Reiknilíkan menntamálaráðuneytisins ekki uppfært í fjórtán ár

End­ur­skoðun reikni­lík­ans sem nota á við útreikn­ing á fjár­veit­ingum til ein­stakra fram­hald­s­kóla er tíu árum á eftir áætlun og mun í fyrsta lagi vera lokið á næsta ári.

Flatir niðurskurðir til framhaldsskóla bitna mest á bóknámsskólum.
Flatir nið­ur­skurðir til fram­halds­skóla bitna mest á bók­náms­skólum. Mynd: Pexels.com

Rík­is­end­ur­skoðun hvetur mennta­mála­ráðu­neytið til að upp­færa reikni­líkan sem notað er við útreikn­inga fjár­fram­laga til fram­halds­skól­anna. Þetta kemur fram á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar. Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um rekstur fram­halds­skóla frá árinu 2014 kemur fram að for­sendur reikni­lík­ans­ins hafi ekki verið upp­færðar síðan 2003.

Mennta­mála­ráðu­neytið hóf vinnu árið 2014 við end­ur­skoðun á reikni­lík­an­inu og sam­kvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar til Alþingis mun þeirri vinnu ljúka í fyrsta lagi á næsta ári. Reikni­líkanið var tekið í notkun árið 1998 og segir í reglu­gerð frá 1999 að líkanið eigi að end­ur­skoða í heild sinni á að minnsta kosti fjög­urra ára fresti.

Áætlanir um meðallaun samræmast ekki raunveruleikanum

Í reglu­gerð­inni segir að ráð­herra geti breytt for­sendum lík­ans­ins hverju sinni og hefur launa­stiku þess verið breytt reglu­lega. Launa­stikunni er ætlað að end­ur­spegla raun­veru­leg með­al­laun kenn­ara en breyt­ingar á henni hafa valdið því að mik­ill munur er á launa­stikunni og raun­veru­legum með­al­launum kenn­ara.

Árið 2012 var launa­stikan lækkuð þannig að hún var 24 pró­sentum lægri en raun­veru­leg laun kenn­ara og hafði verið 11,5 pró­sent lægri árið áður. Launa­stikan var hækkuð aftur um 55,5 pró­sent milli árana 2015-2016 og er nú 5 pró­sentum frá raun­veru­legum með­al­launum kenn­ara.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur fram að lækkun launa­stik­unar sé við­bragð mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins við nið­ur­skurði og að lækk­unin valdi því að áhrif nið­ur­skurðar dreif­ist jafnt á alla skóla. Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að „að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar er flatur nið­ur­skurður af þessum toga vafa­samur. Ekki aðeins leggst hann mis­þungt á ein­staka skóla og mest á bók­náms­skóla þar sem laun vega hlut­falls­lega þyngst heldur vinnur hann einnig gegn þeirri við­leitni að for­gangs­raða í skóla­kerf­inu og taka á vanda­málum ein­stakra skóla.“

Notkun reiknilíkansins í andstöðu við tilgang þess

Samkvæmt reglu­gerð eiga for­sendur reikni­lík­ans­ins að skipt­ast í tvennt. Annars vegar almennar for­sendur sem ná til allra skóla og hins vegar for­sendur sem eiga að taka til­lit til sér­stöðu skóla.

Einnig er tekið fram að hlut­verk reikni­lík­ans­ins sé að „tryggja jafn­ræði skóla til fjár­veit­inga í sam­ræmi við stærð, gerð, stað­setn­ingu og sam­setn­ingu náms. Líkanið skal tryggja eftir því sem frekast er unnt fag­legt starf skól­anna um leið og það stuðlar að aðhaldi í með­ferð fjár­muna vegna kennslu, rekstrar og stofn­kostn­aðar. Í gerð lík­ans­ins skulu fel­ast mögu­leikar til þess að auka eða draga úr stuðn­ingi við til­tekin mark­mið skóla­starfs með sam­ræmdum hætti um leið og unnt verði með hlið­stæðum hætti að taka til­lit til sér­stakra aðstæðna“.

Í umfjöllun Kjarnans um stöðu Mennta­skól­ans við Sund (MS) bendir Már Vil­hjálms­son, rektor MS, á að skól­inn standi frammi fyrir því að geta ekki tekið inn nem­endur vegna þess að áætl­anir um brott­fall nem­enda stóð­ust ekki.

„Það virð­ist vanta ein­hvern sveigj­an­leika í kerf­inu að bregð­ast við,“ sagði Már. „Vegna þess að nem­endur fá val. Þeir fá val um að velja sér skóla og brautir og svo fram­veg­is. Þá er voða­lega erfitt að vera með þetta svona nið­ur­neglt að segja bara svona er þetta alveg sama hvað þeir vilja.“

Samkvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar til Alþingis er útdeil­ing fjár­muna sam­kvæmt núgild­andi reikni­lík­ani hvorki til þess fallið að tryggja jafn­ræði skól­anna né að fjár­magna alla rekstr­ar­þætti þeirra. Stofn­unin hvetur ráðu­neytið „til að ljúka vinnu við end­ur­skoðun reikni­lík­ans­ins, nýta það til að jafna stöðu skól­anna og tryggja þeim fjár­mögnun sam­kvæmt raun­hæfum áætl­unum og raun­veru­legum launa­kostn­aði“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár