Ólafur Ólafsson birtir framsögu sína í myndbandi á netinu

Ólafur Ólafsson kemur fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í dag. Hann hafði óskað eftir því að fá 45 mín­útur til að kynna sína hlið, en nefndin varð ekki við því. Hann fær 15 mín­útur, og birtir því mynd­band með fram­sögu sinni á net­inu.

Ólafur Ólafsson hefur birt upp­töku af erindi sem hann hafði ætlað sér að flytja á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í dag. Ólafur kemur fyrir nefnd­ina síð­degis vegna skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis á einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans. 

Ólafur hafði óskað eftir því að fá að halda 45 mín­útna langa fram­sögu fyrir nefnd­inni, en í gær var honum tjáð að hann fengi ekki þann tíma heldur yrði fram­saga hans að vera í lengsta lagi 15 mín­útur. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu KOM. „Ólafur gerði ráð fyrir að rúman tíma til að gera nefnd­ar­mönnum og almenn­ingi öllum ítar­lega grein fyrir mik­il­vægum atriðum sem fjallað var um í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Þess vegna ákvað Ólafur að taka upp alla fram­sög­una sem hann ætl­aði að halda fyrir nefnd­inni, og birta opin­ber­lega. Það hefur hann nú gert, og sendi jafn­framt fund­ar­mönnum í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd bréf þar sem hann bendir þeim á þetta. Þannig geti nefnd­ar­menn og almenn­ingur kynnt sér sjón­ar­mið hans.

Ólafur kemur fyrir nefnd­ina klukkan 15:15 í dag, og Kjarninn mun fylgj­ast með fund­inum og greina les­endum frá því sem þar fer fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár