Segir hótelrekstur standa á brauðfótum ef VSK hækkar

Eigandi Centerhótel-keðj­unnar í Reykja­vík segir að fyr­ir­huguð VSK hækkun á ferða­þjónstuna muni leiða hót­el­rekstur í tap­rekstur.

Kristó­fer Oli­vers­son, eig­andi Center­Hotels-keðj­unn­ar í Reykja­vík, seg­ir í við­tali við Morg­un­blaðið í dag, að hót­el­geir­inn í land­inu verða rek­inn með tapi ef fyr­ir­hug­aðar hækk­an­ir á virðis­auka­skatti verða að veru­leika. Samkvæmt áformum stjórn­valda um breyt­ing á VSK leiða til þess að ferða­þjón­ustan fer úr ell­efu pró­sentum í 24 pró­sent, en breyt­ingin á að taka gildi í júlí á næsta ári.

Máli sínu til stuðn­ings bend­ir Kristó­fer á gögn sem Sam­tök ferða­þjón­ust­unn­ar hafa aflað um af­komu hót­ela frá ár­inu 2008. „Þau sýni að fram­legð af rekstr­in­um hafi ekki verið jafn­lít­il og nú. Meg­in­skýr­ing­arn­ar séu styrk­ing krón­unn­ar og hækk­andi launa­kostn­aður,“ segir í Morg­un­blað­inu.

Kristó­fer seg­ir að vegna þess­ara ytri aðstæðna, það er hækk­andi gengi krón­unnar og hækk­andi launa­kostn­aðar, þá geti hót­el­in ekki velt skatta­hækk­un­um á við­skipta­vini. Ekkert annað en tap­rekstur sé því í kort­unum hjá mörgum. 

Gengi krón­unnar hefur styrkst tölu­vert að und­an­förnu. Banda­ríkja­dalur kostar nú 106 krónur en fyrir einu hálfu ári kost­aði hann tæp­lega 140 krónur.

Gert er ráð fyrir því að 26 flug­fé­lög muni fljúga til lands­ins í sumar, en spár benda til þess að ferða­mönnum muni fjölga um 500 þús­und á þessu ári, og verði í kringum 2,3 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár