar­aop. Vís­inda­menn áætla að annað skipið hafi verið must­er­is­skip, senni­lega til að veg­sama gyðj­una Díönu, og það hefur verið knúið áfram með afli 100 ræð­ara.

Á hinu hefur staðið lítil höll og verið svo þungt að það hafi ekki haft neina burði til að knúa sig áfram heldur verið dregið. Í ljósi þess hversu smátt Nemi vatnið er hefur verið lítil ástæða fyrir mikla sigl­inga­getu skip­anna og þau hafa senni­lega verið kyrr mest allan tím­ann sem þau voru í notkun. Akkeri skip­anna fund­ust en lík­legt er að skipin hafi einnig verið fest við bakk­ann með keðjum og að hægt hafi verið að kom­ast um borð eftir langri brú. Í hall­ar­skip­inu hafa Kalígúla og hirð hans senni­lega varið mestum tíma (ef sagan er sönn) við veislu­hald, söngva, kapp­leiki og kyns­vall. Sagan segir einnig að þar hafi Kalígúla látið taka fólk af lífi. En það kom margt fleira í ljós sem sem gerði vís­inda­menn kjaft­stopp. Ýmis konar pumpur og dælur sem héldu hita í gólfum og veittu far­þegum bæði heitu bað­vatni og köldu drykkj­ar­vatni. Tækni sem glat­að­ist og upp­götv­að­ist ekki aftur fyrr en á mið­öldum. Skipin minntu í raun á lúxus skemmti­ferða­skip nútím­ans. Svetón­íus segir:

„Hann byggði einnig líbúrískar [svæði við Adríahaf] galeiður með tugi ræð­ara, með skut fylltan gim­steinum, marg­litum seglum, stórum og rúm­góðum böðum, súlna­röðum og veislu­sölum, og meira að segja úrvali af vín­jurtum og ávaxta­trjám.“

Mus­sol­ini lét reisa hús yfir flökin og árið 1936 var opnað safn á staðnum. En safnið stóð ekki lengi því aðeins þremur árum síðar hófst seinni heims­styrj­öldin og sum­arið 1943 hófust miklir bar­dagar á Ítal­íu­skaga milli Þjóð­verja ann­ars vegar og Breta og Banda­ríkja­manna hins vegar. Ári seinna brann safnið í Nemi til kaldra kola og með því unaðsprammar Kalígúla. Óvíst er hver bar ábyrgð á brun­anum. Þjóð­verjar kenndu banda­ríska stór­skota­lið­inu um en Banda­ríkja­menn töldu að Þjóð­verjar hefðu vilj­andi kveikt í safn­inu þegar þeir flúðu af svæð­inu. Það litla sem bjarg­að­ist úr bruna­rúst­unum var flutt til Napolí borgar til varð­veislu.

Um ára­tuga skeið gerð­ist ekk­ert í mál­efnum skip­anna en um miðjan tíunda ára­tug­inn stefndu bæj­ar­yf­ir­völd í Nemi á að end­ur­gera annað skipið í fullri stærð, þ.e. utan hall­ar­innar sjálfrar sem eng­inn vissi nákvæm­lega hvernig leit út. Félag var sett á lagg­irnar til að halda utan um verk­efnið en það hefur síðan fjarað út og ekk­ert varð af end­ur­gerð­inni.

Þriðja skipið

Örlög skip­anna tveggja eru vel þekkt en hvaðan kemur sagan um þriðja skipið? Hvorki Svetón­íus né aðrir sagna­rit­arar segja hversu mörg skipin á Nemi vatni voru. Hingað til hefur kast­ljósið ein­ungis verið á þeim tveim skipum sem fund­ust við aust­ur­bakk­ann. En í gegnum ald­irnar hafa fisk­veiði­menn haldið þeim orðrómi á lofti að þriðja skipið liggi við vest­ur­bakk­ann og forn­munir hafa fund­ist þeim megin. Sagt er að það skip sé umtals­vert stærra en hin tvö, eða rúm­lega 120 metrar á lengd. Vitað er þó að tölu­vert jarð­rask og aur­skriður hafa átt sér stað þeim megin í vatn­inu og ef skipið er til, verður erfitt að finna það. Luigi Dattola er þó nokkuð bjart­sýnn hvað það varðar.

„Þó að það virð­ist und­ar­legt að þrjú risa­stór skip hafi flotið á svona litlu vatni, þá verður það þó að telj­ast lík­legt í ljósi þess að Kalígúla átti þau. Ef skipið er þarna ættum við að geta séð það.

Teymi hans rann­sak­aði vatns­botn­inn sam­fleytt í tvær vikur og fundu ýmis­legt sem vakti grun­semdir þeirra. Kafarar eru til staðar og þeir munu verða að störfum a.m.k. fram í júní­lok. Dattola er ekki sann­færður um að þeir finni skipið strax, það gæti verið grafið undir djúpu lagi af jarð­vegi. En það er vel mögu­legt að ýmsar minjar, jafn­vel úr skip­inu geti fund­ist á svæð­inu. Ef þriðja skip Kalígúla finnst í vatn­inu yrði það einn af merki­leg­ustu forn­leifa­fundum sög­unnar. Með nútíma verk­tækni yrði auð­veld­ara að koma því upp á yfir­borðið án þess að ræsa fram vatnið aftur með til­heyr­andi umhverf­is­spjöllum og einnig auð­veld­ara að varð­veita skipið sjálft. Það yrði líka góð sára­bót fyrir skipin tvö sem voru eyðilögð 12 árum eftir að þau voru afhjúpuð í fyrsta skipti í 2000 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár