Ísland spilltast allra Norðurlanda

Ísland er í 14. sæti yfir þau ríki sem minnst spill­ing ríkir sam­kvæmt nýbirtum lista Transparency International. Hin Norð­ur­löndin eru öll á topp sex. Ísland hefur hrapað niður list­ann á und­an­förnum árum, sér­stak­lega eftir birt­ingu Rann­sókn­ar­skýrsl­unnar.

Ísland er í 14. sæti af 176 löndum yfir minnst spilltu lönd heims. Þetta kemur fram á nýjum lista fyrir árið 2016 sem byggir á spill­ing­ar­vísi­tölu Transparency International. Ísland lækkar um eitt sæti frá árinu 2015 og hefur hríð­fallið niður list­ann á árunum eftir hrun. Árið 2006 var Ísland í fyrsta sæti og þótti þar af leið­andi minnst spillta land í heimi. Árið 2008 var Ísland í sjö­unda sæti og eftir að Rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis kom út árið 2010 hefur Ísland tekið umtals­vert stökk niður á við á list­anum.

Nú er svo komið að Ísland þykir spillt­ast allra Norð­ur­landa, en Danmörk, Finnland, Svíþjóð og Noregur eru öll á meðal þeirra sex ríkja sem þykja minnst spillt sam­kvæmt vísi­töl­unni.

Sómalía spilltasta land í heimi

Stiga­skali spill­ing­ar­vísi­töl­unnar nær frá 0 upp í 100. Því færri stig sem hvert ríki fær, því spillt­ara er það talið. Spill­ing­ar­vísi­tala Transparency International er byggð á áliti sér­fræð­inga sem og almennri skynjun á spill­ingu í opin­berum stofn­unum og stjórn­sýslu. Þau lönd sem eru ofar­lega á list­anum eiga það sam­eig­in­legt að þar ríkir fjöl­miðla­frelsi, gott aðgengi er að fjár­laga­upp­lýs­ingum, dóms­kerfi dregur ekki fólk í dilka eftir ríki­dæmi og starfar algjör­lega sjálf­stætt gagn­vart hinum öng­unum í hinu þrí­skipta valdi. Þá sýna þeir sem fara með almennt vald heil­indi í störfum sínum. Á hinum end­anum eru ríki sem eiga það flest sam­eig­in­legt að þar geisa styrj­aldir, stjórn­skipan er veik, dóms­kerfið slakt og fjöl­miðla­frelsi lítið eða ekk­ert. 

Sómalía er spilltasta landið í heim­inum sam­kvæmt vísi­töl­unni, og er það tíunda árið í röð sem ríkið hlýtur þann vafa­sama heiður. Minnst spillt­ustu löndin eru Danmörk og Nýja Sjáland og þar á eftir koma Finnland og Svíþjóð. Önnur lönd sem þykja minna spillt en Ísland eru Sviss, Noregur, Singapúr, Holland, Kanada, Þýska­land, Lúx­em­borg, Bretland og Ástralía. Í næstu sæt­unum á eftir Íslandi koma Belgía, Hong Kong, Aust­ur­ríki og Banda­ríkin.

Af Norð­ur­lönd­unum telst því vera mest spill­ing á Íslandi. Hin fjögur Norð­ur­löndin sem vísi­talan nær til eru öll á meðal sex minnst spilltu landa heims.

Slök aðferðarfræði sögð hafa sýnt litla spillingu

Í frétta­til­kynn­ingu frá Gagnsæi, sam­taka gegn spill­ingu í öllum grunn­stoðum sam­fé­lags­ins sem sótt hafa um aðild að Transparency International, vegna birt­ingar vísi­töl­unnar er farið yfir stöðu Íslands í mæl­ingum hennar síð­ast­lið­inn ára­tug. Þar kemur fram að Ísland hafi fengið 96 stig af 100 árið 2006 og þá þótt minnst spilltasta land í heimi. Ári síðar hrap­aði Ísland niður í sjötta sætið og síðan þá hefur stig­unum sem Ísland fær hægt og rólega hækkað. Árið 2016 fékk Ísland 78 af 100 stigum eða 81 pró­sent þeirra stiga sem landið fékk árið 2006.

Í til­kynn­ing­unni er sá fyr­ir­vari settur að það hafi þótt umdeilt hversu mörg stig Ísland fékk árið 2006 og að það hafi fremur þótt end­ur­spegla slaka aðferð­ar­fræði við að mæla spill­ingu frekar en að mæl­ingin hefði fangað „sið­lega og góða stjórn­skipan á Íslandi árið 2006“. Þar er einnig bent á að Rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis hafi komið út árið 2010 þar sem m.a. hafi verið sér­stak­lega fjallað um sið­ferði og starfs­hætti í tengslum við fall íslensku bank­anna. Í kjöl­far birt­ingar hennar átti sér stað umtals­vert stökk niður á við í sæta­röðun á lista Transparency International, úr átt­unda sæti árið 2009 í það fjórt­ánda árið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár