Kennurum hugsanlega sagt upp vegna góðs gengis

Ekki fást fjár­veit­ingar fyrir nýnema í Mennta­skól­anum við Sund vegna þess að brott­fall nem­enda var minna en gert var ráð fyrir.

Menntaskólinn við Sund getur ekki tekið við nemendum vegna skorts á fjárveitingum, þrátt fyrir að húsnæði og starfsfólk séu til staðar.
Mennta­skól­inn við Sund getur ekki tekið við nem­endum vegna skorts á fjár­veit­ingum, þrátt fyrir að hús­næði og starfs­fólk séu til staðar. Mynd: Pexels.com

Miðað við áætl­aðar fjár­veit­ingar fyrir næsta skólaár þarf Mennta­skól­inn við Sund að taka inn þriðj­ungi færri nýnema nú en í fyrra. Þetta segir Már Vil­hjálms­son, rektor skól­ans.

„Þetta hefur nátt­úru­lega slæmar afleið­ingar, til dæmis hjá þeim sem eru að kenna náms­efni sem hugsað er fyrst og fremst fyrir nýnema, það er 33 pró­senta nið­ur­skurður í kennslu­magni hjá þeim og það er ekk­ert sem blasir við annað en til­færslur og upp­sagnir. Fjár­veit­ingar mið­ast við heild­ar­nem­enda­fjölda en hann getur breyst á milli ára. Það er alveg rétt að inn­ritun nýnema er miklu minni en und­an­farin ár og færri en við sjálf myndum kjósa.“

Már segir að nú þegar séu fleiri nem­endur við skól­ann en gert hafi verið ráð fyrir, en ákvarð­anir um fjár­veit­ingar byggi á heild­ar­fjölda nem­enda í skól­anum en ekki fjölda í hverjum árgangi.

Samkvæmt Má eru ástæð­urnar fyrir nem­enda­fjöld­anum einkum tvær. Önnur ástæðan er inn­leið­ing á nýju þriggja anna kennslu­kerfi sem er til þriggja ára og á að leysa hið hefð­bundna fjög­urra ára stúd­ents­nám af hólmi. „Það er ákveðin bólga sem fylgir því að vera með tvö kerfi sem ekki er hægt að kom­ast hjá, til dæmis vegna þess að kennslu­á­fang­arnir eru ólíkir í kerf­unum.“ 

Hin ástæðan sem Már nefnir er að nýja kerfið hefur dregið veru­lega úr brott­hvarfi nem­enda. Það hefur gert það að verkum að nem­endur eru fleiri en gert var ráð fyrir, þar sem færri hurfu frá námi en áætlað var. Már segir að hann sé ósáttur við að „þurfa að skera niður vegna þess að það gengur vel að ná mark­miðum ráðu­neytis að draga úr brott­hvarfi, mér fynd­ist frekar að horfa ætti á það með vel­þóknun heldur en að setja okkur rekstr­ar­lega í vand­ræði.“ 

Í Hvítbók: Um umbætur í menntun sem gefin er út af hálfu mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins er meðal ann­ars sett fram það mark­mið að draga skuli úr brott­hvarfi nem­enda á fram­halds­skóla­stigi. Már segir að skól­inn geti sýnt fram á það töl­fræði­lega að dregið hafi veru­lega úr brott­hvarfi frá skól­anum. Það sé þó ekki tekið til­lit til þess þegar kemur að því að ákvarða fjár­veit­ingar til skól­ans. „Ráðu­neytið stendur fast á því að við verðum að fækka nem­endum í skól­anum. Til þess að halda heild­ar­fjöld­anum réttum.“

Ráðuneytið með í ráðum

Már segir að þriggja anna kerfið sem skól­inn hefur tekið upp hafi verið hannað og skipu­lagt af starfs­mönnum skól­ans. Það hafi þó verið gert eftir þeim reglum sem mennta­mála­ráðu­neytið setur.

Ráðu­neytið setur ákveðin skil­yrði til dæmis varð­andi ein­inga­fjölda og inn­tak lyk­il­greina á borð við íslensku, ensku og stærð­fræði. „Svo búa skól­arnir til námskránna og hún þarf að fara í sam­þykkt­ar­ferli bæði upp í Mennta­mála­stofnun og svo er námskráin stað­fest og birt í Lög­birt­ing­ar­blað­inu. Þannig það er eng­inn skóli sem kemst upp með að vera með nám sem ekki er sam­þykkt af ráðu­neyt­inu.“

Már segir að kostn­að­ur­inn við að mennta hvern nem­enda sé svip­aður í báðum kerf­unum en þó hugs­an­lega örlítið lægri í þriggja ára kerf­inu. Þetta gerir það að verkum að kostn­aður við hvern nem­enda á árs­grund­velli er hærri í þriggja ára kerf­inu, þar sem heild­ar­kostn­aður við menntun deilist á þrjú ár í stað fjög­urra. „Það kostar alveg jafn mik­inn pen­ing að mennta þá, þeir eru bara með meira vinnu­á­lag heldur en hinir.“

Óþarflega erfiður rekstrargrundvöllur

Már segir að skól­inn sé einn af fjórum vin­sæl­ustu skólum lands­ins. For­inn­ritun er búin hjá þeim nem­endum sem eru að fær­ast af grunn­skóla­stigi yfir á fram­halds­skóla­stigið og segir hann aðsókn í skól­ann vera góða. „Miðað við stærð skóla þá erum við alveg í toppnum í land­inu, einn af fjórum efstu skól­anum, þannig að nem­endur vilja koma hingað.“

Hann segir ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að taka inn fleiri nem­endur annað en skortur á fjár­veit­ingum. „Við höfum hús­næði til að taka á móti þeim, það er búið að byggja við hús­næðið fyrir einn og hálfan millj­arð og hanna skóla fyrir 850 manns.“

Fjár­veit­ingar til skól­ans eru svip­aðar og síð­ustu ár en Már segir vanda­málið sé aðal­lega að ekki er tekið til­lit til þess hversu margir eru í skól­anum nú þegar og því kom­ast ekki allir að sem vilja. „Það virð­ist vanta ein­hvern sveigj­an­leika í kerf­inu að bregð­ast við. Vegna þess að nem­endur fá val. Þeir fá val um að velja sér skóla og brautir og svo fram­vegis. Þá er voða­lega erfitt að vera með þetta svona nið­ur­neglt að segja bara svona er þetta alveg sama hvað þeir vilja.“

Már telur þó alvar­leg­ustu áhrifin af ósveigj­an­leika kerf­is­ins þó vera á rekstr­ar­stöð­ug­leika skól­ans. „Það versta í þessu öllu saman er að það er eig­in­lega von­laust að reka skóla með svona miklum sveiflum. Það verður að vera ein­hver stöð­ug­leiki í þessu. Það er ekki hægt að reka skóla þar sem maður er ýmist að reka eða ráða fólk. Það verður að vera jafn­vægi bæði upp á starfs­fólk og nem­endur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár