Þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja ekki hafa fund með Ólafi opinn

Brynjar Níelsson víkur úr stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins í Bún­að­ar­banka­mál­inu, en tjáir sig um það við Frétta­blaðið í dag. Hann er þeirrar skoð­unar að fundur með Ólafi Ólafs­syni ætti ekki að vera opinn almenn­ingi og fjöl­miðlum.

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis, Brynjar Níelsson og Njáll Trausti Frið­berts­son, telja að funda eigi með Ólafi Ólafs­syni um um þátt­töku Hauck & Auf­häuser í kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum á lok­uðum fundi. Þetta kom fram í Frétta­blað­inu í dag.

Ólafur Ólafsson sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu fyrr í mán­uð­inum þar sem hann sagð­ist vilja fá að koma fyrir nefnd­ina og tjá sig vegna kaupa S-hóps­ins á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Þetta vildi hann gera í kjöl­far skýrslu sem rann­sókn­ar­nefnd Alþingis gaf út um kaupin þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði vís­vit­andi blekkt stjórn­völd, almenn­ing og fjöl­miðla. Hauck & Auf­häuser hafi aldrei verið fjár­festir í bank­anum í raun. Ólafur hafði ekki viljað ræða við nefnd­ina um málið og tjáði sig ekki í fjöl­miðlum eftir að skýrslan kom út.

Líkt og Kjarninn hefur greint frá hefur Ólafur þó ekki sent form­lega beiðni til nefnd­ar­innar og því hefur nefndin ekki tekið afstöðu til þess hvort hann fái að mæta, hvort fund­ur­inn verði opinn blaða- og frétta­mönnum né hvort að streymt verði frá honum á vef Alþingis svo að almenn­ingur geti fylgst með. Þetta sagði Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar og vara­for­maður nefnd­ar­innar, við Kjarnann þann 18. apríl. Jón Steindór verður for­maður nefnd­ar­innar í vinnu tengdri þessu máli, eftir að Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður nefnd­ar­innar, sam­þykkti að víkja úr nefnd­inni í mál­inu vegna tengsla. Ástæðan er sú að Brynjar var um tíma verj­andi Bjarka Diego í saka­máli sem sner­ist um meint efna­hags­brot. Bjarki er einn þeirra sem gegndi lyk­il­hlut­verki í þeirri fléttu sem ofin var í kringum kaup­in.

Brynjar mun því ekki koma að mál­inu í nefnd­inni, en tjáir sig um sína skoðun í Frétta­blað­inu í dag. Hann segir að hans skoðun sé að fund­ur­inn eigi ekki að vera opinn fjöl­miðlum og almenn­ingi. „Ég er ekki viss um að hann eigi að vera í beinni útsend­ingu ef hann á að nýt­ast okkur eitt­hvað. Þá er þetta allt komið á þvæl­ing á meðan við erum á við­kvæmum stað í skoð­un­inni. Þá er hætt við að þessi umræða fari út og suður áður en við ljúkum okkar vinnu. Það getur verið óþægi­legt fyrir okkur en það er mitt mat. Við munum svo ræða það nánar í nefnd­inni,“ segir Brynjar við Frétta­blaðið.

Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur undir með Brynjari, og telur óskyn­sam­legt að hafa fund­inn í beinni útsend­ingu.

Brynjar segir að hann hafi rætt við Ólaf á mið­viku­dag­inn og ítrekað ósk stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um að fá grein­ar­gerð frá honum þar sem hann rök­styður beiðni sína um fund og hvaða nýju upp­lýs­ingar hann ætli að leggja fram fyrir nefnd­inni. Engin form­leg beiðni um fund hefur þó enn borist frá honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár