Götublað leggur til atlögu við loftslagsvísindamenn

Vís­inda­nefnd Banda­ríkja­þings dreifir alvar­legum ásök­unum bresks götu­blaðs um meint fals og blekk­ingar banda­rískra alrík­is­vís­inda­manna. Nið­ur­stöður vís­inda­mann­anna stað­festar.

Tækni­legur ágrein­ingur um með­ferð gagna einnar umtöl­uð­ustu lofts­lags­rann­sóknar síð­ari ári á milli vís­inda­manna banda­rískrar alrík­is­stofn­unar breytt­ist í sam­særi lofts­lags­vís­inda­manna um að blekkja þjóð­ar­leið­toga til aðgerða með fölsuðum gögnum í með­förum bresks götu­blaðs um síð­ustu helgi. Vís­inda­menn hafa verið fljótir að kveða nýj­ustu sam­sær­is­kenn­ing­una niður.

Um ára­bil hefur fámennur en hávær hópur fólks haldið því fram að vís­inda­menn um allan heim hafi falsað gögn um hita­stig jarðar til að sýna fram á hnatt­ræna hlýnun af völdum manna. Þessi hópur taldi sig hafa fengið enn frek­ari stað­fest­ingu á hug­myndum sínum um síð­ustu helgi þegar fyr­ir­sögn í götu­blað­inu Mail on Sunday básún­aði: „Afhjúpun: Hvernig þjóð­ar­leið­togar voru gabb­aðir til að fjár­festa millj­arða með hag­ræddum gögnum um hlýnun jarðar“. Þar var því var haldið fram að slóttugir banda­rískir alrík­is­vís­inda­menn hefðu átt við gögn um hita­stig til að láta líta út fyrir að hlýnun jarðar und­an­farna ára­tugi hafi verið meiri en raun ber vitni.

Málið snýst um rann­sókn vís­inda­manna Haf- og lofts­lags­rann­sókn­ar­stofn­unar Banda­ríkj­anna (NOAA) sem birt var sum­arið 2015 og vakti mikla athygli á sínum tíma. Í henni voru upp­færðar hita­stigs­tölur not­aðar til að sýna að ekki hefði hægt á hnatt­rænni hlýnun und­an­farna tvo ára­tugi eins og kenn­ingar höfðu verið uppi um heldur hefði hún verið stöðug síð­ustu öld­ina.

Full­yrð­ingar Mail on Sunday byggj­ast á bloggskrifum John Bates, fyrr­ver­andi starfs­manns NOAA, sem segir að aðstand­endur rann­sókn­ar­innar hafi ekki fylgt reglum stofn­un­ar­innar um gögn og flýtt birt­ingu nið­ur­staðn­anna til að hafa áhrif á útkomu lofts­lags­fundar Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem Par­ís­ar­sam­komu­lagið var und­ir­ritað.

Hléið sem aldrei var

Til að skilja upp­þotið nú þarf að skilja þýð­ingu þessa meinta „hlés“ á hnatt­rænni hlýnun og hvernig rann­sókn NOAA var tekið á sínum tíma. And­stæð­ingar lofts­lags­vís­inda stukku á hug­myndir vís­inda­manna um að svo virt­ist sem að hægt hefði á hlýn­un­inni sem mæld­ist eftir 1998 til að skapa efa um að hnatt­ræn hlýnun af völdum manna ætti sér yfir höfuð stað og að menn þyrftu að bregð­ast við henni. Á sama tíma grun­aði marga vís­inda­menn þó að orsökin fyrir því að þeir greindu hæg­ari hlýnun væri sú að þeir hefðu van­metið hlýnun hafs­ins sem hefur drukkið í sig meiri­hluta hlýn­un­ar­innar sem menn hafa valdið

Þegar nið­ur­stöður NOAA undir for­ystu Thomas Karl, sem þá var for­stöðu­maður umhverf­is­upp­lýs­inga­mið­stöðvar hennar, voru birtar í tíma­rit­inu Science sum­arið 2015 var þessum efa­semda­mönnum ekki hlátur í huga. Upp­færðar tölur um hita­stig yfir sjó leiddu í ljós að ekki hefði hægt á hlýnun. Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að hita­stigs­mæl­ingar séu upp­færðar eftir á, meðal ann­ars vegna mis­mun­andi mæli­að­ferða. Í rann­sókn­inni voru töl­urnar upp­færðar með því að breyta vægi mis­mun­andi mæli­að­ferða fyrir hita­stig yfir sjó til að fá nákvæm­ari nið­ur­stöður.

Vís­inda­nefnd full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings undir for­ystu repúblikan­ans og lofts­lags­vís­inda­af­neit­ar­ans Lamars Smith reyndi meðal ann­ars að stefna stofn­un­inni til að afhenda per­sónu­lega tölvu­pósta vís­inda­mann­anna, svo gramur var hann NOAA vegna rann­sókn­ar­innar. NOAA neit­aði hins vegar.

„Það var óheppi­legt fyrir þessa rík­is­stjórn að lofts­lags­gögn hafi greini­lega sýnt enga hlýnun und­an­farna tvo ára­tugi,“ sagði Smith sem sá póli­tískt sam­særi á bak við rann­sókn NOAA.

Það þarf því ekki að koma á óvart að vís­inda­nefndin dreifði grein Mail on Sunday um meint mis­ferli NOAA-manna á Twitter-reikn­ingi hennar í síð­ustu viku. Smith sagði meðal ann­ars að hún sýndi að vís­inda­menn­irnir hefðu „farið frjáls­lega með gögn til að ná fram fyr­ir­fram­skil­greindri póli­tískri nið­ur­stöðu“. Nýtti hann málið óspart á fundi nefnd­ar­innar um fram­tíð banda­rísku umhverf­is­stofn­un­ar­innar í síð­ustu viku.

Kollegar segja vísindin traust

Voru nið­ur­stöður Karl og félaga fals­aðar eftir allt saman eins og Mail on Sunday full­yrðir að Bates hafi ljóstrað upp um? Gagn­rýnin sem Bates setur fram er að mestu leyti hátækni­legs eðlis. Samkvæmt Washington Post snýst hún í grunn­inn um inn­an­húss­reglur NOAA varð­andi skrán­ingu og varð­veislu gagna sem hann telur að rann­sak­end­urnir hafi ekki fylgt í þaula. Það komi, að hans mati, í veg fyrir að hægt sé að end­ur­taka og stað­festa nið­ur­stöður þeirra. Hann hefur einnig áhyggjur af áreið­an­leika hug­bún­aðar sem var not­aður við rann­sókn­ina og full­yrðir enn­fremur að rann­sak­end­urnir hafi átt við gögnin til að sýna meiri hlýnun og flýtt birt­ingu fyrir Par­ís­ar­fund­inn í des­em­ber 2015.

Halldór Björns­son, hóp­stjóri lofts­lags­rann­sókn Veð­ur­stofu Íslands sem vann meðal ann­ars á rann­sókna­stofu NOAA fyrir tæpum tutt­ugu árum, segir að sér virð­ist sem að Bates hafi ein­lægan áhuga á að gæði gagna NOAA séu tryggð og farið sé eftir réttum verk­ferlum. Bates full­yrði hins vegar ekki í blogg­færslu sinni að gögnin séu gölluð, aðeins að réttum verk­ferlum hafi ekki verið fylgt og því sé ekki hægt að gull­tryggja gögnin. Honum virð­ist sem að um inn­an­búð­ar­deilur innan stofn­un­ar­innar sé að ræða.

Óháð því hvort að Karl og með­höf­undar hans hafi farið í einu og öllu eftir inn­an­húss­reglum NOAA hafa aðrir vís­inda­menn stigið fram og tekið af vafa um að gögnin sem rann­sóknin byggði á og nið­ur­stöður hennar standi á traustum grunni. Nið­ur­stöður Karl og félaga voru meðal ann­ars stað­festar í sjálf­stæðri rann­sókn sem birt var í jan­úar. Þess var hins vegar ekki getið í grein Mail on Sunday.

Zeke Haus­father, lofts­lags­vís­inda­maður við Kali­forn­íu­há­skóla og aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar sem stað­festi nið­ur­stöður Karl og félaga, skrif­aði á vef­síð­una Carbon Brief að upp­færslan á gögnum NOAA hafi ekki leitt til þess að stofn­unin mældi meiri hlýnun en aðrir heldur sýndi hún nú ekki lengur minni hlýnun en aðrar stofn­anir eins og NASA. Eftir upp­færslu Karl sam­ræm­ist gögn NOAA betur sjálf­stæðum athug­unum.

Þá bjuggu rann­sak­end­urnir ekki til frum­hita­stigs­gögnin og því erfitt að sjá hvernig þeir hefðu getað hag­rætt þeim. Sjálfur segir Karl, sem nú er far­inn á eft­ir­laun hjá NOAA, að öll nauð­syn­leg gögn hafi verið aðgengi­leg öðrum vís­inda­mönnum sem vildu end­ur­gera rann­sókn­ina og stað­festa nið­ur­stöð­urnar.

Segja birtinguna þvert á móti hafa tafist

Halldór segir raunar að nið­ur­staða Karl og félaga hafi ekki komið sér­stak­lega á óvart enda hafi aðrir rann­sak­endur áður kom­ist að henni. Ólíklegt sé því að meintur skortur á að reglum hafi verið fylgt hafi komið að sök. Aðrir aðilar hafi sömu­leiðis stað­fest nið­ur­stöð­urnar síðan.

„Það finnst mér benda til þess að ásak­anir um að Karl og félagar hafi verið að hnoða gögnin séu ekki réttar,“ segir Halldór sem líkir þessu við texta­höf­und sem skrifar hnökra­lausan texta en er síðan gagn­rýndur fyrir að hafa ekki notað villu­púka.

Um hvort að birt­ingu nið­ur­staðn­anna hafi verið flýtt óeðli­lega eru Bates og rann­sak­end­urnir alger­lega á önd­verðum meiði. Þeir síð­ar­nefndu telja að tregða til að taka til­lit til nýrrar þekk­ingar hafi þvert á móti leitt til þess að NOAA hafi um ára­bil gefið út ófull­komnar tölur.

„Raun­veru­lega vanda­málið er að þessi grein tafð­ist vegna áhyggna af gagna­með­ferð sem [Bates] hélt á lofti. Ég rök­ræddi við þá sem lögðu áherslu á með­ferð­ina umfram vís­indin í bók­staf­lega áraraðir um að við værum að birta rangar upp­lýs­ingar vegna þess að við máttum ekki upp­færa þær með nýjum gögnum og reikni­ritum. [...] Þannig að það angrar mig virki­lega að heyra hann segja að henni hafi verið flýtt um of þegar hið and­stæða er sann­leik­ur­inn,“ segir Thomas Peterson, einn höf­unda rann­sókn­ar­innar og fyrr­ver­andi veð­ur­fræð­ingur hjá NOAA um gagn­rýni Bates við Washington Post.

Tæknileg þræta og skrifstofupólitík

„Fals­an­irnar“ sem Mail on Sunday sagði frá á svo dramat­ískan hátt virð­ast því í grunn­inn vera þræta ólíkra vís­inda­manna um tækni­leg atriði og inn­an­húss­reglur rík­is­stofn­unar. Tækni­vef­síðan Ars Technica greindi jafn­framt frá því að það væri ekk­ert leynd­ar­mál innan NOAA að Karl hafi lækkað Bates í tign innan stofn­un­ar­innar og það hafi ekki farið vel í þann síð­ar­nefnda.

Bates tjáði sig reyndar sjálfur um málið við AP-frétta­stof­una á mánu­dag í síð­ustu viku og tók af öll tví­mæli um að átt hefði verið við gögn, þeim breytt eða að nokkuð hafi verið gert af illum hug. Hann hafi hins vegar haft áhyggjur af því hvernig farið var með gögnin, þau skráð og geymd.

„Þetta snýst um að greina ekki frá því sem þú gerðir. Þetta eru ekki gögn sem er búið að búa til á nokkurn hátt,“ segir mað­ur­inn sem Mail on Sunday byggir full­yrð­ingar sínar um að brögð séu í tafli á. Hann seg­ist jafn­framt hafa ótt­ast að afneit­arar lofts­lags­vís­inda kæmu til með að not­færa sér gagn­rýni sína. Honum hafi engu að síður þótt hún of mik­il­væg til að láta hjá líða að benda á hana.

New York Times bendir enn­fremur á að blaða­maður Mail on Sunday sem skrif­aði grein­ina, David Rose, sé þekktur fyrir að setja fram mis­vísandi og hrein­lega rangar full­yrð­ingar um lofts­lags­mál. Í des­em­ber skrif­aði hann meðal ann­ars grein þar sem hann hélt því rang­lega fram að met lækkun hafi orðið á með­al­hita jarðar eftir að veð­ur­fyr­ir­brigð­inu El nino slot­aði á síð­asta ári. Markmið hans virt­ist vera að færa rök fyrir því að El nino hafi valdið nær sleitu­lausri röð hita­meta frá 2015 til 2016 en ekki hnatt­ræn hlýnun.

Hvað sem líður mögu­legum mis­bresti við skrán­ingu gagna hjá NOAA er sú full­yrð­ing Rose að ákvörðun á annað hund­rað ríkja heims um að grípa til aðgerða til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda með Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu hafi á ein­hvern hátt staðið og fallið með einni rann­sókn sem birt­ist hálfu ári fyrir fund SÞ ein­fald­lega fjar­stæðu­kennd.

Þrátt fyrir að aðal­heim­ild hans hafi sjálf sagt að engin brögð hafi verið í tafli og fjöldi greina hafi verið skrif­aður þar sem skrif hans voru hrakin í vik­unni var Rose við sama hey­garðs­hornið í Mail on Sunday um helg­ina. Þar spurði hann, að því er virð­ist án snef­ils af kald­hæðni: „Hvernig getum við treyst vís­inda­mönnum hnatt­rænnar hlýn­unar ef þeir halda áfram að snúa út úr sann­leik­anum“. Þar komu fram sömu rang­færsl­urnar og hálf­sann­leik­ur­inn og í upp­haf­legu grein blaða­manns­ins.

Allt þetta er sömu­leiðis ólík­legt til að fá leið­toga vís­inda­nefndar Banda­ríkja­þings, sem hefur eft­ir­lit með störfum NOAA, ofan af þeirri rang­hug­mynd að vís­inda­menn standi í leyni­makki til að þjóna pólítískum mál­stað þegar kemur að lofts­lags­málum. Ólíkt hitafars­gögnum NOAA virð­ist ekki hægt að upp­færa suma stjórn­mála­menn þegar nýjar og betri upp­lýs­ingar koma fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár