Bjarni biðst afsökunar á illri meðferð og vanrækslu á Kópavogshælinu

Rík­is­stjórnin biður allt fatlað fólk, sem orðið hefur fyrir ofbeldi eða illri með­ferð á stofn­unum hér á landi, afsök­unar. Allir sem voru vistaðir sem börn á Kópa­vogs­hæl­inu eru líka beðnir sér­stak­lega afsök­unar.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra baðst í dag afsök­unar fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar á þeirri illu með­ferð og van­rækslu sem börn bjuggu við á Kópa­vogs­hæl­inu, eins og upp­lýst hefur verið í skýrslu vist­heim­ila­nefndar. Þetta gerði hann í yfir­lýs­ingu.

„Ég tala í dag til allra þeirra sem vistuð voru sem börn á Kópa­vogs­hæl­inu og fjöl­skyldna þeirra: Fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar bið ég ykkur afsök­unar á þeirri ómann­úð­legu með­ferð og marg­hátt­uðu van­rækslu sem börn bjuggu við á Kópa­vogs­hæl­inu. Sömu­leiðis bið ég afsök­unar allt fatlað fólk, börn og full­orðna, sem hefur verið vistað á stofn­unum hér á landi og sætt þar ofbeldi eða illri með­ferð.“

Bjarni segir að sár reynsla verði aldrei bætt aðf ullu, en að á grund­velli laga um sann­girn­is­bætur verði nú unnið að því að bæta þeim sem urðu fyrir ofbeldi eða illri með­ferð þann skaða sem af hefur hlot­ist, að því marki sem það sé unnt. „Þá eru ráð­herrar nú að fara yfir til­lögur sem settar eru fram í skýrsl­unni og meta til hvaða ráð­staf­ana verður gripið í því skyni að standa vörð um mann­rétt­indi fatl­aðs fólks í íslensku sam­fé­lagi.“

For­sæt­is­ráð­herra segir að skýrsla vist­heim­ila­nefndar hafi verið rædd á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag. Það sé erfitt en nauð­syn­legt að horfast í augu við það hversu slæmar aðstæður fatl­aðra ein­stak­linga, barna og full­orð­inna, hafi verið á Kópa­vogs­hæl­inu. „Eins og lesa má í skýrslu nefnd­ar­innar hafði Kópa­vogs­hælið ákveðna sér­stöðu en önnur vist­heim­ili áttu þó margt sam­merkt með hæl­inu. Ljóst er að af rann­sókn nefnd­ar­innar má draga ýmsan lær­dóm um stöðu fatl­aðra barna og for­eldra þeirra og almennt um aðbúnað fatl­aðs fólks á stofn­unum. Ég er afar þakk­látur fyrir að þessu máli hafi verið gerð svo vönduð og góð skil og tel það mik­il­vægan hluta af upp­gjöri við þetta tíma­bil í sögu þjóð­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár