Ríkisendurskoðun stendur við niðurstöðu bótaskýrslu en viðurkennir mistök

Rík­is­end­ur­skoðun við­ur­kennir að hafa gert mis­tök í skýrslu um bóta­svik, en stendur engu að síður við meg­in­nið­ur­stöð­urnar. Stofn­unin seg­ist ekki geta borið ábyrgð á því hvernig almenn­ingur, fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn túlk­uðu skýrsl­una.

Rík­is­end­ur­skoðun við­ur­kennir að „viss mis­tök“ hafi verið gerð í skýrslu um eft­ir­lit Trygg­inga­stofn­unar með bóta­greiðslum sem kom út fyrir fjórum árum síðan. Skýrslan var mikið rædd af stjórn­mála­mönnum og var meðal ann­ars grund­völlur umfangs­mik­illa laga­breyt­inga þar sem eft­ir­lit með líf­eyr­is­þegum var hert.

Fjallað var um málið í Kast­ljósi í síð­asta mán­uði, en þar kom fram að fátt benti til ann­ars en að Rík­is­end­ur­skoðun hafi stór­lega ofmetið mögu­leg bóta­svik skjól­stæð­inga Trygg­inga­stofn­unar í skýrsl­unni. Í skýrsl­unni kom fram að bóta­svik gætu numið hátt í fjórum millj­örðum króna á hverju ári. Í skýrsl­unni var vísað til danskrar skýrslu um bóta­svik, og byggt á nið­ur­stöðum hennar um að umfang bóta­svika og mis­greiðslna væri 3 til 5 pró­sent.

Í ljós hefur komið að danska skýrslan byggð­ist ekki á rann­sókn heldur að miklu leyti á skoð­ana­könnun meðal starfs­manna sveit­ar­fé­laga og almenn­ings um hvað þeir álitu umfangið vera. Í annarri skýrslu sem Deloitte gerði fyrir dönsk stjórn­völd á svip­uðum tíma kom hins vegar fram að hlut­fallið væri undir einu pró­senti.

Rík­is­end­ur­skoðun hefur nú gefið út frétta­til­kynn­ingu vegna umfjöll­unar Kast­ljóss og umræðu í kjöl­farið. Þar gengst stofn­unin við því að hafa gert mis­tök. „Meg­in­mi­s­tökin fel­ast ann­ars vegar í því að hafa ekki til­greint sér­stak­lega í skýrsl­unni hvernig staðið var að til­tek­inni úttekt sem Rík­is­end­ur­skoðun vísar í á umfangi hugs­an­legra bóta­svika og ofgreiðslna í Danmörku árið 2011 og hins vegar fyrir að hafa þýtt rang­lega eitt hug­tak sem þar kemur fram. Rík­is­end­ur­skoðun biðst vel­virð­ingar á þeim mis­ökum. Einnig þykir stofn­un­inni miður að í frétta­til­kynn­ingu hennar um skýrsl­una hafi ekki verið sleg­inn sami skýri var­nagli og í skýrsl­unni sjálfri um hugs­an­legt umfang bóta­svika hér á landi ef það væri sam­bæri­legt við umfang bóta­svika í Danmörku, eins og það var áætlað í áður­nefndri úttekt.“

Að öðru leyti seg­ist stofn­unin standa við meg­in­nið­ur­stöð­urnar í skýrsl­unni, og vísar því „sér­stak­lega á bug að nið­ur­stöður skýrsl­unnar lit­ist af per­sónu­legum skoð­unum skýrslu­höf­unda eða jafn­vel póli­tískum sjón­ar­miðum, eins og gefið hefur verið í skyn. Stofn­unin ber á hinn bóg­inn ekki ábyrgð á hvernig almenn­ingur, fjöl­miðlar eða stjórn­mála­menn lásu og túlk­uðu skýrsl­una á sínum tíma.“

Þá segir Rík­is­end­ur­skoðun að umræðan um málið bygg­ist aðeins á einum hluta skýrsl­unnar, það er um mögu­legt umfang bóta­svika. Meg­in­mark­miðið hafi hins vegar verið að kanna eft­ir­lit Trygg­inga­stofn­unar með bóta- og líf­eyr­is­greiðslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár