Eigið fé FSu nemur 88 prósentum af öllu eigin fé framhaldsskólanna

Rík­is­end­ur­skoðun telur að fjár­veit­ingar til fram­halds­skól­anna rati ekki á rétta staði. Mikið ójafn­ræði ríkir á milli skól­ana og ekki er tekið til­lit til aðstæðna hvers skóla fyrir sig.

Fjórðungur framhaldsskóla landsins hafa neikvætt eigið fé og voru 40 prósent þeirra reknir með halla á síðasta ári.
Fjórð­ungur fram­halds­skóla lands­ins hafa nei­kvætt eigið fé og voru 40 pró­sent þeirra reknir með halla á síð­asta ári. Mynd: Pexels

Fjöl­brauta­skóli Suð­ur­lands, FSu, var með jákvæðan höf­uð­stól sem nam 73 millj­ónum króna og 84 millj­óna rekstr­ar­af­gang í lok árs 2016. Eig­in­fjár­staða allra fram­halds­skól­anna var jákvæð um 83 millj­ónir í lok sama árs. Þetta kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar til Alþingis.

Rekstur fram­halds­skól­anna hefur staðið höllum fæti undan farin ár. Gerð var úttekt á þróun á rekstri fram­halds­skól­ana á árunum 2008-2013 af hálfu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Sú úttekt sýndi að 16 af 28 fram­halds­skólum hefðu verið reknir með halla árið 2013 og sam­eig­in­leg rekstr­ar­af­koma skól­anna hefði verið nei­kvæð um 109 millj­ónir króna og eig­in­fjár­staða þeirra nei­kvæð um 99 millj­ónir. Í þeirri úttekt kemur fram að fjár­hags­vanda fram­halds­skól­ana megi rekja til sam­dráttar í fjár­veit­ingum und­an­far­inna ára.

Jafnt yfir alla gengið

Viðbrögð mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins voru að meðal ann­ars að lækka launa­stiku reikni­for­rits sem ráðu­neytið not­ast við til að áætla rekstr­ar­kostnað. Samkvæmt Rík­is­end­ur­skoðun olli það því að sam­dráttur fjár­veit­inga dreifð­ist jafnt á alla skóla. Í umfjöllun Kjarnans kemur fram að það sé álit Rík­is­end­ur­skoð­unar að flatur nið­ur­skurður af þessum toga sé vafa­samur. „Ekki aðeins leggst hann mis­þungt á ein­staka skóla og mest á bók­náms­skóla þar sem laun vega hlut­falls­lega þyngst heldur vinnur hann einnig gegn þeirri við­leitni að for­gangs­raða í skóla­kerf­inu og taka á vanda­málum ein­stakra skóla.“

Í lok árs 2016 voru 11 af 27 fram­halds­skólum reknir með halla og voru þar af sjö skólar með nei­kvæða eig­in­fjár­stöðu. Hinir fjórir skól­arnir sem reknir voru með halla þurftu að ganga á jákvætt eigið fé til að mæta halla í rekstri. 

Þótt að eig­in­fjár­staða fram­halds­skól­anna í heild sé jákvæð þá eru 40 pró­sent þeirra reknir með halla og 25 pró­sent þeirra með nei­kvæða eig­in­fjár­stöðu. Rík­is­end­ur­skoðun telur að mennta­mála­ráðu­neytið hafi brugð­ist við fjár­hags­vanda fram­halds­skól­ana í heild í stað þess að taka sér­stak­lega á rekstr­ar­vanda ein­stakra skóla. Þetta hefur leitt til þess að FSu standi nán­ast einn undir því að sam­an­lögð eig­in­fjár­staða fram­halds­skól­anna er jákvæð. „Mikið ójafn­ræði er því milli ein­stakra skóla og hvetur Rík­is­end­ur­skoðun ráðu­neytið til að bæta úr því.“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár