Venjuleg barnafjölskylda fær engar barnabætur á Íslandi - ólíkt hinum Norðurlöndunum

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, telur of miklar sveiflur í fram­lagi rík­is­ins til barna­bóta og að end­ur­skoða þurfi kerfið í heild sinni.

Venjuleg barnafjölskylda fær engar barnabætur á Íslandi - ólíkt hinum Norðurlöndunum
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir Formaður BSRB, telur mik­il­vægt að farið verði í heild­ar­end­ur­skoðun á barna­bóta­kerf­inu. Mynd: Aðsend/BSRB

Morg­un­verð­ar­fundi á vegum BSRB um barna­bóta­kerfið og leiðir til úrbóta var að ljúka. Þar kynnti Kolbeinn Stef­áns­son, doktor í félags­fræði, nýja skýrslu sem hann vann fyrir BSRB þar sem barna­bóta­kerfið á Íslandi er borið saman við kerfi hinna Norð­ur­land­anna. 

„Við hjá BSRB teljum mik­il­vægt að það verði farið í heild­ar­end­ur­skoðun á barna­bóta­kerf­inu með það að mark­miði að tryggja að fleiri fái fullar bætur. Það er jákvætt að stuðn­ingi sé beint til þeirra sem þurfa mest á honum að halda en að sama skapi er ljóst að mun fleiri þurfa á slíkum stuðn­ingi að halda,“ segir Sonja. 

Í skýrsl­unni kemur fram að barna­bóta­kerfið hér á landi sé mjög lág­tekju­miðað. Skerð­ing­ar­mörk mið­ist við lægstu laun fyrir fullt starf á almennum vinnu­mark­aði. Það er því svo að vísi­tölu­fjöl­skylda, tveir for­eldrar sem eiga tvö börn, sem bæði eru með með­al­tekjur fá svo gott sem engar barna­bætur. Slíkar fjöl­skyldur fá hins­vegar umtals­verðar barna­bætur á hinum Norð­ur­lönd­unum. Barna­bætur eru tekju­tengdar á Íslandi og í Danmörku en ekki Í Noregi, Svíþjóð og Finn­landi.

„Mark­miðið með barna­bóta­kerf­inu er að jafna tekjur og brúa bilið milli þeirra sem minna mega sín og þeirra sem hafa meira milli hand­anna. Það segir sig sjálft að því mark­miði er ekki náð ef nán­ast allir á vinnu­mark­aði að und­an­skyldum þeim sem eru á lág­marks­launum fá veru­lega skerð­ingu á barna­bótum,“ segir Sonja.

Styður ekki við meðaltekju fjölskyldur

Vísi­tölu­fjöl­skylda með með­al­tekjur fær 5.505 krónur á ári ef bæði börnin eru yngri en sjö ára en ekk­ert ef annað eða bæði hafa náð sjö ára aldri. Barna­bóta­kerfið gerir þannig lítið sem ekk­ert fyrir hina dæmi­gerðu með­al­tekju vísi­tölu­fjöl­skyldu á Íslandi. 

„Þessi regla um auknar barna­bætur til barna yngri en sjö ára virð­ist hafa verið inn­leidd strax í upp­hafi fyrir næstum hálfri öld en litlar sem engar skýr­ingar er að finna á því hvers vegna þetta ald­ur­svið­mið er í hvorki þáver­andi né núver­andi barna­bóta­kerfi. Flestar rann­sóknir á útgjöldum barna­fjöl­skyldna sýna einmitt þvert á móti að kostn­að­ur­inn auk­ist eftir því sem börnin eld­ast,“ segir hún. 

Vísi­tölu­fjöl­skylda með með­al­tekjur fær 5.505 krónur á ári ef bæði börnin eru yngri en sjö ára en ekk­ert ef annað eða bæði hafa náð sjö ára aldri.

Sonja bendir á að miklar sveiflur hafi verið í fram­lagi ríks­ins til barna­bóta á und­an­förnum árum. „Meg­in­lín­urnar sem má greina þar er að þegar það þarf að spara er skorið niður en þegar vel árar er ekki leið­rétt til sam­ræmis við fyrri skerð­ingar. BSRB hefur til fjölda ára bent á að fjár­stuðn­ingur vegna fram­færslu barna er til­tölu­lega lít­ill hér á landi sam­an­borið við hin Norð­ur­löndin og enn fremur önnur ríki OECD“.

Engin heildstæð hugsun á bak við kerfið

Í skýrsl­unni bendir Kolbeinn á að íslenska barna­bóta­kerfið sé fremur flókið. Það byggi á hámarks­fjár­hæðum, skerð­ing­ar­hlut­föllum, skerð­ing­ar­mörkum, hjú­skap­ar­stöðu for­eldra og fjölda og aldri barna. Sumt virki mót­sagna­kennt eða orki tví­mælis og erfitt sé að greina heild­stæða hugsun bak við kerfið. 

Í fjár­lögum fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir því að skerð­ing­ar­mörk barna­bóta hækki um 25 þús­und krónur á mán­uði fyrir ein­stæða for­eldra og 50 þús­und krónur fyrir for­eldra í hjú­skap. 

Nýir kjara­samn­ingar fela í sér launa­hækk­anir á næsta ári og í skýrsl­unni er tekið dæmi um að í jan­úar 2020 munu skerð­ing­ar­mörk barna­bóta nema 325 þús­und krónum á mán­uði fyrir ein­stætt for­eldri og 650 þús­und fyrir for­eldra í hjú­skap (eða tvisvar sinnum 325 þús­und). Á þeim tíma verður lág­marks­tekju­trygg­ingin á almennum vinnu­mark­aði, það er lægstu laun fyrir ein­stak­ling í fullu starfi, 317 þús­und krónur á mán­uði. Þann 1. apríl sama ár hækkar lág­marks­launa­trygg­ingin í 335 þús­und krónur á mán­uði. Neðri skerð­ing­ar­mörk barna­bóta verða eftir sem áður 325 þús­und krónur.

Einnig er bent á að í ljósi þess að skerð­ing­ar­mörk barna­bóta á Íslandi liggi mjög lágt, nærri lág­marks­tekju­trygg­ingu kjara­samn­inga á almennum mark­aði, er afleið­ingin að margar lág­tekju­fjöl­skyldur fá skertar barna­bætur. „Nú er fæð­ing­ar­tíðni í sögu­legu lág­marki og því til mik­ils að vinna að auka stuðn­ing við barna­fjöl­skyldur,“ segir Sonja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár