Refskákin um framtíð Bretlands

Hvert stefnir Bretland? Kristinn Haukur Guðnason, sagn­fræð­ingur rýnir í stöð­una sem upp er komin vegna Brexit.

Það ríkir 16. aldar stemn­ing í breskum stjórn­málum þessa dag­ana. Tvær konur, Theresa May og Nicola Sturgeon bít­ast um völd og yfir­ráð á eyj­unni líkt og Elísabet I og María Skota­drottn­ing sem lentu saman vet­ur­inn 1569-1570. Þá virð­ast helstu fjand­menn Eng­lend­inga nú vera Spán­verjar líkt og árið 1588 þegar þeir sendu flot­ann ósigr­andi til að her­nema eyj­una. Elísabet stóð uppi sem sig­ur­veg­ari í báðum þessum rimmum en það er alls óvíst hvort að Theresu May tak­ist hið sama. Sturgeon hefur fært fram sitt fyrsta peð og nú er það May að svara.

Sturgeon spilar djarft

Flestir bjugg­ust við því að vind­ur­inn færi úr seglum Skoska Þjóð­ar­flokks­ins (SNP) með brott­hvarfi hins lit­ríka leið­toga þeirra, Alex Salmond, eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um sjálf­stæði lands­ins þann 18. sept­em­ber árið 2014. Við taumunum tók Nicola Sturgeon sem var alger­lega óþekkt utan Skotlands og innan Skotlands talin sjarma­laus og hreint út sagt leið­in­leg. Hún hafði verið afar náinn sam­starfs­maður Salmond og flestir bjugg­ust við því að hann myndi í raun stýra flokknum í gegnum hana. Sem leið­togi stærsta flokks­ins á skoska þing­inu var hún kjörin fyrsti ráð­herra Skotlands og í því hlut­verki hefur hún sprungið út. Hún er vel sjá­an­leg og heldur þrumu­ræður sem eru bæði hríf­andi og upp­lýsandi.

Í sínum fyrstu kosn­ingum til breska þings­ins árið 2015 vann hún stór­sigur og flokk­ur­inn bætti við sig 50 þing­sætum og vann öll kjör­dæmi lands­ins nema 3. Salmond hafði nappað fylg­inu af Verka­manna­flokknum, stærsta flokki Skotlands um ára­tuga skeið, með því að stela hug­mynda­fræði þeirra og bar­áttu­málum varð­andi kjara­mál og fleira. Sturgeon fylgdi þess­ari línu en náði einnig að gera frjáls­lyndi að einni helstu hug­mynda­fræði flokks­ins. Með því að setja frjáls­lynd stefnu­mál á odd­inn, t.d. í inn­flytj­enda­málum, aðgreindi hún Skotland enn fremur frá Englandi þar sem íhalds­sami armur Íhalds­flokks­ins og þjóð­ern­ispópu­lista­flokk­ur­inn UKIP voru í upp­gangi. Þessi aðgrein­ing kom glögg­lega í ljósi í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni um brott­hvarf Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu (Brexit) þann 23. júní síð­ast­lið­inn. 62% Skota kusu með áfram­hald­andi veru í Evr­ópu­sam­band­inu og í höf­uð­borg­inni Edinborg var hlut­fallið rúm­lega 74% (hæst allra borga Bret­lands).

Það sem gerði kosn­ing­una enn athygl­is­verð­ari var að allar 32 sýslur Skotlands kusu eins. Allt Skotland var sam­einað gegn Brexit og þar með taldi Sturgeon sig hafa umboð til þess að fara með málið áfram. Þann 13. mars til­kynnti hún form­lega að hún myndi sækj­ast eftir sam­þykki skoska þings­ins um að halda aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði.

[adspot]

Verðugur andstæðingur

Fáir for­sæt­is­ráð­herrar Bret­lands hafa tekið við emb­ætti í jafn slæmri stöðu og Theresa May sum­arið 2016, þ.e. ef und­an­skildir eru David Lloyd George og Winston Churchill sem tóku við í miðri heims­styrj­öld. May tók að sér það óöf­unds­verða verk­efni að leiða Brexit (sem hún sjálf var and­víg) með til­heyr­andi samn­ingum við öll aðild­ar­ríkin. Fyrir utan það að ná sem hag­stæð­ustu samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið beið hennar það verk­efni að lægja öldur heima­fyrir.

Brexit var sam­þykkt með ein­ungis tæp­lega 52% meiri­hluta og ljóst að atkvæða­greiðslan hjó Bretland í tvennt. Í grófum dráttum voru það ann­ars vegar íhalds­samir, minna mennt­aðir, eldri Eng­lend­ingar í dreif­býli. Hins vegar frjáls­lynt, menntað, yngra fólk í stór­borgum og svæðum utan Englands. Líkt og Sturgeon var May ekki tal­inn hríf­andi stjórn­mála­maður áður en hún sett­ist að í Downing stræti 10. Hún var inn­an­rík­is­ráð­herra um áraraðir og þótti íhalds­söm á sumum sviðum (inn­flytj­enda­málum, glæpum) en frjáls­lynd á öðrum (rétt­indum sam­kyn­hneigðra). Hún hefur verið upp­nefnd “kerf­is­mann­eskja” og sökuð um að vera laus við hug­sjónir.

En kannski var það einmitt það sem stuðn­ings­menn Brexit þurftu, þ.e. að fá miðju­mann­eskju en ekki blóð­heita hug­sjóna­mann­eskju til að sigla skip­inu í gegnum kom­andi ólgu­tíma. Þess vegna hefur stjórn­ar­tíð hennar byrjað vel fyrir hana sjálfa og Íhalds­flokk­inn. Per­sónu­legar vin­sældir hennar eru í hæstu hæðum (meira að segja í Skotlandi) en Verka­manna­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndir Demókratar eru í molum. Að öllum lík­indum munu Íhalds­menn bæta veru­lega við sig í næstu þing­kosn­ingum, sem verður mögu­lega flýtt til að styrkja umboð May. Eina raun­veru­lega ógnin við stjórn hennar er því Skoski Þjóð­ar­flokk­ur­inn og leið­togi þeirra, Nicola Sturgeon.

Störukeppni í Glasgow

Strax eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu var farið að tala um að það þyrfti að end­ur­taka atkvæða­greiðsl­una um sjálf­stæði Skotlands. Flestir Skotar bjugg­ust ekki við að sjá aðra atkvæða­greiðslu fyrr en eftir marga ára­tugi en nú var ljóst að for­send­urnar höfðu breyst umtals­vert. Vilji Englands og Skotlands fór ekki saman og margir Skotar litu svo á að Eng­lend­ingar væru að draga þá nauð­uga út úr Evr­ópu­sam­starf­inu. Eftir sem leið á haustið urðu þær raddir sífellt hávær­ari að kjósa þyrfti aftur, fyrr en seinna, og Sturgeon tók heils­hugar undir þann mál­stað. Sturgeon segir nú að Bretland stefni í “hart Brexit”, þ.e. að landið fái ekki neinn aðgang að innri mark­aði Evrópu, og að Skotar sem þjóð verði að hafa val­kost milli þeirrar leiðar og að vera sjálf­stæðir í Evrópu. May bregst við með því að segja að önnur atkvæða­greiðsla um sjálf­stæði Skotlands sé alls ekki tíma­bær.

Athyglin verði að vera á Brexit-samn­ing­unum sjálfum og Bretar verði að standa þétt saman í þeim til að tryggja bestu útkom­una. Sturgeon stefnir á að halda aðra atkvæða­greiðslu síðla árs 2018 eða snemma árs 2019, áður en að Bretar gangi út. En May segir að samn­ing­arnir munu taka langan tíma og Skotlands­málið geti tafið þá enn frekar. Allur efi um grund­völl Stóra Bret­lands sem sam­ein­aðs ríkis myndi gera samn­inga­um­leit­anir óhugs­andi.

„Það er nú aug­ljóst að eina tak­mark SNP síðan í júní hefur verið að nota Brexit sem fyr­ir­slátt til að halda aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði.“

Sturgeon og May fund­uðu á hót­eli í Glasgow þann 27. mars síð­ast­lið­inn í um það bil klukku­stund. Þrúgandi and­rúms­loft var á fund­inum og ekk­ert kom út úr honum annað en stað­fest­ing á þeirri stöðu sem upp var komin. Eftir fund­inn sagði May Brexit vera tæki­færi fyrir þjóðir Stóra Bret­lands að styrkja böndin en Sturgeon sagð­ist pirruð á því að May hlust­aði ekki á kröfur Skota. Degi seinna var til­laga Sturgeon um aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði sam­þykkt á skoska þing­inu með 69 atkvæðum gegn 59.

Flókið endatafl

Vandi Nicolu Sturgeon er fólg­inn í því að sam­þykki skoska þings­ins er ekki nægur. Hún þarf einnig að fá sam­þykki frá breska þing­inu í Westminster. Vandi May er annar og meiri, þ.e. hvernig þessu verður svarað. David Mundell, Skotlands­mála­ráð­herra Íhalds­stjórn­ar­innar, hefur sagt að önnur atkvæða­greiðsla um sjálf­stæði myndi ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi á næsta ára­tug, eftir að Brexit væri til lykta leitt. En það er hins vegar áhætta að segja ein­fald­lega: “Nei, ekki núna” við skoska þingið. Að gera lítið úr vilja skoska þings­ins gæti komið í bakið á Westminster því að Sturgeon myndi hik­laust nota höfn­un­ina sem vopn heima­fyrir. Íhalds­stjórnin er því smeyk við að styggja ekki Skota um of og efla þar með þjóð­ern­is­kennd þeirra.

Theresa May gæti hins vegar ákveðið að segja ein­fald­lega já og krossa fingur því að það er langt því frá gefið að Skotar sam­þykki að yfir­gefa Stóra Bretland í annarri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Árið 2014 kusu rúm 55% með áfram­hald­andi veru í Stóra Bret­landi en tæp 45% með sjálf­stæði. Einungis 4 sýslur kusu með sjálf­stæði og þar var Glasgow, fjöl­menn­asta borg lands­ins, veiga­mest. Þetta var þó mun jafn­ara en búist hafði verið við því að um langt skeið mæld­ist stuðn­ingur við sjálf­stæði ein­ungis um þriðj­ungur í skoð­ana­könn­unum. Nú mælist stuðn­ingur við sjálf­stæði yfir­leitt á bil­inu 40-45% en Sturgeon treystir á að hann hækki í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar líkt og gerð­ist árið 2014 og fari þá yfir 50%.

Líkt og 2014 flækja Evr­ópu­málin hins vegar mynd­ina og þar koma Spán­verjar inn. Spán­verjar væru hik­andi við að hleypa Skotum strax inn í Evr­ópu­sam­bandið í ljósi þeirra eigin stöðu með Kata­lóníu. Ef Skotar fengju sjálf­stæði gæti EFTA aðild hins vegar verið mögu­leiki fyrir þá. Spán­verjar eru þó ekki aðeins að vefj­ast fyrir Sturgeon því að eftir Brexit hafa þeir ítrekað kröfur sínar á Gíbraltar-höfða. Á Gíbraltar kusu ein­ungis 4% með Brexit en Bretar hafa verið harðir á því að sleppa þó ekki tak­inu af höfð­anum. Það hefur meira að segja verið talað um að beita hernum gegn Spán­verjum í því sam­hengi.

Eitt helsta vanda­mál sem Theresa May stendur frammi fyrir varð­andi mögu­lega atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotland er að finna leið­toga til að berj­ast fyrir sínum mál­stað. Hún sjálf er ekki skosk og það yrði feigð­ar­flan að velja eigin flokks­menn. Því þyrfti hún að stóla á Verka­manna­flokk­inn sem er þó mun lemstraðri nú en hann var árið 2014. Fyrrum fjár­mála­ráð­herr­ann Alistair Darling stýrði bar­átt­unni árið 2014 en nú hefur tveimur gam­al­grónum nöfnum verið velt upp, þ.e. fyrrum for­sæt­is­ráð­herr­unum Tony Blair og Gordon Brown. Þeir hafa báðir sagt nýlega að þeir styðji áfram­hald­andi veru Skotlands í Stóra Bret­landi en spurn­ingin er hvort þeir hafi ennþá nægi­lega vigt til að takast á við Nicolu Sturgeon.

Fleiri vilja tefla

Skotland og Gíbraltar-höfði eru ekki einu lömbin sem Theresa May þarf að halda innan girð­ingar. Aðeins nokkrum klukku­tímum eftir að Nicola Sturgeon lýsti því yfir að Skotar myndu fara fram á atkvæða­greiðslu gerði Michelle O´Neill, leið­togi Sinn Fein í Norður Írlandi, slíkt hið sama. Líkt og Skotland kaus Norður Írland gegn Brexit með um 56% atkvæða. O´Neill segir:

„Brexit verður stór­slys fyrir efna­hag­inn, og stór­slys fyrir fólk Írlands. Breska stjórnin neitar að hlusta á meiri­hlut­ann og neitar að standa við skuld­bind­ingar sínar og samn­inga.“

Samkvæmt frið­ar­samn­ingum frá árinu 1998 hafa Norður Írar val um að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að ganga út úr Stóra Bret­landi. En ein­ungis ef fyr­ir­séð er að almennur þjóð­ar­vilji sé fyrir því (sem hefur ekki verið sjá­an­legur í skoð­ana­könn­unum hingað til). Staða Norður Írlands er þó nokkuð tölu­vert ólík stöðu Skotlands. Þær sýslur sem eru að mestu byggðar Bretum kusu með Brexit en írsku sýsl­urnar kusu gegn. Þá er það ekki tak­mark Sinn Fein og ann­arra þjóð­ern­is­sinn­aðra flokka að Norður Írland verði sjálf­stæð þjóð, heldur að landið gangi inn í Írland og kom­ist þar með aftur inn í Evr­ópu­sam­bandið.

Eftir Brexit-kosn­ing­una eru sífellt fleiri farnir að tala um sjálf­stæða Lundúni þar sem um 60% íbú­anna kusu með áfram­hald­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. “Londependence” heitir hreyf­ingin og virð­ist í fyrstu frá­leit ólíkt máli Skotlands, Norður Írlands og Gíbraltar sem eiga öll sína fána og fót­boltalands­lið. En hún er þó ekki ný af nál­inni og Londependence-sinnar líta fyrst og fremst til Singapúr sem fyr­ir­myndar að sjálf­stæðu borg­ríki Lundúna. Helsti tals­mað­ur­inn er hinn ungi David Lammy, fyrrum menn­ing­ar­mála­ráð­herra Bret­lands. Hann telur allar for­sendur til staðar fyrir sjálf­stæði borg­ar­innar og bein­tengir kröf­una við bar­áttu Skota nú. Í Lundúnum búa rúm­lega 8 millj­ónir íbúa, 3 millj­ónum fleiri en í Skotlandi, og efna­hag­ur­inn er um tvö­falt stærri.

Tæplega 200.000 und­ir­skriftir hafa safn­ast á net­inu til stuðn­ings hug­mynd­inni en hún hefur þó enn ekki víð­tæka skírskotun. Að sleppa tak­inu á höf­uð­borg­inni er senni­lega það síð­asta sem Theresu May dytti í hug að gera. Upp­gangur hreyf­ing­ar­innar er þó gott dæmi um það hversu mikið róstur er komið á í bresku sam­fé­lagi eftir Brexit atkvæða­greiðsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár