15 milljóna króna sekt Samherja felld úr gildi

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur fellt úr gildi stjórn­valds­sekt sem Seðla­banki Íslands lagði á útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherja vegna brota á gjald­eyr­is­lögum. Bankinn þarf að greiða fjórar millj­ónir í máls­kostnað.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur fellt úr gildi stjórn­valds­sekt sem Seðla­banki Íslands lagði á útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherja fyrir brot á gjald­eyr­is­lögum í fyrra. Sektin hljóð­aði upp á fimmtán millj­ónir króna. Seðla­bank­inn þarf einnig að greiða fjórar millj­ónir króna í máls­kostnað.

[links]Mál Seðla­bank­ans og Samherja á sér margra ára for­sögu, en það hófst með hús­leitum Seðla­bank­ans í höf­uð­stöðvum Samherja bæði í Reykja­vík og á Akureyri í mars árið 2012. Leit­irnar voru gerðar vegna gruns um brot á lögum um gjald­eyr­is­mál. Í fram­hald­inu kærði Seðla­­bank­inn Sam­herja og tengd fyr­ir­tæki fyrir brot gegn gjald­eyr­is­lögum til sér­­staks sak­­sókn­­ara, en svo kom í ljós að ekki var heim­ilt sam­­kvæmt lag­anna bók­staf að kæra fyr­ir­tækin fyrir brot á lög­­unum sem um ræddi. Þá kærði bank­inn ein­stak­l­inga innan fyr­ir­tæk­is­ins, það er Þor­­stein Má Bald­vins­­son, for­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, og ­þrjá aðra lyk­il­­starfs­­menn fyrir að brjóta gegn gjald­eyr­is­höft­un­um.

Í sept­­em­ber 2015 felldi emb­ætti sér­­staks sak­­sókn­­ara niður mál gegn þeim. Eftir að mál­inu lauk, hefur Sam­herji sótt á Seðla­­bank­ann og hefur Þor­­steinn Már ítrekað sagt að ein­hver verði að axla ábyrgð vegna þess­­ara aðgerða gegn Sam­herja, þar sem fyr­ir­tækið hefði ekki brotið gegn lög­­um.

Eftir að mál­inu lauk hjá sér­stökum sak­sókn­ara skoð­aði Seðla­bank­inn hvort ástæða væri til að beita stjórn­valds­sektum, og lagði svo fram sátta­til­boð við Samherja síð­asta sumar. Það hljóð­aði upp á 8,5 millj­óna sekt í rík­is­sjóð, en Samherji hafn­aði því boði. Þá tók bank­inn þá stjórn­valds­á­kvörðun að Samherji skyldi greiða 15 millj­ónir króna.

Í mál­inu fyrir hér­aðs­dómi hélt Samherji því fram að Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri og aðrir starfs­menn bank­ans hefðu verið van­hæfir til með­ferðar máls á hendur fyr­ir­tæk­inu. Starfs­fólk bank­ans, með banka­stjór­ann „í broddi fylk­ingar, hafi reitt afar hátt til höggs í rann­sókn sinni og öllum mála­til­bún­aði“ allt frá því að hús­leit var gerð árið 2012. Þá hafi Már tjáð sig opin­ber­lega um meint brot Samherja.

Þá sagði Samherji að Seðla­bank­inn hefði verið búinn að fella niður málið á hendur fyr­ir­tæk­inu og því hafi verið um að ræða end­ur­upp­töku máls sem fáist ekki stað­ist. Í þriðja lagi hafi sektin ekki byggst á gildum refsi­heim­ildum, og í fjórða lagi að efn­is­lega hafi ekki verið til að dreifa brotum gegn gjald­eyr­is­lög­unum.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur segir að ekk­ert hafi komið fram í mál­inu um að ákvörðun Seðla­bank­ans um að hefja með­ferð máls­ins að nýju í fyrra hafi byggt á nýjum gögnum eða vís­bend­ingum um slík gögn. Þó hefði verið ríkt til­efni til slíks rök­stuðn­ings. Bankinn hafi ekki sýnt fram á fyrir dómi á hvaða grund­velli hafi verið heim­ilt að taka málið upp.

Þor­­steinn Már hefur einnig kært tvo yfir­­­menn í Seðla­­bank­­anum vegna máls­ins til lög­­regl­unnar á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu, þau Arnór Sig­hvats­­son aðstoð­­ar­­seðla­­banka­­stjóra og Ing­i­­björgu Guð­­bjarts­dótt­­ur, fram­­kvæmda­­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans.

Byggir kæran meðal ann­­ars á því að þau hafi ekki aðeins komið „rang­­­færsl­um, vill­andi mála­til­­­bún­­­aði og ófull­nægj­andi upp­­­lýs­ing­um“ til leiðar heldur einnig kom­ist undan því að koma „full­nægj­andi upp­­­lýs­ingum til emb­ættis sér­­­staks sak­­­sókn­­­ara við rann­­­sókn í saka­­­máli emb­ætt­is­ins“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár