Umhverfis- og samgöngunefnd er fylgjandi bílastæðagjaldi í dreifbýli

Meiri­hluti Umhverfis- og sam­göngu­nefndar er fylgj­andi því að frum­varp sem heim­ilar inn­heimtu bíla­stæða­gjalda í dreyf­býli verði sam­þykkt óbreitt. Minni­hlut­inn segir það þurfa að skoða gjald­töku í ferða­þjón­ustu á heild­stæðan hátt.

Meiri- og minni­hluti Umhverfis- og sam­göngu­nefndar eru báðir fylgj­andi að frum­varp um breyt­ingar á umferð­ar­lögum sem heim­ilar inn­heimtu bíla­stæða­gjalda í dreif­býli verði sam­þykkt. Frum­varpið er til þess ætlað að aðstoða sveit­ar­fé­lög að standa undir kostn­aði á upp­bygg­ingu inn­viða ferða­þjón­ustu á lands­byggð­inni.

Meiri­hluti nefnd­ar­innar lagði til að frum­varpið yrði sam­þykkt óbreytt. Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans segir að þær umsagnir sem bár­ust með frum­varp­inu hafi almennt verið jákvæðar. Helstu gagn­rýn­is­radd­irnar hafi borist frá Samtökum ferða­þjón­ust­unnar.

Gagn­rýnin sneri að því að með frum­varp­inu „sé sveit­ar­fé­lögum veitt tak­marka­laus heim­ild til gjald­töku og að gjald­taka og skatt­heimta af ferða­þjón­ustu sé nýtt til upp­bygg­ingar ann­arra inn­viða [en þeim sem lúta að ferða­þjón­ustu].“.

Meiri hlut­inn bendir á með til­liti til þessa að þótt heim­ildir sveit­ar­fé­laga til gjald­töku og útgáfu sekta verði rýmkaðar sé um þjón­ustu gjald að ræða og því beri að nýta þau að öllu eða hluta til að standa undir þeim kostn­aði sem þjón­ustan veiti. „Svo að féð skuli nýta til upp­bygg­ingar í tengslum við við­kom­andi bíla­stæði og þá þjón­ustu sem veitt er í kringum það, þ.e. einkum til að fjár­magna inn­viða­upp­bygg­ingu fyrir ferða­menn.“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Minnihlutinn vill skýrari fyrirmæli

Minni hluti nefnd­ar­innar varar við að ekki megi líta á það sem svo að sam­þykkt frum­varps­ins leiði til „að fjár­þörf sveit­ar­fé­lag­anna til upp­bygg­ingar vegna stór­auk­ins ferða­manna­straums hafi verið mætt. Vegna eðlis þjón­ustu­gjalda er ljóst að tryggja þarf sveit­ar­fé­lög­unum meira fjár­magn en hér er gert ráð fyrir.“

Minni hlut­inn bendir á að í frum­varp­inu skorti skil­grein­ingar á ýmsum hug­tökum. Í frum­varp­inu er kveðið á að það gjald sem inn­heimt er megi nýta meðal ann­ars til að standa straum af bygg­ing­ar­kostn­aði, við­haldi og rekstri bíla­stæða. Einnig er heim­ilt að nýta gjaldið til upp­bygg­ingar á þjón­ustu þátta svo sem sal­ern­is­að­stöðu, gerð og við­haldi göngu­stíga og teng­ingar við önnur mann­virki.

„Hér er að mörgu að hyggja, svo sem því hvað átt er við með teng­ingu við önnur sam­göngu­mann­virki. Þá vekur ákvæðið upp þær spurn­ingar hvernig fjár­hæð gjalds­ins verður ákveðin. Mun það lækka þegar stofn­kostn­aður hefur verið greiddur niður og það stendur aðeins undir rekstr­ar­kostn­aði? Verður það lægra á bíla­stæðum sem þegar hafa verið lögð þar sem ekki er heim­ilt að láta þjón­ustu­gjöld standa undir kostn­aði við upp­bygg­ingu sem þegar hefur átt sér stað ?“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Í álit­inu kemur fram sú skoðun minni­hlut­ans að í frum­varp­inu komi ekki fram hver raun­veru­legur vilji stjórn­valda er varð­andi inn­heimtu bíla­stæða­gjalda í þétt­býli. „Þá er óljóst hvort bíla­stæða­gjöld eigi að nýta til aðgangs­stýr­ingar. Verður fólki mein­aður aðgangur að svæðum ef bíla­stæðin við það eru full? Þar er á ferð mun umfangs­meiri umræða en tæpt er á í þessu frum­varpi og minni hlut­inn kallar eftir því að ráð­herra skýri betur stefn­una hvað það varðar.“

Minni hlut­inn leggst ekki á móti sam­þykkt frum­varps­ins og leggur til að skip­aður verði starfs­hópur sem fari heild­stætt yfir gjald­töku í ferða­þjón­ustu. Undir nefnd­ar­á­lit minni­hlut­ans skrifa tveir þing­menn Vinstri grænna Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé og Ari Trausti Guð­munds­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár