Íslenski hertoginn Dunganon sem lifði utan við kerfið

Flökkukindin Karl Ein­ars­son. Hver var það? Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér merki­lega sögu hans.

Karl Ein­ars­son eða Dunganon var skáld og mynd­lista­maður, tón­list­ar­maður og heim­spek­ingur, dul­spek­ingur og lífskúnstner. Hann var flökku­kind sem lítið til spurð­ist hér á landi en fékkst við ólík­leg­ustu hluti víðs vegar um Evrópu. Hann titl­aði sig sjálfan her­toga af Sankti Kildu þó að fæstir við­ur­kenndu þá tign eða kærðu sig um að vita hvar sá staður er á landa­kort­inu. En í kringum þann stað bjó hann til drauma­heim sem öll hans list byggð­ist á.

Seyðisfjörður, Færeyjar og heimurinn

Karl Kjerúlf Ein­ars­son fædd­ist þann 6. maí árið 1897 í þorp­inu Vests­dals­eyri við Seyð­is­fjörð sem síðar lagð­ist í eyði. For­eldrar hans voru Magnús Ein­ars­son úrsmiður og Krist­jana Guð­munds­dóttir sem ráku verslun á staðnum. Um alda­mótin þegar Karl var aðeins þriggja ára gam­all fluttu þau til Kaup­manna­hafnar um skamma stund og síðan til Þórs­hafnar í Færeyjum þar sem þau ráku mat­vöru­verslun í 20 ár.

Á æsku­árum sínum hreifst Karl af listum og umgekkst unga menn sem voru eins þenkj­andi og hann. Hann fór að yrkja og tók upp lista­manna­nafnið Dunganon eftir hús­inu sem fjöl­skylda hans bjó í, Dunga. Honum fannst nafnið svo­lítið gei­l­ískt og því nokkuð sér­stakt en einnig þannig að allir gætu borið það fram.

Eftir ver­una í Færeyjum ákvað fjöl­skyldan að flytja aftur til Kaup­manna­hafnar og Karl skyldi sendur í versl­un­ar­nám. En hann strauk úr því námi og hélt til Spánar þar sem flökku­líf hans hófst. Á næstu 30 árum bjó hann m.a. í Frakk­landi, Ítalíu, Þýska­landi, Belgíu, Póllandi og á Norð­ur­löndum og sjald­ast lengi á hverjum stað. Hann ferð­að­ist um með járn­braut­ar­lestum og skipum sem laumu­far­þegi því honum var meinilla við að borga fyrir sam­göng­urnar. Hefð­bundin vinna var eitt­hvað sem hann hafði megna óbeit á en hann vildi heldur ekki lifa á kerf­inu. Dunganon þurfti því að beita óvenju­legum aðferðum til að hafa í sig og á.

Hertogi sjófuglanna

Dunganon var ekki eina við­ur­nefnið sem Karl Ein­ars­son gekk undir. Hann kall­aði sig stundum Lord of Hecla, Pró­fessor Emarson eða Carolus Africanus ganda­kallur. Á fjórða ára­tugnum fór hann að kalla sig Cormorant XII Imper­ator av Atlantis, her­toga af Sankti Kildu. Sankti Kilda er klasi sjö eyja vestur af Suð­ur­eyjum í Skotlandi sem þá höfðu nýlega verið rýmdar af öllu fólki. Íbúarnir voru þá ein­ungis 36 tals­ins en höfðu mest verið um 200 í um 2000 ára byggð­ar­sögu eyj­anna. Enn þá standa þar hús eyja­skeggja og sum nokkuð heil­leg en eng­inn dvelur þar nú allt árið um kring og erfitt er að kom­ast þangað.

Dunganon dáð­ist að harð­gerðum íbúum eyj­anna sem höfðu lifað í mik­illi ein­angrun, utan við skatta og skyldur, og dregið fram lífið með því að borða lunda og fýl. Þegar þeir fóru upp á land sló hann eign sinni á eyj­arnar og titl­aði sig sem aðals­mann. En fólkið var farið frá eynni og með því sauð­féð og öll önnur hús­dýr, meira að segja mýsnar dóu út. Einu þegnar her­tog­ans voru því sjáv­ar­fugl­arnir og aldrei gerð­ist hann svo frægur að ferð­ast til eyj­anna og hitta þá.

En það hindr­aði hann ekki í því að skapa umgjörð um ríki­dæmi sitt og koma því til vegs og virð­ingar. Hann teikn­aði upp skjald­ar­merki eyj­anna að fyr­ir­mynd merkja Odda­verja á Rang­ár­völlum. Sjálfur sagð­ist hann vera beinn afkom­andi Jóns Lofts­sonar, höfð­ingja þeirra á 12. öld, sem er senni­lega rétt (eins og allir aðrir Íslend­ingar). Dunganon kunni einnig sitt fyrir sér í tón­smíð og samdi því þjóð­söng eyj­anna sem hann söng sjálfur inn á band. Textinn var á tungu­máli Atlantis, A-Máhla Máhnu, sem hann bjó sjálfur til og er merki­leg­asta fram­lag her­tog­ans til eyj­anna.

Dunganon orti mikið á þeirri tungu en hún var þó ekki við­ur­kennd nema af mjög þröngum hópi fólks og sjálf­sagt hefur eng­inn skilið hana nema Dunganon sjálfur. En her­toga­dæmið var ekki aðeins til í höfð­inu á honum sjálfum því í nokkur skipti fékk hann við­ur­kenn­ingu frá opin­berum stofn­unum og aðilum. Dunganon gekk um með vega­bréf frá Sankti Kildu sem hann fékk nokkrum sinnum stimplað af landamæra­vörðum. Hann teikn­aði frí­merki með skjald­ar­merk­inu og gat sent bréf milli staða. Hann fékk meira að segja við­ur­kenn­ingu sína á her­toga­dæm­inu stað­festa af yfir­völdum þegar hann bjó í Berlín á fimmta ára­tugnum. Það er þó ekki hægt að úti­loka að slæm landa­fræði­kunn­átta sumra opin­berra starfs­manna hafi valdið því að hann komst upp með þetta.

Adolf Hitler og Halldór Laxness

Saga Dunganon er full af goð­sögnum og hálf­kveðnum vísum og því ekki alltaf gott að segja hvað sé satt og hvað logið, eða a.m.k. ýkt. Þegar hann bjó í Brussel átti hann að hafa rekið hóru­hús. En þar lét hann sér ekki ver­ald­lega heim­inn duga því að hann rak einnig and­lega hjú­skap­ar­miðlun, eða eins og hann kall­aði það „astró-eró­tískan ekta­skaps­kontór“.

Hann kall­aði sig þá Doktor Ana­kan­anda og leiddi unga menn á miðl­is­fundum til að finna sál­ar­maka til trú­lof­unar. Ósagt er hversu margir þáðu þessa hjálp eða hversu vel hún gekk. Hann seldi á ein­hverjum tíma­punkti dropa sem hann kenndi við Sankti Kildu en óvíst er hvað var í þeim elixír og hvaða til­gangi hann átti að þjóna. Hann stund­aði einnig hús­næð­is­miðlun, bæði í Danmörku og í Þýska­landi á stríðs­ár­unum.

Samband Dunganon við nas­istana er hvað mest á huldu. Vitað er að hann fékk stað­fest­ingu sína á her­togatign­inni á þessum tíma en einnig sagð­ist hann hafa per­sónu­lega beðið Adolf Hitler um einka­flug­vél til að kom­ast til eyj­anna. Vitað er að Dunganon starf­aði fyrir nas­istana í útvarpi, nauð­ugur eða vilj­ugur, við það að lesa áróður á fær­eysku. Hann sjálfur sagð­ist þó ein­ungis hafa lesið upp ljóð á Atlantis-tungu sinni sem eng­inn Fær­ey­ingur ku hafa skilið og því ekki komið neinum áróðri til skila. Ljóð sín kall­aði Dunganon reyndar galdra og það var það sem hann var þekkt­astur fyrir framan af. Hann gaf út tvær ljóða­bækur á dönsku í Kaup­manna­höfn, Vartegn (1931) og Enemod (1935), að hans sögn til þess að kenna dönskum skáldum að yrkja. Þessum bókum var vel tekið af gagn­rýnendum en umstangið í kringum útgáf­una og skatt­greiðsl­urnar fóru í skapið á Dunganon svo hann hætti að gefa út hjá for­lögum.

Eftir það prent­aði hann sjálfur ljóð undir merkjum Sankti Kilda og gaf vinum sínum. Í krafti aðals­tign­ar­innar sló hann einnig marga þeirra til ridd­ara og veitti þeim skreytt og stimpluð bréf því til stað­fest­ingar. Einn af vinum hans var Halldór Laxness sem hann kynnt­ist í Kaup­manna­höfn. Laxness hreifst af visku, sér­visku og kænsku Dunganon og gerði hann að fyr­ir­mynd sögu­per­són­unnar Karls Einfer í smá­sög­unni Völuspá á hebr­esku (1942). Líkt og Einfer í sög­unni sagð­ist Dunganon geta útvegað Halldóri nóbels­verð­launin en þó gegn gjaldi. Halldór neit­aði þjón­ust­unni en fékk verð­launin þó eins og allir vita árið 1955, án hjálpar Dunga­nons.

Myndir af Sankti Kildu

Tveimur árum eftir seinni heims­styrj­öld flutti Dunganon til Kaup­manna­hafnar þar sem hann festi loks rætur, fimm­tugur að aldri. Þá hóf hann fyrst þá iðju sem hann átti eftir að verða lang­þekkt­astur fyrir, þ.e. lista­verka­málun. Myndir hans eru flestar gerðar með olíu­krít í naí­vískum og draum­kenndum stíl. Sjálfur kall­aði hann myndir sínar „draum­ver­aldar dimen­sjón“ og eru þær að miklu leyti byggðar á hug­mynd hans sjálfs um hina sokknu borg Atlantis og Sankti Kildu sem var alla tíð mið­stöð drauma­heims hans.

Mynd­irnar eru af ýmsum toga t.d. af fólki og lands­lagi en þekktastar eru myndir hans af dýrum. Dunganon bjó rétt hjá dýra­garð­inum í Kaup­manna­höfn og dvaldi þar löngum stundum við að skoða dýrin. Dýrin sem hann mál­aði voru nokk­urs konar fantasíu-útfærslur af þeim og ver­öldin í kring einnig. Þekkt­ustu verk hans eru mynda­röð sem hann nefndi Véfréttir og er einnig kölluð Véfréttir frá Sankti Kildu. En þó að Dunganon hafi fundið sér nýja útrás fyrir sköp­un­ar­gáf­unni þá hætti hann ekki að yrkja. Þvert á móti þá tvinn­aði hann saman mynd­list og ljóð­list, þ.e. hann mál­aði margar af sínum myndum eftir ljóðum.

Dunganon orti á ótal tungu­málum, s.s. fær­eysku, dönsku, frönsku, forn-frönsku, hebr­esku, hindústani, maórí og auð­vitað Atl­ants­hafstung­unni. Erfitt reynd­ist hins vegar að nálg­ast ljóð hans, ef frá eru talin nokkur ljóð sem birt­ust í dönskum sjérrí og vindla­aug­lýs­ingum. Á þessu var gerð brag­ar­bót árið 1961 þegar Ásbjörn Ólafsson stór­kaup­maður styrkti Dunganon til Íslands­farar en það var í fyrsta og eina skiptið sem hann heim­sótti Ísland eftir að hann flutti út árið 1900. Með í för voru mál­verk sem voru sýnd í einka­húsi í Bjark­ar­hlíð við Bústaða­veg og þá var einnig haf­ist handa við útgáfu ljóða­safns að und­ir­lagi Ásbjörns. Corda Atlantica: Poesias peregrinas St. Kilda kom út árið 1962 og inni­hélt ljóð á 20 tungu­málum, þ.á.m. Atl­ants­hafs-tung­unni. Dunganon naut ver­unnar hér á landi. Sagt er að hann hafi gengið um stræti eins og vitr­ingur og rætt aust­ræna dul­speki og jóga við þá sem hann hitti.

Erfitt að vera ekkert

Síðustu 10 ár ævinnar bjó hann í Danmörku í sárri en jafn­framt sjálfs­skip­aðri fátækt líkt og fyrr. Hann vildi helst ekki láta mál­verkin frá sér og ekki selja þau í hlutum. Einstaka mynd var þó seld eða gefin og eru þau nú til í einka­söfnum. En bróð­ur­part­inum af verk­unum, ríf­lega 250 tals­ins, vildi hann halda saman og verð­lagði þau því vilj­andi allt of hátt. Hann stóð lengi vel í stappi við dönsk skatta­yf­ir­völd sem skildu ekki á hverju hann lifði. Fyrstu föstu tekj­urnar sem hann hafði voru elli­líf­eyr­ir­inn. En þessi afstaða hans að standa utan við kerfið var lyk­il­þáttur í að skil­greina per­sónu hans. Hann sagði:

„Ég hef alla ævina leitazt við að verða að engu og vera ekk­ert, og það er miklu erf­ið­ara heldur en að vera eitt­hvað“.

Hann var mikið upp á aðra kom­inn, t.d. systur sína sem bjó í Svíþjóð. Hann var mjög félags­lyndur og naut mik­illar kven­hylli en þau mál eru að miklu leyti á huldu. Sjálfur sagð­ist hann hafa kvænst nokkrum sinnum og átti a.m.k. eina dóttur í Danmörku.

Hann reykti og drakk fín vín en stundum liðu heilu dag­arnir án þess að hann borð­aði nokkuð. Um tíma var hann heim­il­is­laus og hélt til í graf­hýsi. En hann stund­aði mikið jóga og hélt lík­am­legri og and­legri heilsu að mestu leyti út lífið. Dunganon lést 24. febr­úar árið 1972 í Kaup­manna­höfn, 74 ára að aldri. Hann arf­leiddi Lista­safn Íslands að mál­verk­unum 250 og Þjóð­skjala­safnið að öllum papp­írum og skjölum sem hann átti.

Hann leit fyrst og fremst á sig sem Íslend­ing og var enn íslenskur rík­is­borg­ari þó að hann hafi dvalið nán­ast alla sína ævi erlendis. Verk hans hafa verið sýnd nokkrum sinnum hér á landi og einnig í Danmörku. Árið 1992 var sett upp leik­rit um lista­mann­inn í Borg­ar­leik­hús­inu sem bar heitið Dunganon. Leik­ritið skrif­aði vinur hans Björn Th. Björns­son og ger­ist það í Berlín á árunum 1942-1947. Nafn hans heyr­ist enn í dag því að elektróníska rokk­hljóm­sveitin Dunganon nefnd eftir lista­mann­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár