Nýtt yfirtökutilboð á leiðinni í Refresco - Miklir hagsmunir Stoða

Mark­aðsvirði Refresco er um 170 millj­arðar íslenskra króna. Nýlega var yfir­tökutil­boði neitað í félagið en annað er á leið­inni. Jón Sig­urðs­son á sæti í stjórn Refresco.

Félagið PAI Partners SAS, sem er fjár­fest­inga­fé­lag sem ein­blínir á Evr­ópu­markað, er sagt vera að und­ir­búa yfir­tökutil­boð í hol­lenska drykkju­vöru­fram­leið­and­ann Refresco sem íslenska félagið Stoðir hf., áður FL Group, á ennþá 8,8 pró­sent hlut í. 

Fyrr í mán­uð­inum var til­boði þess upp á 1,4 millj­arða evra neitað, en sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg gæti end­ur­nýjað til­boð hljóðað upp á 1,62 millj­arða evra, eða sem nemur um 182 millj­örðum króna. Miðað við það verð er 8,8 pró­sent hlutur 16,3 millj­arða króna virði. 

Samkvæmt árs­reikn­ingi félags­ins fyrir síð­asta ár, sem lagður var fram á aðal­fundi 21. apríl síð­ast­lið­inn, var hlutur Stoða met­inn á tæp­lega 13 millj­arða.

Refresco er skráð á markað í Hollandi og er mark­aðs­verð þess, miðað við lokun mark­aða í gær, 1,44 millj­arðar evra, um 167 millj­arðar króna.

Árs­reikn­ing­ur­inn var sam­þykktur 15. febr­úar, en þá var Glitnir HoldCo, félagið sem varð til um eignir gamla Glitnis, stærsti eig­andi Stoða með ríf­lega 40 pró­sent hlut. Arion banki kom næstur með 16,4 pró­sent hlut og Lands­bank­inn 13,4 pró­sent.

Eins og greint var frá í Mark­aðnum í gær, þá hefur eign­ar­hald á Stoðum breyst á skömmum tíma, og eru íslenskir fjár­festar nú orðnir meiri­hluta­eig­endur eftir að hafa keypt eign­ar­hlut­inn af Glitni.

Auk TM sam­anstendur kaup­enda­hóp­ur­inn af félögum á vegum Jóns Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group, Einari Erni Ólafs­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Skelj­ungs, Örvari Kjærne­sted, fjár­festi og stjórn­ar­manni í TM, og Magnúsi Ármanni Jónssyni, fjár­festi og fyrr­ver­andi stjórn­ar­manni í FL Group. Jón hefur setið í stjórn Refresco frá árinu 2009 og þekkir því félagið vel.

Tekjur þess í fyrra námu 2,1 millj­arði evra, sam­kvæmt árs­reikn­ingi þess, eða sem nemur um 240 millj­örðum króna. Félagið er að mestu með Evrópu sem heima­markað en hefur einnig stigið skref inn á Banda­ríkja­markað.

Samkvæmt fyr­ir­tækja­skrá hefur ekki verið til­kynnt um þessi eig­enda­skipti né breyt­ingu á stjórn. Nýja stjórn skipa Jón Sig­urðs­son, Iða Brá Bene­dikts­dóttir, frá fyr­ir­tækja­sviði Arion banka, og Örvar Kjærne­sted. For­stjóri félags­ins er Júlíus Þor­finns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár